Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1964, Page 143
— 141
1964
Mjólk I. flokkur inniheldur allt að 500000 gerla í millilítra.
Mjólk II. flokkur inniheldur allt a'ö 500000 til U millj. gerla í millilítra.
Mjólk III. flokkur innihéldur allt að U—20 millj. gerla í millilítra.
Mjólk IV. flokkur inniheldur yfir 20 millj. gerla í millilítra.
Heildarmjólkurmagn mjólkursamlaganna á árinu reyndist vera
100496579 kg, sem er 5838903 kg meira magn en á árinu 1963, eða
6,17% aukning.
Gæðaflokkun mjólkurinnar:
/ I. og II. flokk fóru 98093U39 kg, eöa 97,61%.
í III. flokk fóru 2226908 kg, eða 2,22%.
1 IV. flokk fóru 176232 kg, eöa 0,17%.
Mjólkursamlög eru orðin 18 talsins. Á árinu tóku til starfa tvö ný
mjólkursamlög, annað í Búðardal og hitt í Grafarnesi.
Rvík. Mjólkursamsalan seldi á árinu 30 milljón lítra mjólkur til
Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Suðurnesja og Vestmannaeyja. Af því
voru 76% hyrnumjólk, 12% flöskumjólk og í lausu máli 12%, en af því
fer nokkur hluti til iðnaðar.
Stykkishólms. Mjólkurstöð tók til starfa í Grafarnesi. Jafnframt
hófst sala á gerilsneyddri mjólk á öllu Snæfellsnesi.
Patreksfj. Framleiðsla mjólkur eykst nokkuð, en er þó ekki
næg á vissum tímum árs, og er þá mjólk flutt hingað frá Ákureyri
eða Reykjavík. Mjólkin er seld ógerilsneydd í mjólkurbúð í húsi Kaup-
félags Patreksfirðinga, og er aðstaða hvergi nærri góð. Hafinn er nú
undirbúningur að byggingu mjólkurstöðvar. Fylgzt er með sölu mjólk-
urinnar og gerð redúktase-próf reglulega.
Hólmavíkur. Bændur senda mjólk daglega í kauptúnin. Ekki bárust
neinar kvartanir.
Eskifj. Afgreiðsla og sala mjólkur vandamál, sem ekki hefur fengizt
viðunandi lausn á. Verður sennilega ekki leyst nema með pökkun
mjólkur frá Egilsstaðamjólkurbúinu. Vegna fæðar mjólkurframleið-
enda í héraðinu er ekki möguleiki á mjólkurbússtofnun.
Hellu Mjólkurframleiðsla mikil í héraðinu. Hreinlæti í fjósum
batnar með hverju ári. Enn eru þó um 17% af fjósum í héraðinu undir
því marki, sem heilbrigðiskröfur setja.
6. Áfengis- og tóbaksnotkun. Áfengisvarnir.
Rvík. Á árinu var selt áfengi úr áfengisútsölum í Reykjavík fyrir
260,2 milljónir króna. 1 fangageymslu lögreglunnar við Síðumúla gistu
7519 manns á árinu, flestir vegna ölvunar.
Stykkishólms. Drykkjuskapur mun ekki meiri hér en almennt gerist
og barsmíðar og limlestingar heldur fátíðari hér en í öðrum plássum í
sambandi við dansleiki.