Fréttablaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 26
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Húðflúr geta verið lítið eða stór listaverk á líkamanum. Sumir eru þaktir húðflúri
svo varla sést lengur í venjulega
húð. Oft hefur húðflúrið einhverja
sögu að segja en hjá öðrum er
bókstaflega heilt meistaraverk á
líkamanum. Við fundum nokkrar
myndir af vel skreyttum karl-
mönnum en konur eru ekki síður
með húðflúr. Rihanna, Lady Gaga,
Angelina Jolie, Scarlett Johansson,
Miley Cyrus og margar fleiri hafa
fengið sér minni eða stærri húð-
flúr.
Húðflúrtískan er síður en svo í
rénun, hefur reyndar sjaldan verið
vinsælli. Húðflúrin eru upphaflega
sögð komin frá frumbyggjum en
oft voru þau gerð af trúarástæðum.
Má telja víst að húðflúr hafi verið
gerð í meira en 5.000 ár. Húðflúr
hafa greinst á elstu mannvistar-
leifum.
Húðflúriðnaðurinn er alltaf að
vaxa og sífellt eru gerðar meiri
kröfur til listrænna hæfileika húð-
flúrara. Í raun eru engin takmörk
fyrir því hvað fólk vill skreyta sig
með á líkamanum. Sagt er að húð-
flúrsstofa hafi verið til í Jermyn
Street í London á níunda ára-
tugnum sem var lúxus tískuhverfi.
Var hún sögð þjóna yfirstéttinni.
Hér áður fyrr voru engu að síður
nokkrar fordómar gegn húðflúri.
Japanir merktu til dæmis fanga
með húðflúri. Þá munu nasistar
hafa notað húðflúr í síðari heims-
styrjöldinni til að merkja fólk með
tölum.
Vinsældir húðflúrs í dag eru
ekki síst vegna þess hversu margar
opinberar persónur hafa skreytt
líkama sinn, má þar nefna stjörn-
urnar í Hollywood og heimsfræga
knattspyrnumenn og þá til dæmis
David Beckham. Körfuboltastjörn-
ur í Bandaríkjunum hafa sömu-
leiðis verið duglegar að skreyta sig.
Húðflúr sjaldan
verið vinsælla
Húðflúr virðist vera orðið stór hluti af nútíma
menningu. Fræga fólkið er ekki undanskilið
þegar kemur að því að skreyta líkamann með
listrænum hætti. Það er þó misjafnt hversu
mikið meistaraverk verður til með húðflúri.
Áhrifavaldur
inn Chris
Lavish hefur
meira en 33
þúsund fylgj
endur á Insta
gram og hefur
verið vinsæll
sem módel í
New York þrátt
fyrir yfirgengi
legar húð
skreytingar.
Chris er með
mikla ástríðu
fyrir húðflúri
og hefur sagt
sögur af þeim
í viðtölum
bæði í Banda
ríkjunum og
Bretlandi.
Luigi Favoloso, ítalskur leikari
og fyrirsæta, þykir einstakur
sjarmör. Hér er hann mættur
á kvikmyndahátíð í Feneyjum
síðastliðið haust.
AJ McLean er bandarískur
söngvari, lagahöfundur leikari,
dansari og fyrirsæta. Hann söng
með Backstreet Boys og vekur
oft athygli fyrir litríkt húðflúr.
Söngvarinn Justin Bieber hefur
fagurlega skreyttan líkama og er
ekkert að fela það.
Colson Baker, betur þekktur sem
Machine Gun Kelly (MGK), er
bandarískur söngvari, rappari,
lagahöfundur og leikari. Hann
hefur gefið út nokkrar plötur
auk þess að leika í kvikmyndum.
Hann byrjaði söngferil sinn á
unglingsárum og vekur jafnan
athygli þar sem hann kemur.
Þetta húðflúr af körfuboltahetj
unni Kobe Bryant og dóttur hans
Gianna ber sannur aðdáandi
leikmannsins. Hann lét húð
flúra sig eftir að feðginin fórust
í hörmulegu flugslysi í janúar
í fyrra. Ekki kemur fram nafn
mannsiná myndinni.
Alex Sacha
er þekktur
húðflúrari
og þykir gera
einstök lista
verk á fólk,
sérstaklega
er hann fær
í víkinga
tattúi. Með
honum er
Jessica
Alexandra
Betancourth.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
30%
AF VÖLDUM VÖRUM
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . M A R S 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R