Fréttablaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 6
Það hefur verið talað um að konur hætti frekar í lögreglunni. Karl Gauti Hjalta- son, þingmaður Miðflokksins LÖGREGLUMÁL Karl Gauti Hjalta­ son, þingmaður Miðf lokksins, hefur lagt inn fyrirspurn til dóms­ málaráðherra um hvort nýútskrif­ aðir lögreglumenn gangi í lögregl­ una og sérstaklega hvort konur geri það. „Það hefur verið talað um að konur hætti frekar í lögreglunni. Að þær fari í lögregluna í eitt eða tvö ár en haldi svo í önnur störf, sérstaklega á þeim tíma þegar atvinnuleysi var ekki hátt,“ segir Karl Gauti sem sjálfur var skóla­ stjóri Lögregluskólans árin 2014 til 2017, áður en náminu var breytt og það f lutt til Háskólans á Akureyri. Karl Gauti segir ásókn kvenna í lögreglunámið sjálft síst minni en karla og þegar hann hafi verið skólastjóri hafi kynjahlutfall nem­ enda verið hnífjafnt. Hann segist ekki beint hafa áhyggjur af stöð­ unni en nauðsynlegt sé að komast að því hvort þær skili sér jafn vel í störfin og karlar. Karl Gauti hefur áður sent inn nokkrar fyrirspurnir um lögreglu­ mál, meðal annars um hvort nemar skili sér til embættanna, sem þeir hafa f lestir gert hingað til. Með fyrirspurnunum segir Karl Gauti fást betri innsýn í hvernig breytingin á náminu hafi gengið. Hann hafi heyrt ánægjuraddir og söknuð eftir gamla skólanum. Meðal þess sem Landssamband lögreglumanna, lögreglumenn og lögreglunemar hafa gagnrýnt hið nýja nám fyrir er skortur á starfs­ reynslu og kennslu á LÖKE tölvu­ kerfi lögreglunnar. Námið sé of fræðilegt og undirbúi nemendur ekki nægilega vel undir kaldan veruleika lögreglustarfa. Rektor Háskólans á Akureyri hefur hins vegar bent á að námið sé í stöðugri þróun. – khg Þingmaður vill vita hvort lögreglunemar skili sér til embættanna COVID-19 Þór ólfur Guðna son sótt­ varnalæknir segir at hyglis vert að sum þeirra sem greinast á landa­ mærunum hafi skilað inn nei kvæðu PCR­vott orði fyrir komuna en krafa er nú gerð um bæði nei kvætt PCR­ próf og tvö falda skimun við kom­ una til landsins. Nú verandi fyrir­ komu lag er í gildi til 1. maí. „Þetta er akkúrat sú reynsla og þekking sem við erum að af la okkur, hversu vel getum við treyst á þessi neikvæðu PCR­vottorð sem fólk er að koma með, og það er nátt­ úrulega áhugavert ef fólk er að koma með neikvætt PCR­vottorð en er samt að greinast hér á landamær­ unum,“ segir Þórólfur. Spurður hvort það séu dæmi um að slíkt gerist erlendis segir Þórólfur að það sé ekki hægt að segja til um það þar sem fyrirkomulagið hér á landi er mikið strangara en annars staðar. Í gær voru ellefu einstaklingar hér á landi í einangrun með virkt COVID­19 smit og sjö lágu inni á sjúkrahúsi. Enginn var á gjörgæslu. Enginn greindist innanlands sólar­ hringinn á undan og þrettán voru í sóttkví. Frá því að faraldurinn greindist fyrst hér á landi fyrir rétt rúmu ári hafa verið staðfest yfir sex þúsund smit og tekin hafa verið nærri 280 þúsund sýni innanlands. Tæplega 46 þúsund einstaklingar hafa lokið sóttkví og 327 hafa verið lögð inn á sjúkrahús, þar af eru um fimmtíu innlagnir á gjörgæslu. – fbl, bdj Smit þótt fólk framvísi PCR-vott orðum Þrátt fyrir vottorð eru komufarþegar skimaðir tvisvar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI R E Y K J A N E S B Æ R B æ j a r s t j ó r n Reykjanesbæjar skorar á stjórn­ völd að f lýta bólusetningu f lug­ liða og starfsfólks f lugfélaga sem á í samskiptum við farþega. Segir bæjarstjórnin að 40 prósent af efna­ hagsumsvifum á Reykjanessvæðinu megi rekja til Keflavíkurflugvallar. Telur bæjarstjórnin þetta myndu draga úr neikvæðum áhrifum COVID­19 á starfsemi flugvallarins. Samkvæmt könnunum erlendis líti ferðamenn helst til aðgerða gegn kórónaveirunni. – kpt Flugvallarfólk verði bólusett LÖGREGLUMÁL Pósturinn ítrekaði í gær að óprúttnir aðilar væru að senda tölvupósta í nafni fyrirtæk­ isins til að komast yfir kortaupp­ lýsingar. „Þetta hefur verið algengt síðasta árið og ekkert lát virðist vera á þessu,“ segir í tilkynningu Póstsins. Pósturinn segir mikilvægt að smella ekki á hlekki sem fylgja þessum póstum, ekki gefa persónu­ legar upplýsingar eða kortanúmer og fullvissa sig um að sending sé raunveruleg. Sendingarnúmer hjá Póstinum eru 13 stafir, þar af tveir bókstafir fremst og tveir aftast með talnarunu á milli. Margir svindlpóstar er með slík númer. Á heimasíðu Póstsins megi smella á „Finna sendingu“ og leita þar að sendingarnúmeri. – bb Enn varað við svikapóstum Pósturinn varar við svikapóstum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR HEILBRIGÐISMÁL Áheyrnarfull­ trúi foreldra barna í grunnskóla, Ragnheiður Davíðsdóttir, lýsti á sameiginlegum fundi skóla­ og frí­ stundaráðs og umhverfis­ og heil­ brigðisráðs á mánudag yfir van­ trausti á Verkís og ráðin tvö vegna framkvæmda við Fossvogsskóla. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, kynnti líðan barns sem hún þekkir til og er í 7. bekk í Fossvogsskóla á fundi borgarstjórnar á þriðjudag. Sú stúlka hefur verið fárveik í hart­ nær þrjú ár og átt í erfiðleikum með að vera í tímum. Ragnhildur sagði hana eiga erfitt með að leika við vini sína vegna höfuðverkja sem lýsa sér þannig að hún lamast vegna sársauka. „Stúlkan hefur kastað upp vegna sársauka og það hefur liðið yfir hana,“ sagði hún. Þá sé hún með mikla taugaverki í líkamanum og læknar sem hafa skoðað litlu stúlkuna séu allir sammála um að ástæðan sé myglan í skólanum. Fréttablaðið fékk póst frá afa barns í skólanum fyrir skömmu. Sá drengur var sagður hafa verið lífsglaður og ánægður en lífið sé nú orðið honum erfitt. Strákurinn hafi þurft að leita enn einu sinni til læknis fyrir skömmu, nú vegna sýkingar í augum. Undanfarin ár hafi verið honum erfið og hann sé kominn með f lókna sjúkrasögu. Margoft fengið óeðlilegar blóð­ nasir, verið rannsakaður í þaula, meðal annars höfuð skannað en ekkert óeðlilegt fundist. Hann sé oft frá skóla vegna maga­ og höfuð­ kvala. Á fundi borgarstjórnar kom fram að eitt barn hefði þegar hætt í skólanum og að tíu börn væru veik vegna ástands skólans. Ragnheiður segir að tölurnar séu allt of lágar. „Barnið sem hún Ragnhildur tal­ aði um er bara eitt barn af mörgum sem glímir við skelfilegar af leið­ ingar,“ segir Ragnheiður. „Það er fáránlegt að óeðlilegar blóðnasir þekkist meðal barna í sama skól­ anum. Þetta er bara einn strákur af mörgum börnum sem eru að þjást. Og ekki bara börnin því það er einn kennari kominn í veikindaleyfi.“ Stutt er síðan að foreldrar barna í Fossvogsskóla sendu frá sér yfir­ lýsingu þar sem kom fram að traust þeirra til borgarinnar væri brostið. Börnin séu ennþá veik, þriðja skóla­ veturinn í röð, og þar sé enn að finna hættulegar myglutegundir sem geta valdið krabbameini. Sigríður Ólafsdóttir, foreldri barns við Fossvogsskóla, segir að hún vilji gjarnan fá verkfræðistof­ una Ef lu að málinu í stað Verkís. Mannvit hafi leitað að myglu en ekki fundið og skólanum hafi svo verið lokað fjórum mánuðum síðar. „Ég held að þetta sé fullreynt hjá Verkís. Þeir hafa verið í þessu lengi og ekki tekist að laga þetta. Þess vegna treystum við foreldrar þeim ekki lengur,“ segir Sigríður sem kveður veikindasögurnar keim­ líkar. „Þetta er saga margra barna í Fossvogsskóla. Á fundi borgar­ stjórnar kom einnig fram að okkur foreldrum hefur verið lýst sem móðursjúkum, hysterískum með annarlegar hvatir á bak við þegar það eina sem við viljum er að börn­ in okkar séu heilbrigð í skólanum.“ benediktboas@frettabladid.is Foreldrar sagðir móðursjúkir Mörg börn í Fossvogsskóla eru sögð glíma við óútskýrðar blóðnasir. Liðið hefur yfir stúlku af sársauka og drengur þurft að fara oft til læknis. Móðir barns í skólanum segir foreldra sagða móðursjúka í borgarstjórn. Í Fossvogsskóla finnst mygla og börn hafa þegar hætt í skólanum því þau fundu fyrir vanlíðan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég held að þetta sé fullreynt hjá Verkís. Þeir hafa verið í þessu lengi og ekki tekist að laga þetta. Sigríður Ólafsdóttir, foreldri barns við Fossvogsskóla Stúlkan hefur kastað upp vegna sársauka og það hefur liðið yfir hana. Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins Tímapantanir á opticalstudio.is og í síma 511 5800 SMÁRALIND • HAFNARTORG • KEFLAVÍK Sjónmælingar eru okkar fag 4 . M A R S 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.