Börn og menning - 01.04.2012, Blaðsíða 22
rgtK
/ kringum sumardaginn fyrsta lifnaði yfir borginni. Vorið var komið
með ióuna, fífia og stóla fyrir utan kaffihús. Síðastliðin ár hefur nýr
vorboði verið að festa sig í sessi og i ár urðu flestir Reykvíkingar
varir við hann. í húsum, söfnum og görðum mátti heyra ærsl
og kæti. í boði voru ótrúlegustu uppákomur eins og bíóspretta,
skemmtimenntun, ratleikhús, sirkhússmiðja, flugdrekasmiðja og
auðvitað börnin, býflugurnar og blómin. Barnamenningarhátíðin í
Reykjavík var hafin. Börnin áttu borgina.
Barnamenningarhátið var haldin i Reykjavík dagana 17.-22. aprii
en hún er árlegur viðburður sem var fyrst haldin árið 2010 og
er skipulögð af Höfuðborgarstofu. Hátíðin snýst um menningu
barna á aldrinum 2 til 12 ára en þema nýliðinnar hátíðar var
„ Uppspretta " og endurspegiaðist það með ýmsum hætti í tæplega
tvö hundruð viðburðum.
Af þessu tilefni rabbaði Hetga Ferdinandsdóttir við Oddnýju
Sturludóttur, borgarfulltrúa og formann skóla- og fristundaráðs,
um barnamenningarstarf Reykjavíkurborgar og það sem er i gerjun
á þessu sviði hjá borginni. Af mörgu er að taka og má þar nefna
„Menningarfánann" sem á engan sinn lika í heiminum og er um
það bil að stíga sin fyrstu skref, ýmis lestrarhvetjandi verkefni og
svo tónvísindasmiðjur Bjarkar Guðmundsdóttur og borgarinnar.
Biophilia
Biophilia er heiti á tónvísindasmiðjum sem er
ætlað að gefa grunnskólabörnum tækifæri
til að upplifa samspil tónlistar og vísinda
á alveg nýjan hátt og boða nýja tíma í
kennsluháttum og skapandi skólastarfi.
Björk Guðmundsdóttir tónlistarmaður átti
frumkvæði að verkefninu en umsjón með
því höfðu Arnfríður Sólrún Valdimarsdóttir
verkefnastjóri barnamenningar hjá
Reykjavíkurborg, listamaðurinn Curver
og Guðrún Bachmann frá Háskóla unga
fólksins.
Með verkefninu rættist gamall draumur
Bjarkar, draumur um að finna nýjar leiðir
til að kveikja áhuga og sköpun barna á
vettvangi tónlistar. Unnið er með lög af plötu
Bjarkar, Biophilia, en hvert og eitt lag stendur
fyrir hugtök úr eðlisfræði, t.d. eldingar,
tunglskipti, svarthol, árstíðir og DNA. Björk
hefur einnig tengt ákveðin tónlistarhugtök
við hvert lag út frá vísindahugtökunum
en unnið er með hugtökin í öppum á
spjaldtölvum.
Oddný: „Þegar hugmyndir Bjarkar voru
kynntar fyrir okkur [hjá borginnij voru aðeins
þrjár vikur í tónleika hennar í Hörpunni.
Okkur varsagtað Björk gæti verið i Hörpunni
í fjórar vikur til að vinna að þessu verkefni.
Þetta var of gott tækifæri til að sleppa þvi,
svo að við fjármögnuðum kaup á 15 iPad og
fengum kennara til liðs við okkur. Við fengum
til samstarfs þrjá náttúrufræðikennara
og sex tónmenntakennara auk þriggja úr
skólahljómsveitum og tónlistarskólunum.
Þessir kennarar lögðust svo yfir öppin
og hugtökin og veltu fyrir sér hvernig
hægt væri að vinna kennsluleiðbeiningar
og hugmyndabanka úr þessu frábæra
efni. Björk var svo áhugasöm að hún
sat marga vinnufundi með kennurunum
okkar og fræðimönnum úr HÍ til að fyigja
verkefninu eftir. Háskóli íslands kom inn í
verkefnið í gegnum Háskóla unga fólksins
svo að þetta varð þrihliða samstarf. HÍ
kom með djúpu vísindaþekkinguna en
náttúrufræðikennararnir úr grunnskólunum
fundu lausnir á því hvernig þróa mætti
hugtökin í framkvæmd með 10-12 ára
krökkum.
Siðan höfum við þróað prógramm sem
við getum boðið 10-12 ára krökkum úr
öllum hverfum borgarinnar. Það voru 50
nemendur tóku þátt í verkefninu i Hörpu
á skólatima, unnu með öppin og fengu að
prófa hljóðfærin hennar Bjarkar. Kennararnir
sem tóku þátt i verkefninu höfðu á orði að