Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1964, Blaðsíða 137
135
1964
arbakka, en án árangurs ennþá. I ráði er að koma hér upp sorphreins-
un með viðeigandi tækjum.
Keflavíkur. Neyzluvatn í Keflavík er mjög gott. 1 Sandgerði, Garði,
Njarðvíkum og Grindavík er neyzluvatn tekið úr borholum, og er í
öllum stöðum ómengað og gott vatn. Rottur eru í holræsum í Keflavík,
og hefur ekki tekizt að vinna bug á þeim, en ofanjarðar er rottugangi
haldið niðri með stöðugum eitrunum og eftirliti.
3. Sullaveikivarnir.
Stykkishólms. 1 Grafarnesi, þar sem sullatíðni hefur verið mikil und-
anfarin ár, var slátrað mun færra fé en áður. Sullir fundust nú í fjórum
lömbum, en aðeins 1—2 sullir í hverju. Við önnur sláturhús var ástand-
ið svipað og áður.
Reykhóla. Ekki var mér tilkynnt um sulli við aðalslátrun, en lausa-
fi'egnir hef ég fengið um slíkt. Er mér sagt, að hundahreinsun hafi hér
alloft fallið niður og þess á milli verið fálmkennd.
Patreksfj. Hundahreinsanir framkvæmdar lögum samkvæmt.
Nokkrir sullir fundust í gömlum ám við haustslátrun.
Hólmavíkur. Sullir fundust ekki í sláturfé.
Dalvíkur. Nokkuð hefur borið á sullum í sauðfé undanfarin ár. Sam-
kvæmt yfirlýstum niðurstöðum rannsókna eru þeir ekki hættulegir
aiönnum. 1 ráði er að banna heimaslátrun. Hundahreinsun er fram-
kvæmd árlega.
Akureyrar. Hundar voru hreinsaðir í öilum hreppum héraðsins á
þessu ári, svo og í Akureyrarbæ. Þá er þess mjög vandlega gætt, að
öll slátrun fari fram í sláturhúsi og að hundar komist ekki neins staðar
nálægt.
Grenivíkur. Hundar hreinsaðir haust hvert. Enn kemur fyrir, að
sullir finnist í sláturfé, þó ekki í dilkum. Gengið er svo frá sullum, að
öruggt er, að hundar ná ekki í þá.
Þórshafnar. Hundahreinsun fór fram í öllum hreppum héraðsins.
Eskifj. Bændur hreinsa hunda sína sjálfir.
Hellu. Sullir fundust í sláturfé frá 10 bæjum í héraðinu, en 5 þeirra
eru í sama hreppi. Að mestu var um cysticercus tenuicollis að ræða,
en stöku sinnum um echinococcus. Svo sem raun ber vitni, gætir sum-
staðar tómlætis meðal bænda um framkvæmd fyrirskipaðrar hunda-
hreinsunar þrátt fyrir ítrekaðar áminningar. Vissulega verður and-
varaleysi gagnvart sullaveiki að teljast sérstaklega hættulegt, á með-
an taenia marginata heldur að nokkru leyti velli og taenia echinococcus
verður vart.
4. Matvælaeftirlit.
Atvinnudeild Háskólans hefur látið í té eftirfarandi skýrslu um
vannsóknir sínar á matvælum vegna matvælaeftirlits ríkisins á árinu: