Fréttablaðið - 03.04.2021, Page 25
ALLT GÖNGUGREININGBókaðu tíma á faeturtoga.is eða í síma 55 77 100Fætur Toga, Kringlan 3.hæð og Höfðabakki 3
K Y N N I NG A R B L A Ð
LAUGARDAGUR 3. apríl 2021
Nei, sko! Þarna leyndist páskaegg.
Páskadagur rennur upp á morgun.
Dagurinn er gleðin ein, því Kristur
er upprisinn og jafn víst að börn
sem fullorðnir bíða þess með
óþreyju að maula páskaegg. Hjá
mörgum tilheyrir að fela eggin
og það vekur spennu fyrir börn á
öllum aldri; þeir fullorðnu njóta
þess að horfa á ungviðið skemmta
sér og krökkum þykir óhemju
fjör að fela egg hinna fullorðnu og
fylgjast með þeim leita í dyrum og
dyngjum að gómsætinu.
Leitið og þér munuð finna
Með hugmyndaflugi má reyna
á fundvísi heimilisfólksins, til
dæmis með ratleik eða útifelu
stað, en án hættu á að eggjunum
verði nappað af óviðkomandi
sælkera. Hægt er að fela lítil og stór
páskaegg í garðinum, til dæmis í
tómu fuglahúsi, undir tröppum
eða sólpalli, í póstkassa eða moltu
kassa, undir hjólbörum eða jafnvel
í bílskúrnum, í miðjum dekkja
stafla eða hjólahjálminum, á bak
við sessur sólstóla, eða undir loki
útigrillsins.
Innanhúss eru óþrjótandi
felustaðir. Auðveldir staðir eru
bókahillur, á bak við gardínu eða
púða í sófanum. Aðeins erfiðari
eru í uppþvottavélinni, stígvélum,
steikarpotti, eða í verkfæra
kistunni. Fyrir lengra komna má
fela páskaegg með því að líma það
undir borðstofuborð, setja það
ofan í Cheeriospakka eða taka
innan úr brauði og troða egginu í
skorpuna, jafnvel lauma því ofan í
innpakkaðan svefnpoka, svo dæmi
séu gefin. Þá er gaman að fela fullt
af litlum páskaeggjum, ætum eða
til skrauts, allt eftir því hvað gleður
þann sem leitar.
thordisg@frettabladid.is
Gleðilega páska!
Ólafía þurfti að taka inn verkjalyf daglega til að draga úr sársauka í hnjám en hefur nú endurheimt liðleika vegna Active Joints . FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Líður undurvel á líkama og sál
Ólafía Ingólfsdóttir var á leið í hnjáskiptaaðgerð þegar hún komst á snoðir um bætiefnið
Active Joints frá Eylíf. Á örskömmum tíma var hún farin að hreyfa sig sem aldrei fyrr. 2
Íslensk gæðahráefni
fyrir þig
Heilsan er dýrmætust
www.eylif.is