Fréttablaðið - 04.03.2021, Page 48
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Kolbeins
Marteinssonar
BAKÞANKAR
Það er erfitt að spá, sérstak-lega um framtíðina. Besta dæmið um slíkt eru vinsælar
kvikmyndir sem gerðar voru fyrir
20-30 árum þar sem framtíðin sem
við lifum núna var hin furðu-
legasta. Bílar f lugu og fólk borðaði
pillur í stað matar. Enginn virtist
sjá fyrir samtengingu tölva um
heim allan eða ofurnotkun sím-
tækja með skjái og þær þjóðfélags-
breytingar sem því hafa fylgt.
Mannkynið er nefnilega einkar
sjálf hverft og trúir því statt og
stöðugt að þeir tímar sem það
lifir hverju sinni séu nánast
endastöð samfélagslegs þroska.
Framtíðin muni því lítið breytast,
nema kannski verða aðeins
tæknilegri. Þannig fannst fólki á
miðöldum örugglega álíka sjálf-
sagt að brenna fólk lifandi fyrir
meinta galdra og okkur þykir í
dag eðlilegt að láta stærstu fyrir-
tæki heims safna saman nánast
öllum þeim upplýsingum sem
þeim svo sýnist um okkur. Hvað
við skoðum eða kaupum á Inter-
netinu og hverja við umgöngumst.
Næst þegar þú horfir á barnið
þitt á YouTube skaltu hafa í
huga að samtímis eru öf lugustu
tölvur í heimi knúnar af gervi-
greind beintengdar við heila þess.
Þeirra eina verkefni er að halda
áhorfinu áfram með stöðugum
uppástungum um ný myndbönd
og auglýsingar. Sama á við um
samfélagsmiðla sem eru nánast
allir í eigu sama fyrirtækis. Fyrir-
tækis sem hefur sýnt að því er
skítsama um af leiðingar falsfrétta
og misnotkun á gögnum hvar sem
það stingur niður fæti. Ég ætla því
að spá því að í framtíðinni verði
ofangreind starfsemi takmörkuð
verulega og réttur okkar sem for-
eldra og neytanda verði tryggður,
þannig að við stjórnum því sjálf
hvernig eða hvort tæknifyrir-
tækin safna um okkur gögnum.
En þangað til.
Nútíminn
25%
afsláttur
inniljós
Verslaðu á netinu byko.is
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
25%
afsláttur
20%
afsláttur
30%
afsláttur
pottar &
pönnur
regnföt &
stígvél
snjóþotur&
snjóskóflur
20%
afsláttur
áltröppur
& stigar
D-vítamínbætt
Léttmjólk
– eins og hollur
sólargeisli