Fréttablaðið - 03.04.2021, Qupperneq 36
VIÐ ERUM AÐ RÁÐA
Vegna sterkrar verkefnastöðu leitum við að áhugasömum
einstaklingum í e�irfarandi störf á starfsstöð okkar í Hafnarfirði
Sérfræðingur í rafmagnshönnun
Við leitum að einstaklingi til að bætast við hóp annarra hönnuða á sviði hug- og
vélbúnaðarþróunar. Viðkomandi þarf að hafa reynslu á sviði rafmagns- og iðnstýringa og
að hafa brennandi áhuga á fjölbreyttum og krefjandi verkefnum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði rafmagnsiðnfræði, tæknifræði,
verkfræði eða sambærilegu
Þekking og reynsla af hönnun, forritun (PLC) og uppsetningu á
iðnstýringum og raflögnum
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, úthlutun verkefna,
teymisvinnu, og skipulagi
Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
Melabraut 27 • 220 Hafnar�örður Sími 575 9700 • www.vhe.is
vhe ehf
Flokkstjóri í vélsmiðju
Flokkstjóri leiðir vinnuhóp í ýmsum verkefnum vélsmiðjunnar en helstu verkefni eru m.a. í
innlendum iðnaði, stóriðju ásamt þjónustu við álverin. Vélsmiðjan er mikilvæg eining bæði í
framleiðslu og þjónustu VHE og vinnur þétt með öðrum deildum fyrirtækisins.
Viðkomandi þarf að vera með sveinspróf í viðurkenndri málmiðngrein,
meistarapróf væri kostur.
Önnur hæfni og færni
Stjórnun verkefna og lausnarmiðuð vinnubrögð
Góð íslensku- og enskukunnátta
Góð færni í mannlegum samskiptum,
skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Geta og vilji til að vinna undir álagi
Góð tölvufærni
Reynsla af vinnu í álverum er kostur
Einnig viljum við ráða til okkar eftirtalda iðnaðarmenn
Vélvirkja
Vélstjóra
Vélfræðinga
Rennismiði
VHE er fjölskyldufyrirtæki, stofnað 1971 og hefur starfsstöðvar í Hafnarfirði, á Egilsstöðum og á Reyðarfirði.
Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega 200 manns við hin ýmsu störf og erum við mjög stolt af þekkingu starfsmanna
okkar og reynslu. VHE er framsækið fyrirtæki á véla- og mannvirkjasviði, við bjóðum upp á ítarlegar lausnir í
hönnun, framleiðslu og þjónustu fyrir viðskiptavini okkar, má þar nefna sérhæfðar lausnir fyrir stóriðju,
iðnað, orkufyrirtæki og mannvirkjagerð.
Umsóknarfrestur er til og með 11.apríl
Mó�aka umsókna er á vhe.is/atvinna/
Konur eru sérstaklega hvattar til þess að sækja um hjá fyrirtækinu.
Allar umsóknir eru meðhöndlaðar með trúnaði. Frekari upplýsingar
er að nálgast hjá mannauðsstjóra gudrun@vhe.is
Leikskólinn Laugalandi
Viska – Vinátta – Virðing
Spennandi stöður í boði
Í Leikskólann Laugalandi vantar okkur leikskólakennara,
þroskaþjálfa eða annað uppeldismenntað fólk til starfa
næsta haust. Um er að ræða 50% stöðu sérkennslustjóra,
stöðu deildarstjóra á eldri deild og stöðu leikskólakennara.
Leitað er eftir áhugasömum, metnaðarfullum starfs-
mönnum, körlum jafnt sem konum sem hafa góða hæfni
í mannlegum samskiptum og eru tilbúnir til að vinna eftir
sérstökum áherslum skólans. Í boði eru spennandi störf
sem fela í sér áframhaldandi uppbyggingu á metnaðarfullu
starfi skólans.
Helstu áherslur í starfi eru m.a. traust og góð umönnun og
vellíðan barnanna á allan hátt, leikur, útikennsla, slökun
og fjölbreyttar vinnustundir. Mikil og góð samvinna er við
grunnskólann sem er undir sama þaki og leikskólinn.
Leikskólinn Laugalandi er tveggja deilda leikskóli og er
staðsettur að Laugalandi í Holtum í um ca. 100 km frá
Reykjavík. Umhverfi skólans einkennist af fjölbreyttri
íslenskri náttúru sem býður uppá endalausa möguleika
fyrir leik og nám.
Umsóknir ásamt meðmælum skulu sendast á
leikskolinn@laugaland.is fyrir 30. apríl n.k.
Upplýsingar veitir Sigrún Björk Benediktsdóttir, leikskóla-
stjóri.
Veffang: http://laugaland.leikskolinn.is
Netfang: leikskolinn@laugaland.is
Við finnum rétta starfsmanninn fyrir þig
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is