Fréttablaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 24
Femínískur útsaumur Bjarg-eyjar Önnu Guðbrandsdóttur hefur vakið mikla athygli meðal vina og fjölskyldumeð- lima undanfarna mánuði en hún deilir myndum af verkum sínum á samfélagsmiðlum. Þar fá meðal annars þekkt slagorð á borð við „Konur lifa ekki á þakklætinu“, „En þori ég, vil ég, get ég? Já ég þori, get og vil“, „Smash the patriarchy“, „Women belong in all places where decisions are being made“ að njóta sín auk skemmtilegra orðaleikja úr þekktum dægurlagatextum á borð við „Girls just wanna have funding for scientific researsch“. Þrátt fyrir nýfengna athygli segist hún vera nýgræðingur í saumaskapnum. „Ég byrjaði fyrir tilviljun í október á síðasta ári. Systurdætur mínar voru að sauma út jólapúða sem ég kláraði þegar þær misstu áhugann og þá fann ég hvað ég hafði gaman af sauma- skapnum. Ég hafði ekki saumað út síðan í grunnskóla en oft langað til að gera eitthvað í höndunum. Þarna fann ég loks handavinnu sem hentaði mér og byrjaði á dúllulegri jólamynd en fann strax að mig langaði ekki að sauma út hefðbundnar myndir.“ Fínlegt og ósvífið Það sem henni finnst skemmti- Harðorð slagorð á fínlegu handverki Bjargey Anna Guðbrandsdóttir hefur vart undan við að taka við pöntunum á femínískum út- saumi. Hún saumar út þekkt slagorð og verkin hafa vakið mikla athygli. Myndirnar eru misjafnar. Bjargey Anna Guðbrandsdóttir saumar út skemmtilegar femínískar myndir. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Hér má sjá sýnishorn af þeim myndum sem Bjargey hefur saumað. #feministcrossstitch, og leitaði að uppskriftum út frá þeim. „Ég byrjaði bara að gúggla og fyrsta settið sem ég pantaði var „Smash the Patriarchy“. Í framhaldinu pantaði ég mér bókina Feminist Cross-stitch sem inniheldur fjöl- margar uppskriftir með femín- ískum slagorðum á ensku.“ Hugmyndir úr öllum áttum Það er misjafnt hvernig hug- myndavinnan fer fram. „Stundum finn ég bara uppskrift með f lottu slagorði og sauma það út. En svo langar mig líka að sauma á íslensku og þá hef ég leitað að slagorðum úr íslenskri kvenna- baráttu. Ég hef notað munstur úr Feminist Cross-stitch sem bakgrunn og útfært slagorðin á íslensku í stað þeirra ensku. Núna er ég að skoða gömul íslensk munstur og er að vinna að mynd úr því og setningunni „Engin hornkerling vil ég vera“ úr Njálu. Svo finnst mér gaman að sauma út orðatiltæki sem vinir og fjölskylda nota og segja dagsdag- lega en eru ekki endilega skrifuð niður neins staðar. Þannig verður útsaumurinn persónulegri.“ Frábærar viðtökur Viðtökurnar hafa að hennar sögn verið frábærar eftir að hún hóf að birta myndir af saumaskapnum á samfélagsmiðlum. „Vinkonur og kunningjakonur fóru mjög fljótlega að spyrjast fyrir um myndir og núna hef ég varla undan. Mér finnst skemmtilegast að eiga hannyrðaskipti en ég hef bæði saumað mynd fyrir vettlinga- par og mynd fyrir húfu og kraga. Þannig lifir hannyrðahagkerfið góðu lífi.“ Sjálf er Bjargey sveitastelpa að eigin sögn sem hefur búið í borginni meira en hálfa ævina. „Ég er menntuð í líffræði og stjórnun og hef unnið í Háskóla Íslands í tíu ár. Þótt ég búi ein á ég risastóra fjölskyldu úti á landi og í útlöndum, elska að ganga á fjöll, bæði á eftir kindum og mér til ánægju og yndisauka. Ég ligg í leti á milli þess sem ég kem hlutunum í verk en ég tók meðal annars þátt í stofnun Samtaka kvenna í vísindum og aðstoðaði nýlega við að koma Hinsegin Vesturlandi á laggirnar.“ Flottar skyrtur Verð 9.900 kr. Stærð 36 - 46. Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Opið: Virkir dagar 11-18 | Laugardagar 12-16 Kíkið á myndir og verð á Facebook 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . M A R S 2 0 2 1 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.