Fréttablaðið - 04.03.2021, Blaðsíða 10
Frá fjármálahruninu
hafa stóru viðskiptabank-
arnir verið með sjö stjórnar-
menn hver.
Guðmundur Hafsteinsson, stjórnarmaður í Icelandair Group og fyrrverandi yfirmaður vöruþróunar Google Assistant,
segir ótímabært að skipta út stjórn
armönnum. Samsetning núverandi
stjórnar eigi vel við þær krefjandi
aðstæður sem f lugfélagið er í og
mikilvægt sé að stjórnin fái ráðrúm
til að horfa langt fram í tímann.
„Ég trúi því að Icelandair muni
koma vel undan vetri en þó sérstak
lega ef það er sterk stjórn sem leiðir
félagið áfram og fær þann tíma sem
hún þarf til að gera það,“ segir Guð
mundur.
Á aðalfundi Icelandair Group,
sem verður haldinn 12. mars, verður
kosið til stjórnar. Tilnefningar
nefnd félagsins hefur nú þegar birt
ýtarlega skýrslu þar sem lagt er til
að stjórnin, sem er skipuð Úlfari
Steindórssyni, Guðmundi Haf
steinssyni, Svöfu Grönfeldt, Ninu
Jonsson og John F. Thomas, haldist
óbreytt.
Eftir samráð við hluthafa, stjórn
og helstu stjórnendur Icelandair
Group setti nefndin fram við
mið um þá eiginleika sem voru
taldir eftirsóknarverðir við val á
einstökum stjórnarmönnum og
skipan stjórnar í heild. Helstu við
miðin voru reynsla af alþjóðlegum
flugrekstri, leiðakerfum, flugflota
stjórnun, söluleiðum, innleiðingu
stefnu og stafrænni þróun.
Steinn Logi Björnsson, fyrrver
andi forstjóri Bláfugls, er á meðal
frambjóðenda til stjórnar. Steinn
Logi, sem starfaði í um 20 ár hjá
Icelandair Group, sagði í viðtali
við ViðskiptaMoggann í síðustu
viku að hann teldi sig mæta skil
yrðunum sem tilnefningarnefndin
tiltók betur en frambjóðendurnir
sem nefndin tilnefndi.
Þá benti hann á að stjórnin hefði
verið valin þegar hluthafar voru
þrjú þúsund en ekki 14 þúsund.
„Því er furðulegt að sjá ekki tilefni
til neinna breytinga á stjórninni,“
bætti hann við.
Annar frambjóðandi til stjórnar
Icelandair Group er Þórunn Reynis
dóttir, forstjóri Ferðaskrifstofu
Íslands, sem er í eigu Pálma Har
aldssonar. Pálmi er einn stærsti
einkafjárfestirinn í íslenska f lug
félaginu með að minnsta kosti 2
prósent í gegnum félagið Sólvelli en
einnig á hann hlut í gegnum Ferða
skrifstofu Íslands. Ljóst er að Pálmi
vill sjá breytingar á stjórn Iceland
air á aðalfundinum.
Aðrir stórir einkafjárfestar í
Icelandair Group, hjónin Bogi Þór
Siguroddsson og Linda Björk Ólafs
dóttir, sem eiga um 2,3 prósenta
hlut í gegnum félagið Bóksal, styðja
hins vegar óbreytta stjórn undir
áframhaldandi formennsku Úlfars
Steindórssonar.
Samkvæmt heimildum Frétta
blaðsins hafa Steinn Logi og Þórunn
leitað til stærstu hluthafa Iceland
air, einkum lífeyrissjóða, til þess
að afla stuðnings fyrir margfeldis
kosningu. Til að knýja fram marg
feldiskosningu, sem myndi auka
líkur á kjöri þeirra töluvert, þurfa
Steinn Logi og Þórunn stuðning
hluthafa sem samanlagt ráða yfir
minnst 10 prósenta hlut.
Guðmundur, sem hefur setið í
stjórn Icelandair Group í þrjú ár,
bendir á að núverandi stjórn sé að
hluta til skipuð af fólki með víðtæka
alþjóðlega reynslu af f lugrekstri.
Hann nefnir sérstaklega John F.
Thomas og Ninu Jonsson en þau
komu ný inn í stjórnina á síðasta ári.
„Þau hafa reynst félaginu ómet
anlega og eru rétt að byrja. Það er
sjaldgæft að íslenskt fyrirtæki hafi
aðgang að jafn víðtækri og alþjóð
legri reynslu eins og er í núverandi
stjórn,“ segir Guðmundur.
Einnig segir hann mikilvægt að
stjórnarmenn hafi ólíkan bakgrunn
og mismunandi sérfræðikunnáttu
þannig að stjórnin sé fær um að
takast á við krefjandi aðstæður. Þá
nefnir Guðmundur að núverandi
stjórn í þessari mynd hafi einungis
starfað saman í eitt ár.
„Stjórnin kom fyrst saman um
það leyti sem COVID var að byrja
og hefur náð að leiða félagið farsæl
lega í gegnum fordæmalausa tíma.
Í þessu samhengi má nefna að flest
sambærileg flugfélög í Evrópu hafa
fengið mun meiri aðstoð frá stjórn
völdum en Icelandair,“ segir Guð
mundur.
Viðskiptablaðið hafði nýlega eftir
John Thomas að honum þætti „örlít
ið sérstakt“ að vera aðeins kjörinn
til eins árs í senn. Hann benti á að
í f lestum stjórnum erlendis væri
skipunin til að lágmarki fimm ára
í senn enda væri hlutverk stjórnar
manna að horfa á stóru myndina og
móta framtíðarsýn.
Guðmundur tekur í sama streng.
„Mörg krefjandi verkefni eru fram
undan sem er búið er að undir
búa vel og mikilvægt að haldið sé
vel utan um á næstu mánuðum og
árum. Það er alls ekki best fyrir
félagið að skipta út fólki á þessum
tímapunkti. Stjórnin þarf ráðrúm
til þess að horfa langt fram í tím
ann.“
Hluthafahópur Icelandair tók
miklum breytingum eftir hluta
fjárútboð félagsins í september. Á
sama tíma og hluthöfum fjölgaði
úr þremur þúsundum í 14 þúsund
minnkaði samanlagður eignarhlut
ur lífeyrissjóða úr 53 prósentum
niður í liðlega 25 prósent.
Spurður hvort svo mikil breyting
á hluthafahópnum sé tilefni til þess
að gera breytingar á stjórninni segir
Guðmundur svo ekki vera. „Það er
ekki samasemmerki þarna á milli.
Fjölgun hluthafa, sem er jákvæð í
alla staði, þýðir ekki að samsetning
og hæfni stjórnar eigi síður við, við
þær krefjandi aðstæður sem félagið
er í,“ segir Guðmundur.
thorsteinn@frettabladid.is
Varar við ótímabærri uppstokkun
Stjórnarmaður í Icelandair Group segir ótímabært að gera breytingar á stjórninni á næsta aðalfundi. Samsetning sitjandi stjórnar
eigi vel við í þeim krefjandi aðstæðum sem flugfélagið er í. Tveir frambjóðendur reyna að afla stuðnings fyrir margfeldiskosningu.
Tilnefningarnefnd Icelandair Group lagði til að stjórn félagsins yrði óbreytt. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fjölgun hluthafa,
sem er jákvæð í alla
staði, þýðir ekki að sam-
setning og hæfni stjórnar
eigi síður við, við þær
krefjandi aðstæður sem
félagið er í.
Guðmundur
Hafsteinsson,
stjórnarmaður
Icelandair Group
VR • Kringlunni 7 • 103 Reykjavík • Sími 510 1700 • vr@vr.is • vr.is
Allsherjaratkvæðagreiðsla VR
Atkvæðagreiðslan er rafræn, þú finnur slóð á hana á vr.is.
Valið er milli tveggja frambjóðenda til formanns VR og
11 frambjóðenda til stjórnar VR. Merkja skal við mest sjö
frambjóðendur í stjórnarkosningum. Ef þú hefur ekki Íslykil
eða rafræn skilríki sækir þú um á island.is.
Frambjóðendur til
formanns, í stafrófsröð
Helga Guðrún Jónasdóttir
Ragnar Þór Ingólfsson
Frambjóðendur til stjórnar,
í stafrófsröð
Arnþór Sigurðsson
Harpa Sævarsdóttir
Helga Ingólfsdóttir
Jón Steinar Brynjarsson
Jónas Yngvi Ásgrímsson
Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir
Sigmundur Halldórsson
Sigríður Hallgrímsdóttir
Sigurður Sigfússon
Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir
Þórir Hilmarsson
Kjörstjórn VR | 4. mars 2021
Hvernig kýst þú formann og stjórn VR
Smelltu á „Kosningar í VR 2021” á vr.is
Skráðu þig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum
Atkvæðaseðill opnast með upplýsingum um
hvernig þú átt að kjósa
1
2
3
Allsherjaratkvæðagreiðsla meðal félagsmanna
VR vegna kjörs formanns og stjórnar VR, skv. 20.
gr. laga félagsins, hefst kl. 09.00 mánudaginn
8. mars nk. og lýkur kl. 12.00 á hádegi
föstudaginn 12. mars 2021.
Stjór n A r ion banka hef ur ákveðið að kosningu stjórnar bankans verði þannig háttað að
aðalstjórn verði skipuð fimm ein
staklingum og varastjórn tveimur.
Þannig fækkar um tvo í stjórn
bankans, en frá fjármálahruninu
hafa stóru viðskiptabankarnir verið
með sjö stjórnarmenn hver.
Þetta kemur fram í endanlegum
tillögum fyrir aðalfund Arion
banka sem verður haldinn um
miðjan mars. Er ákvörðunin sögð
byggja á tillögu tilnefningarnefndar
bankans.
Stjórn Arion banka skipa Brynj
ólfur Bjarnason formaður, Herdís
Dröfn Fjeldsted, Gunnar Sturluson,
Liv Fiksdahl, Paul Horner, Renier
Lemmens og Steinunn Kristín
Þórðardóttir.
Herdís Dröfn hefur hins vegar
ekki tekið þátt í störfum stjórnar
innar frá því að hún tók við sem
forstjóri Valitor, dótturfélags Arion
banka, í nóvember. Því er ljóst að
hún og annar sitjandi stjórnarmað
ur munu víkja úr stjórn bankans á
aðalfundinum.
Þá leggur stjórn bankans einn
ig til við aðalfund, að stjórn verði
veitt heimild til breytinga á áður
gerðri kaupréttaráætlun þannig
að félaginu verði heimilað að gera
kaupréttarsamninga við fastráðna
starfsmenn félagsins um kaup á
hlutum í bankanum fyrir allt að 1,5
milljónir króna á ári, í stað núver
andi 600 þúsunda króna árlegs
hámarks. – þfh
Fækkar um tvo í stjórn
Aðalfundur Arion banka verður haldinn um miðjan mars.
MARKAÐURINN
4 . M A R S 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð