Börn og menning - 01.04.2012, Side 26

Börn og menning - 01.04.2012, Side 26
26 Börn og menning Ömmustelpan Freyja er ekki fyrr komin inn úr dyrunum en hún biður ömmu að lesa fyrir sig. Enn er hún ung að árum og fær þvílíkt dálæti á einstaka bókum að ekkert annað kemst að mánuðum saman. I fyrra, þegar hún var bara fjögurra ára, var það Kári litli og klósettskrímslið eftir Þórgunni Oddsdóttur sem átti hug hennar allan. „Nei, hann Kári er sko alls engin gunga," sagði Freyja stundum við ömmu með samsærisglotti og amma var glöð í hjarta sér yfir að eiga eitthvað alveg svona prívat með skírleiksstelpunni sinni. En þegar Kári var búinn að vingast við klósettskrímslið í þúsundasta skiptið fannst ömmu nóg komið. Kannski voru það áhrif frá hinum þrönga heimi klósettsins sem gerðu það að verkum að amma var komin í virkilegt stuð til víkka sjóndeildarhringinn og skella sér í Ferðina til Panama. Næst þegar Freyja kom i heimsókn hafði amma á lúmskan hátt lagt appelsínugula bók með hlýlegri mynd af vinunum tveimur, litla tígrisdýrinu og litla birninum, ofan á Kára litla og klósettskrimslið. Meira þurfti ekki til - nú hafa amma og Freyja ferðast vikulega til Panama mánuðum saman og engin ferðaþreyta komin í þær enn. Ferðin til Panama er eftir Þjóðverjann Janosch (höfundarnafn Horst Eckert, f. 1931) og kom bókin út í Þýskalandi 1978. Bókaútgáfan Svart é hvítu gaf hana út í íslenskri þýðíngu Guðrúnar Kvaran 1982. Janosch, sem lítur á sig sem myndskreyti fyrst og fremst, hefur gefið út hátt í tvö hundruð bækur sem hafa verið þýddar á 47 tungumál. Verk hans fyrir fullorðna eru þekkt fyrir þjóðfélagsádeilu og skopstælingar en bækur

x

Börn og menning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.