Fréttablaðið - 03.04.2021, Side 6
Eldhús-
innréttingar
Vandaðar og stílhreinar innréttingar frá franska fyrirtækinu SCHMIDT.
5 ára ábyrgð. Innréttingarnar koma fullsamsettar til landsins
Komdu við í sýningarsal okkar að Dalvegi og ræddu
við sérfræðinga Parka og fáðu faglega ráðgjöf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570
H E I L B R I G Ð I S M Á L Happd r æt t i
Háskólans hefur svarað bréfi Sam-
taka áhugafólks um spilafíkn og
hafnað því að stunda ólögmæta
starfsemi með rekstri spilakassa.
Verður ekki fallist á kröfur sam-
takanna um að slíta samstarfi við
félagið Háspennu ehf. og loka spila-
kössunum.
Eins og Fréttablaðið greindi frá
á miðvikudag vísuðu samtökin til
þess að refsivert væri að gera sér
fjárhættuspil að atvinnu. Happ-
drætti Háskólans væri á undanþágu
frá lögum og komið langt út fyrir
upphaf legar heimildir. Háspenna
ehf. væri skráð sem félag í fjár-
hættu- og veðlánastarfsemi og hefði
hagnast um 120 milljónir króna á
árunum 2018 til 2019.
Í svarbréf i lögmanns Happ-
drættis Háskólans er sagt að um
misskilning sé að ræða hvað varðar
samstarfið við Háspennu ehf. „Rétt
er að leiðrétta þann misskilning og
benda á að þrátt fyrir að umbjóð-
andi minn semji um hýsingu happ-
drættisvéla sinna við rekstraraðila
veitingastaða, greiðasala og ann-
ars konar staða og greiði fyrir þá
aðstöðu þá er rekstur vélanna í
höndum umbjóðanda míns sjálfs,“
segir í bréfinu. „Hefur það enga þýð-
ingu í þessu efni hvernig umræddir
rekstraraðilar kjósa að skrá félög sín
í fyrirtækjaskrá.“
Þá hafnar Happdrætti Háskól-
ans því að starfsemin sé á undan-
þágu og ólögleg. Sérstök lög um
happdrættið frá árinu 1973 gangi
framar ákvæðum hegningarlaga
um fjárhættuspil. „Þá er að hálfu
umbjóðanda míns mótmælt órök-
studdum fullyrðingum í bréfi þínu
um að rekstur umbjóðanda míns
sé „spilavíti“ eða sé á nokkurn hátt
kominn út fyrir heimildir fyrir
starfseminni,“ segir í bréfinu. – khg
Happdrætti Háskólans hafnar ásökunum um ólöglegt spilavíti
Hefur það enga
þýðingu í þessu efni
hvernig umræddir rekstrar-
aðilar kjósa að skrá félög sín
í fyrirtækjaskrá.
Svarbréf Happdrættis Háskólans
TRÚMÁL Eins saga – eitt skref, verk-
efni Þjóðkirkjunnar með aðkomu
Samtakanna ‘78 er langt á veg komið.
Sögum hinsegin fólks af andstöðu og
útskúfun innan kirkjunnar hefur
verið safnað í allan vetur og brátt
verða þær birtar. Söfnun sagnanna
reyndist afar tilfinningaþrungið
verkefni og hafði fólk þörf fyrir að
láta sannleikann koma í ljós.
„Oftast nær snúast sögurnar ekki
um einstaka presta heldur and-
rúmsloft útskúfunar innan kirkj-
unnar. Það eru mörg dæmi um að
hinsegin fólk hafi skráð sig úr Þjóð-
kirkjunni þrátt fyrir að hafa þörf
fyrir trúarlíf,“ segir Bjarndís Helga
Tómasdóttir verkefnisstjóri sem
ráðin var af samtökunum til þess að
safna sögunum. Fólk hafi upplifað
sig óvelkomið í kirkjunni.
Þjóðkirkjan kynnti verkefnið á
Hinsegin dögum í ágúst sem þátt í
því að græða sárin sem hún hafði
veitt hinsegin fólki. Meðal annars
með beinni andstöðu við réttindi
samk y nhneigðra. Upphaf lega
stóð til að safna sögunum skrif-
lega. Fljótlega þróaðist verkefnið á
þann hátt að safnað var sögum með
munnlegum viðtölum því fólk var
ekki endilega tilbúið til skrifta.
„Þetta er tilfinningaþrungið efni
og bæði sárt og erfitt fyrir marga.
Fólk hefur þurft tíma til að velta því
fyrir sér hvort það sé tilbúið að deila
reynslu sinni. En fólk hefur þörf til
að láta heyra í sér, vitandi að á það
verður hlustað,“ segir Bjarndís.
Fólk er hins vegar ekki allt eins, hjá
sumum braust til dæmis út reiði en
þögn hjá öðrum.
Umræddar sögur spanna 20 til 30
ára tímabil, þær elstu frá árinu 1980
eða þar um kring og þær yngstu
ná fram yfir aldamótin. Sögurnar
eru vitnisburður um erfiða fortíð,
sumar nafnlausar en aðrar undir
nafni. Bjarndís segir mikilvægt að
þessu verkefni hafi verið hrundið
af stað því annars gæti þessi vitnis-
burður glatast. „Þegar enginn hlust-
ar á þig fennir yfir þessar sögur,“
segir hún.
Hildur Hörpudóttir, sviðsstjóri
fræðslusviðs Biskupsstofu, segir
að sögunum verði miðlað til fólks
í kirkjum landsins með vísun í til-
gang verkefnisins, það er að læra af
sögu misréttis innan kirkjunnar.
„Við erum skoða núna nokkrar
leiðir til að miðla þessum sögum
á fallegan, hreinskilinn og áhrifa-
ríkan hátt,“ segir hún og verða þær
leiðir kynntar von bráðar.
Auk þess verður haldið málþing
um verkefnið. Upphaf lega stóð
til að halda það í apríl en vegna
aðstæðna í samfélaginu vegna
faraldursins þurfti Þjóðkirkjan
að fresta því. „Við bindum miklar
vonir við þetta verkefni og erum
stolt af því,“ segir Hildur.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Söfnun sagna um misrétti
reyndist tilfinningaþrungin
Í vor verða birtar sögur sem Þjóðkirkjan og Samtökin ‘78 hafa safnað um misrétti og útskúfun hinsegin
fólks innan kirkjunnar. Verkefnið er þáttur í því að græða þau sár sem veitt voru og verður afraksturinn
kynntur í kirkjum landsins. Verkefnisstjóri segir upprifjunina hafa verið sára og erfiða fyrir marga.
Hinsegin fólk fann sig lengi óvelkomið innan kirkjunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Það eru mörg dæmi
um að hinsegin fólk
hafi skráð sig úr Þjóðkirkj-
unni þrátt fyrir að
hafa þörf fyrir
trúarlíf.
Bjarndís Helga
Tómasdóttir,
verkefnisstjóri
DÓMSMÁL Ís lensk kona hefur stefnt
ís lenska ríkinu fyrir að skylda
hana til að dvelja á nýja sótt kvíar-
hótelinu gegn vilja hennar. Lög-
maður hennar, Ómar R. Valdimars-
son, segir að krafan byggi á tveimur
þáttum; annars vegar meðal hófs-
reglu stjórn sýslu réttar og hins vegar
svo kallaðri lög mætis reglu. Þann-
ig þyki honum og skjól stæðingi
hans í fyrsta lagi að ríkis valdið hafi
gripið til allt of þungra að gerða með
nýjum reglum við landa mærin en
einnig að stjórn völd hafi bein línis
ekki laga heimild í nýju sótt varna-
lögunum fyrir þeim.
Nýju reglurnar við landa mærin
tóku gildi í fyrradag og þarf hver
sá sem kemur til landsins frá svo-
kölluðum dökk rauðum eða gráum
löndum í Evrópu að dvelja á nýju
sótt kvíar hóteli í f imm daga á
meðan við komandi bíður eftir því
að fara í aðra sýna töku.
„Ég er að fara af stað með þessa
kröfu fyrir konu sem situr föst inni
í þessu gúlagi þarna,“ segir Ómar en
margir hafa líkt aðgerðunum við
aðgerðir einræðisríkja.
Ómar segir að konan eigi rétt á
því sam kvæmt stjórnar skránni að
málið verði tekið fyrir og fái f lýti-
með ferð hjá héraðs dómi. Þannig
hljóti úr skurður í því að verða ljós
á allra næstu dögum.
Velferðarnefnd Alþingis mun
koma saman í páskafríinu til þess
að funda um nýju landamæraregl-
urnar. Svandís Svavarsdóttir mætir
á fundinn. – ókp
Stefnir ríkinu
vegna vistunar
í sótt varna húsi
Ég er að fara af stað
með þessa kröfu
fyrir konu sem situr föst
inni í þessu
gúlagi þarna.
Ómar Valdimars-
son lögmaður
3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð