Börn og menning - 01.04.2012, Blaðsíða 15

Börn og menning - 01.04.2012, Blaðsíða 15
Aldinmauk og límonaði 15 nostalgískri eftirsjá eða til að ergja mig yfir liðinni tíð. Mér finnst mun mikilvægara - og miklu skemmtilegra - að lifa í núinu og horfa fram á veginn, þótt maður verði vissulega að muna að vera þakklátur fyrir það góða í fortlðinni og líka að læra af henni svo að maður endurtaki ekki í sífellu sömu mistökin. En eitt er það í fortíðinni sem ávallt er og verður baðað nostalgíuljóma þá sjaldan að ég horfi til baka, þ.e. allt sem tengist bókum og lestri. Enda varð ég snemma læs og upp frá þeirri stundu voru bækur traustir og algjörlega ómissandi lífsförunautar. Lífið var bækur og bækur voru lífið. har sem tilveran var einfaldari og færra við að vera þarna f fornöld þá varð ég þessi dæmigerði bókaormur sem las ALLT. En það var svo sem ekkert merkilegt, engin hetjudáð. Bara óhjákvæmilegt. Lestrarsjúkt barn í afþreyingarleysinu ' ^gamla daga" varð fljótt uppiskroppa með barnabækur. Og ekki var lesefnið í skólanum lengi afgreitt. Þessar svokölluðu lestrarbækur lauk ég við sama dag og kennarinn útbýtti þeim en síðan liðu margar vikur, ef ekki mánuðir, þar til við fengum næsta lestrarhefti. Því var ekki um annað að ræða en að lesa sömu barnabækurnar aftur °g aftur, sem heillaði mig ekkert sérstaklega, eða lesa bækur ætlaðar fullorðnum. Dagur en yndislesturs var að sjálfsögðu ekki inni í myndinni, það var jafnskelfileg tilhugsun og dagur án matar og drykkjar. Fullur vagn af bókum Ég hafði reyndar óvenjumikinn tíma til að lesa, ekki bara í samanburði við nútlmabörn heldur líka önnur steinaldarbörn. Vegna heilsuleysis í æsku var ég oft rúmliggjandi dögum eða vikum saman, m.a. á sjúkrahúsi, °g þá voru bækur lífsbjörgin mín. Gleymum ekki að í „gamla daga" var heimsóknartíminn á barnadeild Landspítalans bara einn klukkutími á viku og dagarnir voru hræðilega lengi að líða hjá litlum sjúklingum sem söknuðu pabba og mömmu. Þegar ég rifja upp minningar frá spítalavistinni man ég aðallega eftir tvennu: Slepjulega sagógrjónagrautnum, sem mér fannst verri en sjálf veikindin, og tryllingslegu tilhlökkuninni sem fylgdi því að heyra ískrið í hjólum bókavagnsins sem sjálfboðaliðar Rauða krossins ýttu á milli sjúkrastofa. Hugsið ykkur bara lúxusinn fyrir Ktinn lestrarhest, sem þar að auki var dálítil letibikkja, að fá reglulega fullan vagn af bókum alveg upp að rúmstokknum. Ég þurfti bara að teygja út höndina og benda: „Ég vil þessa og þessa og þessa og þessa og þessa." Ef ég hefði ekki þurft að borða sagógrjónagraut og ef pabbi og mamma hefðu fengið að koma aðeins oftar í heimsókn hefði barnaspítalinn verið algjört himnaríki. Tilfinningar og ógn En hvaða bækur las ég og um hvað fjölluðu þær? Þegar ég byrjaði að rifja það upp fékk ég enn eina sönnun þess hvað ég er léleg að muna söguþráð í bókum og bíómyndum. Það sem situr eftir eru fyrst og fremst þau tilfinningalegu áhrif sem lesturinn hafði á mig, ekki nöfn sögupersóna, hvað gerðist og í hvaða röð. Oft tengi ég líka ákveðna lykt eða bragð við bækur sem ég gæti annars ekki lýst þótt ég ætti líf mitt að leysa. Án þess að hafa fyrir því nokkur rök held ég þess vegna að það hljóti að vera afar einstaklingsbundið á hvaða stöðvar í heilanum bóklestur hefur áhrif. Tilfinningar. Það eru mínar ær og kýr, jafnt í bókum sem ég les, bókum sem ég skrifa og bara f lífinu almennt. Þess vegna er kannski ekki skrýtið hvaða bækur eru mér eftirminnilegastar úr æsku: Blómakarfan, Bláskjár og Heiðu-bækurnar. Blómakarfan, eftir Christoph von Schmid, er fyrsta bókin sem kom mér til að gráta. Slíku gleymir maður ekki. Þetta er afskaplega hugljúf formúlusaga um góða, fátæka stelpu, dóttur garðyrkjumanns í stórri höll, sem sökuð er um þjófnað. Stelpan er auðvitað alsaklaus en getur ekki sannað sakleysi sitt. Og til að hrella viðkvæma lesendur enn frekar bíður hennar hvorki meira né minna en dauðarefsing. Sannleikurinn kemur sem betur fer í Ijós á elleftu stundu en samt varð ég alltaf jafnmiður mín yfir óréttlæti heimsins í hvert sinn sem ég las söguna. Þetta var nefnilega ein af þeim bókum sem ég marglas. í tímaritinu Fálkanum árið 1940 er Blómakarfan sögð „fallegasta og áhrifaríkasta saga fyrir börn og unglinga, er út hefir verið gefin á Islandi. Ekkert barn ætti að fara á mis við það að eignast þessa bók." Ég rakst á þessa tilvitnun á netinu þegar ég las mér til um höfundinn, þennan Christoph von Schmid, sem ég þekkti hvorki haus né sporð á. Hann reyndist hafa fæðst á 18. öld og starfað sem prestur, kennari og barnabókahöfundur. En Blómakarfan hans lifir enn góðu lífi og m.a. er hægt að lesa hana á netinu þar sem hún er löngu komin úr höfundarétti. Enski titillinn er einfaldlega The Basket of Flowers. Önnur bók sem ég tengi við ólgandi tilfinningar er Bláskjár. Ég vissi heldur ekkert

x

Börn og menning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.