Fréttablaðið - 03.04.2021, Síða 46
Rósu Guðbjartsdóttur bæjarstjóra
í Hafnarfirði er margt til lista lagt
og er einstakur fagurkeri í öllu því
sem hún tekur sér fyrir hendur.
Hún er mikill ástríðukokkur og
sælkeri og nýtur sín vel í eldhúsinu
að útbúa kræsingar af öllu tagi
fyrir fjölskyldu og vini.
Rósa hefur einnig verið iðin sem
rithöfundur og gefið út nokkrar
matreiðslubækur auk þess að vera
ritstjóri hjá Bókafélaginu. Rósu
finnst sérstaklega gaman að halda
boð sem eiga við hverja árstíð fyrir
sig og páskarnir eru þar engin
undantekning. Það verður enginn
svikinn af því að koma í matar- eða
kaffiboð til Rósu.
Ratleikur fyrir páskaeggjaleitina
Rósa reynir að halda í hefðir og
siði og líka búa til nýjar hefðir með
fjölskyldunni og hefur gaman af
því að leika sér með árstíðirnar.
„Ég hef reynt að búa til ákveðnar
hefðir hjá okkur fjölskyldunni
þótt þær séu alls ekki heilagar. Ég
skreyti alltaf dálítið inni á heimil-
inu þar sem egg, greinar og plöntur
eru auðvitað í aðalhlutverki.
Páskarnir eru í mínum huga
vorhátíð og við fögnum því að
birtan er að ná yfirhöndinni yfir
myrkri vetrarmánaðanna. Þá er
orðið mjög stutt í að gróðurinn
lifni við og „ilmurinn af vori og
grósku“ liggur í loftinu. Ég ólst ekki
upp við að páskaeggin væru falin
fyrir okkur systkinunum og að við
þyrftum að leita að þeim en tók
það upp með mínum börnum og
því fylgir léttur ratleikur.
Við höldum þeirri venju enn
þótt börnin séu flest um það bil
fullorðin og verður bara fyndnara
og skemmtilegra með árunum.
Stundum höfum við verið í sumar-
bústað um páskana og þá hefur
verið gaman að láta krakkana leita
úti í kjarrinu og á milli trjánna ef
þannig hefur viðrað.“
Aðalpáskaeggin frá
hænunum í garðinum
Áttu þér þitt uppáhaldspáskaegg?
„Ég stenst ekki Appollo-lakkrís-
eggin frá Góu og óska þess að eitt
slíkt lendi á mínu borði á pásk-
unum. Reyndar er Hraun-eggið
mjög ljúffengt líka og á líklega
aldrei betur við en þessa dagana
að gæða sér á einu slíku. En aðal
páskaeggin eru þau sem hænurnar
okkar færa okkur um hátíðirnar.
Réttir úr ferskum eggjum frjálsra
hæna heimilisins eru engu líkir
á páskum, t.d. „egg benedict“,
fylltar eggjamúffur eða ofn-
bakaðar eggjakökur.“ Rósa segist
hafa föndrað fyrir páskana þegar
börnin voru yngri en það hafi
breyst eftir að þau fóru að fullorðn-
Ljúffeng sjávarréttasúpa með karrí og kókos
Rósa hefur allt-
af verið mikill
ástríðukokkur
og leggur sig
fram um að
hafa glæsi-
legar veislur um
páska. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ERNIR
Hún er páskaleg sjávarréttasúpan hennar Rósu.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
ast. „Föndrið felst kannski orðið
aðallega í páskalegum útfærslum
eða skreytingum á kökum eða
öðru matarkyns.“
Páskasúpan kemur
með páskahátíðina
Matarhefðirnar eru ríkjandi hjá
Rósu um páskana og þar kemur
íslenska lambakjötið sterkt inn.
„Mér finnst ómissandi að elda
lambakjöt á páskahátíðinni og
undanfarin ár hafa hægeldaðir
lambaskankar átt vinninginn, sem
fá að malla í leirfati í ofninum í
6-8 tíma. En páskarnir ganga ekki
almennilega í garð fyrr en páska-
súpan er komin á borðið.
Um er að ræða sjávarréttasúpu
með kókos og karríi sem gerir hana
svo fallega gula og mjög viðeigandi
á páskahátíðinni. Páskasúpuna
gerði ég fyrst fyrir nærri 30 árum
og hefur hún tekið nokkrum
breytingum í gegnum árin. Ég býð
ýmist upp á hana í forrétt eða sem
hádegisverð á páskahelginni. Hún
stendur alltaf fyrir sínu og rennur
ljúflega niður.“
Við fengum Rósu til að deila með
okkur uppskriftinni að þessari ljúf-
fengu og fallegu gulu sjávarrétta-
súpu sem á vel við um páskana.
Sjávarréttasúpa með karrí og
kókos
Fyrir fjóra
1 msk. ólífuolía eða smjör
1 laukur, smátt skorinn
2-3 hvítlauksrif, marin
2 tsk. karríduft
½ tsk. túrmerik
2-3 sm af ferskri engiferrót, rifin
1 dós kókosmjólk, 400 ml
5 dl fiskisoð (soðið vatn og
teningar)
50 g kókosþykkni (má sleppa)
salt og grófmalaður pipar
300-400 g sjávarfang, t.d rækjur,
lax eða hörpuskel
Meðlæti
2 msk. kókosmjöl, ristað á þurri
pönnu
u.þ.b. 4 tsk. grísk jógúrt, þeyttur
rjómi eða sýrður rjómi
ferskt kóríander til skrauts
Mýkið lauk og hvítlauk í ólífuolíu
eða smjöri við vægan hita í potti í
nokkrar mínútur. Passið að brenni
ekki. Bætið karríi, túrmerik og
engifer saman við og blandið vel.
Hellið síðan kókosmjólkinni út í og
hrærið vel. Blandið fiskisoðinu út
í og látið suðuna rétt aðeins koma
upp og lækkið hitann. Látið malla
í smástund. Smakkið til með salti
og pipar.
Ef þið viljið auka kókosbragðið
í súpunni og gera hana rjóma-
kenndari er gott að bæta kókos-
þykkni (creamed coconut) út í.
Setjið síðan það sjávarfang
sem þið ætlið að nota í súpuna og
látið hitna í gegn í tvær til þrjár
mínútur. Þegar súpan er borin
fram er þeyttur eða sýrður rjómi
eða grísk jógúrt sett á toppinn
og síðan ristuðu kókosmjöli eða
kókosflögum stráð yfir og ferskt
kóríander eða límónubáta ef vill.
Ef þið notið sýrðan rjóma eða
gríska jógúrt á toppinn er gott
að hræra það aðeins út með smá
mjólk til að þynna.
BÍLABLAÐ
FRÉTTABLAÐSINS
Mest lesna bílablað landsins kemur út þriðjudaginn
13. apríl næstkomandi.
Ritstjóri blaðsins er Njáll Gunnlaugsson.
Tryggðu þér pláss í mest lesna blaði landsins.
Nánari upplýsingar um blaðið veitir:
Ruth Bergsdóttir
Sími 694 4103 / ruth@frettabladid.is
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vit að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
6 kynningarblað A L LT 3. apríl 2021 LAUGARDAGUR