Börn og menning - 01.04.2012, Page 31

Börn og menning - 01.04.2012, Page 31
Óhugnaður á Rökkurhæðum 31 þar býr ekki nokkur maður lengur vegna óhugnanlegra atburða sem þar áttu sér stað. Lesandinn fær ekkert meira að vita en kannski upplýsist óhugnaðurinn í sfðari Rökkurhæðabókum. Það kemur fljótt í Ijós við lestur bókar númer tvö, Óttulundar, að sami vinahópur eða sami hópur unglinga er uppistaðan í persónugalleríi sagnanna. Vitsmunasugan í Rústunum, sem Birgitta Elín Hassel skrifar, fá lesendur að kynnast Önnu Þóru, fjórtán ára, sem er mjög önnum kafin, spilar handbolta, lærir djassballett, rennir sér á snjóbretti og sinnir félagslífinu í skólanum en lætur námið sitja á hakanum. Einn vondan veðurdag gengur Anna Þóra í bókstaflegum skilningi í fangið á veru sem hún kallar stelpu. Þetta er hin dularfyllsta vera og erfitt að gera sér grein fyrir hvaðan hún kemur eða hver hún er. Hún virðist ekki vera draugur, hvað þá að hún sé af þessum heimi. Og hvað er hún að gera í Rökkurhæðum? Útlitsfe/punnarvekur Önnu hrylling, glottið á vörunum hræðir hana en augun vekja þó mestan hroll, minna á kolsvart hyldýpi. Um leið og Anna lítur í þessi augu heyrir hún undarleg hljóð - vein barnsgrát ýlfur drunur (bls. 10). Höfundur rýfur frásögnina með því að skáletra hughrif eða hljóð sem aðalpersónan þykist skynja eða heyra. Mjög fljótlega virðist stelpan ná gífurlegum tökum á Önnu Þóru og hún býðst til að taka að sér að læra heima fyrir hana, vera góða stelpan heima fyrir, bókstaflega verða Anna Þóra. Hún skiptir um ham frammi fyrir Önnu: Stelpan kom nær og Anna Þóra starði á hana. Hún var með sama Ijósskollitaða hárið, sömu brúnu augun, sama nef, jafnvel sömu leiðindabóluna á enninu sem hafði pirrað hana svo þegar hún leit í spegilinn ( morgun. Hún sá að stelpan var meira að segja komin í samskonar föt og hún sjálf, gallabuxur, hettupeysu og vindjakka. (bls. 16-17) Anna Þóra eygir tækifæri til að geta sinnt öllum íþróttum og tómstundum sem hana lystir og hún þiggur boðið. En hvers konar vera er þetta? Hún líkist ekki neinum verum í íslenskum þjóðsögum en kannski má rekja áhrifin til Harry Potter? f kringum þann mæta galdrastrák er að finna ýmsar sérkennilegar verur, þar á meðal vitsuguna. Ármann Jakobsson hefur skrifað fróðlega grein í Tímarit Máls og menningar og kallast hún „Yfirnáttúrlegar ríðingar". Greinin fjallar um vitsugur, verur sem eiga heima í bókunum um Harry Potter eftir J.K. Rowling. „Ef vitsugunni gefst tækifæri til, nærist hún á fórnarlambi sínu þangað til það er orðið eins og hún sjálf...sálarlaust og illgjarnt"1 2 3. Það sem er ólíkt þessu í Rústunum er að hin dularfulla vera breytist í fórnarlambið og vill verða það með húð og hári. Ármann telur að vitsuguna megi helst tengja við íslenska tilberann sem þótti og þykir hið víðbjóðslegasta kvikindi og sníkjudýr4. Stelpan í líki Önnu Þóru vinnur ástir móður hennar og kennara og kemur sér alls staðar vel. Ef ekki verður gripið til einhverra ráða mun hún hrekja Önnu Þóru burt úr þessu lífi. Anna Þóra getur sinnt félagsmálum og tómstundum að vild. Ekkert fæst samt ókeypis, eitthvað hlýtur stelpan að vilja fyrir greiðann. En hvað? Þar koma íslenskar þjóðsögur til skjalanna. Hún vill að Anna Þóra segi nafn hennar fyrir skólalok: ... ef þér tekst að giska á mitt rétta nafn fyrir einkunnaafhendingu í vor þá hverf ég úr lífi þínu eíns og ég hafi aldrei verið til. Ef þú getur ekki giskað á mitt rétta nafn þá hverfur þú úr lífi mínu eins og þú hafir aldrei verið til. Þá geng ég inn í líf þitt og kem i staðinn fyrir þig. (bls. 19) Fyrsta nafnið sem kemur upp í huga Önnu Þóru er Gilitrutt, mjög líklega vegna góðra kynna við þá sögu. En henni reynist þrautin þyngri að finna rétta nafnið. Líkt og í mörgum (slenskum þjóðsögum verður Anna að vinna ein að lausn gátunnar. En það reynist henni ofviða að lúra ein á þessu mikla leyndarmáli svo hún fær vinkonu sína, Margréti, til að hjálpa sér. En um leið stofnar hún lífi vinkonunnar í hættu. Allir þeir sem hafa grunsemdir um stelpuna í hlutverki Önnu Þóru verða að gjalda fyrir þær, þeir veikjast (bróðir Önnu Þóru, Arnar Þór), deyja (hundurinn Píla) eða hverfa (Margrét). í lok bókarinnar nær Anna Þóra að koma stelpunni, útblásinni og skelfilegri með langa og brennandi fálmara, ofan í holu, Dauðaholuna, sem hún á ekki afturkvæmt úr. Eftir að lestri lýkur vakna ýmsarspurningar. Á lesandi að trúa því að enginn sakni Margrétar? Að enginn sjái eftir hundinum Pílu sem drepinn er með voveiflegum hætti? Hvað er að frétta af bróðurnum veika? Það er í lagi að skila lesanda eftir í lausu lofti en hér er gengið of langt. Höfundar vilja skrifa fyrir börn og unglinga og segja sjálfir á heimasíðu sinni að markmiðið sé að skrifa vandaðar bækur. Þeir þurfa að setja sig ( spor barna og unglinga og hugsa hvað unga fólkið vill og hvernig það hugsar. Þegar maður leggur bókina frá sér á hann að vera sáttur. Óttulundur En bíðið við, það er framhald og þar hljótum við að fá svör við öllum spurningum. Höfunda bókanna langaðí til að skrifa saman bækur en samt ekki þannig að hver bók væri skrifuð af báðum. Þá kom upp. sú hugmynd að skapa heim þar sem jafn ólíkir rithöfundar og þær báðar gætu skrifað sögur sem tengdust án þess að þurfa að skrifa bækurnar í sameiningu.5 Óttulundur er næsta saga í bókaflokknum og er eftir Mörtu Hlín Magnadóttur. Bókin dregur nafn sitt af götu í einu hverfi borgarinnar Sunnuvíkur. Meira er um skáletraða texta í þessari sögu og tákna þeir inngrip hins óvænta, hins dularfulla í söguna. Feitletraður texti er oftast endurlit, upprifjun á fortíð. Það eina sem tengir þessar tvær sögur er vinátta stelpnanna og veikindi bróður Önnu Þóru. Hvergi er minnst á alla lífsreynslu Önnu Þóru eða hvarf Margrétar. 1 Birgitta Elín Hassell og Marta Hlfn Magnadóttir, 2009. 2 Markmið Bókaveitunnar, 2011. 3 Ármann Jakobsson, 2009, 111. 4 Ármann, 2009, 112. 5 Útgáfa Bókabeitunnar, 2011.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.