Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1964, Page 120
1964
— 118 —
Smásjárskoðun, ræktun úr krufningum o. f 1.
Saur ......................................... 23
Krufningar ................................... 73
Ýmislegt ..................................... 91
Alls 187
Vefjarannsóknir ............... 5765
Krufningar .......................... 453
Blóðflokkanir
vegna barnsfaðernismála .............. 73
Sýklaæti.......................... 2748,6 lítrar
C. Blóðbankinn.
Engin skýrsla barst fyrir þetta ár.
D. Tilraunastöð Háskólans í meinafræði, Keldum.
Vr ársskýrslu tilraunastöðvarinnar:
Fýlapest (psittacosis).
I blóði frá 4 sjúklingum, sem grunur lék á vegna sjúkdómseinkenna,
að hefðu veirulungnabólgu, fundust há komplementbindandi mótefni
fyrir psittacosis. 1 framhaldi af rannsóknum fyrra árs voru tekin
blóðsýni frá 20 dúfum úr nokkrum dúfnabúum í Reykjavík og ná-
grenni. 1 5 þessara sýna fundust mótefni við komplementspróf. Bendir
þetta til útbreiddrar sýkingar í dúfnastofninum. Var því ákveðið að
athuga blóð frá fólki, sem hafði umgengizt dúfur mikið. Var höfð
samvinna við héraðslækninn í Hafnarfirði um söfnun blóðsýna úr 14
drengjum, 7—15 ára, og einum fullorðnum manni í Hafnarfirði og ná-
grenni. Eitt þessara blóðsýna reyndist jákvætt, hin neikvæð. Leitazt
verður við að ná blóðsýnum úr fleira fólki, sem umgengst mikið eða
hirðir fugla. Leifur Dungal stud. med. útvegaði blóðsýni úr 3 konum
í Vestmannaeyjum, sem veiktust af fýlaveiki árið 1942. Eitt af þessum
sýnum reyndist jákvætt, en hafði lágt titer, 1 :8. Hin voru bæði nei-
kvæð, enda mjög langur tími liðinn frá sýkingu.
Greining á veirusjúkdómum í mönnum.
Á árinu sendu sjúkrahús, héraðslæknar og aðrir starfandi læknar
448 sýni úr 255 sjúklingum til rannsóknar vegna gruns um veirusjúk-
dóma.