Börn og menning - 01.04.2012, Page 38

Börn og menning - 01.04.2012, Page 38
38 Börn og menning Fyrir augum þeirra yngstu í Gerðubergi IBBY á íslandi stendur árlega fyrir ráðstefnu um barna- og unglingabækur í Gerðubergi ásamt Borgarbókasafni Reykjavíkur, Rithöfundasambandi (slands - Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Félagi fagfólks á skólasöfnum og Upplýsingu - Félagi bókasafns- og upplýsingafræða. I ár var sjónum beint að fyrstu bókmenntum lífsins, þeim bókum sem leiða unga lesendur inn í sagnaheim sem verður þeim vonandi aðgengilegur alla ævi. Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir flutti erindið Api, c, d, e, f, g, ettir kemur h, i, k, ellimenn og einnig p. Atla é kúðar standi hjá, Ásmundur K. Örnólfsson nefndi fyrirlestur sinn Lestur leikskólamanns, Bryndís Loftsdóttir flutti fyrirlesturinn Sa/a islenskra barnabóka - þróun siðustu ára og brýnustu verkefni og Áslaug Jónsdóttir Velkominn í heiminn... - þankar um myndabókina, höfundinn og lesandann. Mæting var Ijómandi góð og umræður líflegar. Barnabókasetur stofnað Sá gleðilegi atburður varð hinn 4. febrúar síðastliðinn að barnabókasetur var stofnað við Háskólann á Akureyri eftir áralanga umræðu um mikilvægi slíks seturs. Stofnaðilar eru auk háskólans IBBY á íslandi, Amtsbókasafnið á Akureyri, Minjasafnið á Akureyri, Samtök barna- og unglingabókahöfunda, Félag fagfólks á skólasöfnum og fleiri. Barnabókasetrið er rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna og mun starfsemin einnig snúa að lestrarhvatningu og aukinni umræðu um barnabókmenntir. IBBY á fslandi óskar hinu nýja Barnabókasetri alls hins besta í framtíðinni og vonar að tilurð þess verði barnabókmenntunum og æsku landsins til mikilla heilla. Dagur barnabókarinnar Dagur barnabókarinnar er 2. apríl, fæðingardagur H.C. Andersens, og hafa alþjóðasamtök IBBY hvatt til þess að honum sé fagnað frá árinu 1967. íslandsdeild IBBY stóð af því tilefni fyrir hátíðahöldum um allt land fimmtudaginn 29. mars þegar ný smásaga Sögusteinshafans Ragnheiðar Gestsdóttur, Eins og i sögu, var lesin samtímis fyrir alla grunnskólanemendur landsins á aldrinum 6-16 ára. Sögunni var útvarpað á Rás 1 í sömu andrá og þannig sameinuðust tugir þúsunda hlustenda á öllum aldri í þessari stærstu sögustund landsins. Að lestri loknum áttu kennarar þess kost að vinna áfram með söguna með aðstoð kennsluleiðbeininga frá höfundinum, sem sérsniðnar voru að öllum stigum grunnskólans. Framtakið tókst fjarskalega vel, rétt eins og í fyrra þegar IBBY á fslandi stóð fyrir sambærilegri sögustund af þessum toga í fyrsta sinn.

x

Börn og menning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.