Fréttablaðið - 04.03.2021, Qupperneq 44
ÉG VEIT EKKI HVAÐ
ÞAÐ ER VIÐ MIG EN
ÆTLI ÉG SÉ EKKI BARA ALGJÖR
BÚÁLFUR Í GRUNNINN.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þau Á r ni Beinteinn Árnason og Þórdís Þorfinnsdóttir fara með aðalhlutverkin í uppsetning u Leik félags Akureyrar á Benedikt
búálfi. Þau voru saman í bekk í
Listaháskóla Íslands og eru til
tölulega nýútskifuð úr leiklistar
náminu.
„Það var alveg frábær bekkur,
ótrúlegur hópur af hæfileikaríkum
og skemmtilegum leikurum. Við
vorum miklir vinir og unnum mjög
vel saman. Þetta var dýrmætur
tími,“ segir Þórdís, oftast kölluð
Dísa.
„Við Dísa höfum unnið saman
í atvinnuleikhúsi síðan 2005. Við
eigum því bæði sextán ára leikaf
mæli í ár,“ segir Árni.
„Það er því óhætt að segja að Árni
Beinteinn hafi verið minn nánasti
samstarfsmaður til fjölda ára. Núna
síðast lékum við saman hér fyrir
norðan í söngleiknum Vorið vaknar
(e. Spring awakening) síðasta vor
sem var ótrúlega skemmtilegt ferli,“
segir Dísa.
Magnaður ævintýraheimur
Bæði segjast þau einstaklega spennt
fyrir uppsetningunni á Benedikt
búálfi.
„Fólk í kringum okkur er mjög
áhugasamt enda er þetta án efa
einn ástsælasti íslenski fjölskyldu
söngleikur síðari ára. Umtalið er
mikið enda þekkja f lestir verkið
síðan það var sett upp fyrir tæpum
tuttugu árum. Þessi magnaði ævin
týraheimur og stórskemmtilega
tónlistin hafa lifað góðu lífi síðan
þá,“ segir Dísa.
„Verkið fjallar um Benedikt búálf
sem er sendur í leiðangur til mann
heima til að sækja Dídí, sjö ára fót
boltastelpu. Upp er komið skelfi
legt hættuástand í Álf heimum
og mannabarnið Dídí er eina von
álfannna. Saman fara þau í ferðalag
um Álf heima til að finna út hvar
Tóti tannálfur er niður kominn, en
hann hefur horfið sporlaust. Með
þeim í för slæst vígalegur dreki
og þeim mæta ýmsar áskoranir á
leiðinni. Það eru litríkar persónur
og töfrandi tónlist glæða sýning
una miklu lífi svo allir ættu að geta
notið,“ segir Árni.
„Við tjöldum öllu til og það er
óhætt að segja að við tökum þetta
skrefinu lengra en áður hefur verið
gert. Listræna teymið í kringum
sýninguna er gífurlega metnaðar
fullt og hvergi slegið af kröfunum.
Þorvaldur Bjarni hefur útfært alla
tónlistina upp á nýtt og bætt við
nýjum frábærum lögum sem eiga
örugglega eftir að vekja mikla
lukku. Karl Ágúst steig líka inn og
uppfærði handritið sem gerir sög
una enn skýrari og margslungnari.
Svo erum við náttúrulega með söng
leikjagoðsögnina Lee Proud, sem
sér um dans og sviðshreyfingar. Allt
sem sá maður snertir breytist í gull,“
segir Dísa.
„Við byggjum þetta auðvitað allt
á þeim góða grunni sem Ólafur
Gunnar Guðlaugsson, skapari sög
unnar, hefur búið til. Það er alveg
einstaklega fallegur heimur og
boðskapurinn góður. Fyrri útgáfan
heppnaðist mjög vel og stendur
vissulega fyrir sínu en þessi upp
færsla verður gjörólík. Vala Fann
ell leikstýrir sýningunni og gerir
það einstaklega vel eins og hennar
er von og vísa. Þetta er í fyrsta sinn
sem við vinnum með henni og
hennar fyrsta verk í atvinnuleikhúsi
og það er óhætt að segja að hún sé
leikstjóri á hraðri uppleið. Vonandi
fáum við tækifæri til að vinna með
henni aftur,“ segir Árni.
Algjör búálfur
Frá því að ljóst var að Benedikt
búálfur yrði settur á svið var fólk
í kringum Árna byrjað að segja að
hann væri tilvalinn búálfur.
„Ég veit ekki hvað það er við mig
en ætli ég sé ekki bara algjör búálfur
í grunninn. Ég tengi líka mikið við
rauða hárið því ég hef leikið rauð
hærðar persónur frá því að ég var
lítill snáði, til dæmis Vinnie í „Shut
your face Vinnie“sketsunum í
Stelpunum,“ segir hann.
„Ég myndi líka segja að rauða hár
kollan fari þér einstaklega vel. Svo
ertu líka bara svo hrikalega vina
legur, þú ert að minnsta kosti eini
maðurinn sem ég myndi treysta
fyrir sjö ára barni í svaðilför til Álf
heima,“ segir Dísa.
„Dísa er líka eina þrítuga konan
sem fólk myndi trúa að væri sjö ára
á sviði. Það er ótrúlegt hvernig hún
hreyfir sig,“ bæti Árni við og þau
hlæja.
„Árni er minn helsti peppari
eins og þú heyrir. En ég tengi líka
vel við Dídí sem karakter. Ég er
reyndar rosalega langt frá því að
vera einhver fótboltastelpa, enda
er mér meinilla við bolta eins og
Dídí reyndar líka. En Dídí skortir
stundum sjálfstraust og það er eitt
hvað sem ég á auðvelt með að tengja
við því auðvitað á maður það til að
missa stundum trú á sjálfum sér,
sérstaklega í leikhúsbransanum
þegar tækifærin eru ekki á hverju
strái. En í gegnum verkið fylgjast
áhorfendur með því hvernig Dídí
tekst á við hræðsluna og öðlast hug
rekki,“ segir Dísa.
Þau segja börn geta verið virki
lega krefjandi áhorfendur og gefi
oftast engan afslátt.
„Við erum bæði vön að leika fyrir
allan aldur og bestu fjölskyldusýn
ingarnar eru þær sem allir geta haft
gaman af,“ segir Dísa.
„Benedikt búálfur spannar allan
tilfinningaskalann. Þó að gleðin sé
auðvitað mikil þá kynnumst við
líka myrkum persónum. Það má
alveg búast við því að yngstu áhorf
endurnir muni upplifa smá hræðslu
en í öruggu umhverfi leikhússins
ætti það nú bara að vera eftirminni
legt og áhrifaríkt. Svo fer auðvitað
allt vel að lokum,“ segir Árni.
„Rólegur að spilla endanum fyrir
öllum, Árni,“ segi Þórdís og hlær.
Miða á Benedikt Búálf er hægt að
nálgast á tix.is.
steingerdur@frettabladid.is
Sjö ára í svaðilför með
búálfi til mannheima
Árni Beinteinn og Þórdís fara með helstu hlutverk í uppsetningu
Leikfélags Akureyrar á leikritinu ástsæla Benedikt búálfi. Þau eru
sammála um að magnað teymi standi að baki uppsetningunni.
Árni Beinteinn og Þórdís voru saman í bekk í leiklistarnámi við Listaháskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING á Hringbraut
og hringbraut.is
Fylgstu með!
Í kvöld
á Hringbraut
Átökin í Eyjum
eru persónuleg
Páll Magnússon alþingismaður,
fyrrverandi útvarpsstjóri, fréttastjóri og
gröfustjóri í Eyjum, lætur allt flakka í
hispurslausu samtali sínu við Sigmund Erni í
Mannamáli í kvöld. Hann ræðir átökin í Eyjum,
klofninginn, fréttastjóraárin, Stöðvar 2
ævintýrið, hlutverk RÚV, drykkjuna, sáttina og
nafnbótina „að geta unnið með Kára Stefáns“.
Ekki missa af Mannamáli
í kvöld kl. 20.00.
4 . M A R S 2 0 2 1 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð