Fréttablaðið - 03.04.2021, Side 35
w w w.heilsustofnun.isBerum ábyrgð á eigin heilsu
LAUS STÖRF HJÁ HEILSUSTOFNUN Í HVERAGERÐI
Læknir
Óskum eftir að ráða endurhæfingarlækni eða
annan sérfræðilækni sem hentar starfseminni
vel svo sem heimilislækni, lyflækni,
öldrunarlækni eða geðlækni.
Starfslýsing: Viðtal og skoðun nýrra sjúklinga
og gerð meðferðaráætlunar, þverfagleg
teymisvinna, tilfallandi læknisstörf og bakvaktir.
Um framtíðarstarf er að ræða en
sumarafleysing kemur einnig til greina.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem
fyrst. Reynsla og áhugi á rannsóknarvinnu er
kostur.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Sálfræðingur
Sálfræðingur óskast til starfa.
Um framtíðarstarf er að ræða en
sumarafleysing kemur einnig til greina.
Starfið er fjölbreytt og felst í viðtölum
við dvalargesti, að veita almenna fræðslu
og leiða meðferðarhópa, auk þátttöku í
þverfaglegum teymum.
Á síðustu árum hefur áhersla verið lögð
á hvernig núvitund og samkennd nýtist
í meðferðarstarfi.
Starfshlutfall er
eftir samkomulagi.
Hjúkrunarfræðingur
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa
í sumar. Um er að ræða fjölbreytt
starf í þverfaglegu samstarfi við aðrar
heilbrigðisstéttir. Starfið felur í sér
einstaklingsmiðaða hjúkrun, almenn
hjúkrunarstörf og fræðslu. Unnið er á
þrískiptum vöktum.
Starfshlutfall er
eftir samkomulagi.
Sjúkraliði
Sjúkraliði óskast til
sumarafleysinga. Um er
að ræða fjölbreytt starf í
þverfaglegu samstarfi við aðrar
heilbrigðisstéttir. Unnið er á
þrískiptum vöktum.
Starfshlutfall er
eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
Möguleiki er á húsnæði á staðnum.
Einnig ekur starfsmannarúta til og frá Olís við Rauðavatn í Reykjavík.
Umsóknir með ferilskrá berist til starfsmannastjóra á aldis@heilsustofnun.is
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á:
heilsustofnun.is/heilsustofnun/storf-i-bodi
Nánari upplýsingar veita:
G. Birna Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri lækninga – birna@heilsustofnun.is
Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar – margretg@heilsustofnun.is
Stefanía Sigurjónsdóttir deildarstjóri hjúkrunar – stefania@heilsustofnun.is
Aldís Eyjólfsdóttir starfsmannastjóri – aldis@heilsustofnun.is s. 4830300
Heilsustofnun er ein stærsta endurhæfingarstofnun landsins og veitir árlega 1350 einstaklingum
endurhæfingarþjónustu skv. samningi við Sjúkratryggingar Íslands. Á Heilsustofnun fer fram
einstaklingsmiðuð læknisfræðileg endurhæfing sem stjórnað er af þverfaglegum teymum.
Áhersla er á að efla líkamlega, andlega og félagslega færni einstaklinga, auka lífsgæði og styrkja
þá til athafna daglegs lífs. Helstu meðferðarsvið eru verkjameðferð, meðferð vegna streitu
og kulnunar, offitumeðferð, geðendurhæfing, hjartaendurhæfing, öldrunarendurhæfing og
endurhæfing eftir alvarleg veikindi, aðgerðir eða slys.
Hæfniskröfur:
• Íslenskt starfsleyfi og góð íslenskukunnátta
• Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
• Reynsla af þverfaglegu meðferðarstarfi er kostur
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Varmárskóli leitar að öflugum kennurum
Lausar kennarastöður:Varmárskóli í Mosfellsbæ mun starfa sem tveir grunnskólar frá og með
næsta hausti. Annars vegar sem Varmárskóli, fyrir nemendur í 1. - 6.
bekk og hins vegar sem nýr skóli, fyrir nemendur í 7. - 10. bekk.
Skólinn leggur áherslu á að kennarar geti skipulagt nám nemenda þar
sem nemendur vinna með tækni og í hópastarfi. Skólinn starfar í anda
uppbyggingarstefnunnar og leggur áherslu á fjölbreytta kennsluhætti
og teymiskennslu.
Leitað er eftir kennurum sem hafa góða hæfni til skapa nemendum
hvetjandi námsumhverfi og góða hæfni til að leggja mat á stöðu og
framfarir nemenda. Kennarar verða að hafa velferð nemenda að
leiðarljósi í störfum sínum.
Umsóknarfrestur er til 16. apríl 2021.
Sækja skal um öll störf á ráðningarvef Mosfellsbæjar www.mos.is/storf þar sem sjá má frekari upplýsingar um hvert starf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá og
kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar veita skólastjórar Varmárskóla, Anna Greta
Ólafsdóttir í netfang anna.greta.olafsdottir@mosmennt.is fyrir störf á yngsta- og miðstig (1.-6.bekkur), Þórhildur Elfarsdóttir í netfang thorhildur.elfarsdottir@mosmennt.is
fyrir störf á unglingastigi (7.-10.bekkur), eða í síma 525-0700. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og
Kennarasambands Íslands. Ráðið er í öll störf óháð kyni.
• Umsjónarkennarar á yngsta stigi
• Umsjónarkennarar á miðstigi
• Umsjónarkennari á unglingastigi
• Kennara í nýsköpun- og/eða tæknimennt
• Kennari á miðstigi með skóla margbreytileikans sem sérgrein
• Kennari á unglingastigi með skóla margbreytileikans sem sérgrein
• Enskukennari á unglingastigi
• Dönskukennari á unglingastigi
• Forfallakennari
• Nýbúakennari