Fréttablaðið - 03.04.2021, Page 56
„Jæja,“ sagði Kata og glotti.
„Við verðum of sein!“
Bætti hún við og hermdi
eftir áhyggjurödd Konráðs
sem óttaðist fátt meira
en að vera of seinn.
„Ég er búin að heyra
þetta of oft og nenni
ekki að heyra það
einu sinni í viðbót.“
Konráð byrjaði að
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
448
Getur þú fundið leiðina í gegnum völundarhúsið??
???malda í móinn en hætti
svo við. „Það gerir ekkert
til að vera aðeins of sein,“
sagði Kata. „Það er aftur
á móti gaman að glíma
við að finna rétta leið í gegnum völundarhús.“
Hún bretti upp ermarnar.
„Koma nú, inn með ykkur,
ég finn réttu leiðina og
sannið þið til, við verðum
ekkert of sein,“ sagði
Kata roggin um leið og
hún arkaði inn í dimm
göng völundarhússins.
Katrínu Snædísi finnst eldgosið fullnálægt Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Katrín Snædís Konecna verður ell-
efu ára í lok þessa mánaðar.
Hvernig finnst þér að eiga heima
á eldgosaeyju Katrín? Það er
áhugavert, mér finnst samt ótrú-
legt að það sé að gjósa svona rétt
hjá Reykjavík. Ég varð óörugg fyrst
þegar ég sá hraunið flæða og hugs-
aði hvenær gosið myndi enda. En ég
bý í góðu og friðsælu hverfi.
Hvaðan er eftirnafnið þitt? Það er
frá Slóvakíu. Ég fæddist á Íslandi og
hef alltaf átt heima hér.
Ertu í tengslum við ættingja þína í
Slóvakíu? Já, föðurömmu mína og
fleira frændfólk.
Hvernig er fáni Slóvakíu? Hann
hefur þrjá liti, bláan, rauðan og
hvítan sem tákna himin, land og
fjöll. Svo er tvöfaldur kross vinstra
megin sem táknar landsvæði.
Hvaða tungumál lestu? Ég les
bækur á íslensku og ensku en samt
mest á íslensku. Mér finnst mjög
gaman að lesa.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að læra í skólanum? Það er margt
og mikið. Mér finnst gaman að
læra um lönd og náttúruna. Líka að
reikna og læra mismunandi aðferðir
í stærðfræði. Svo finnst mér gaman
í ritun í skólanum, þá er ég að skrifa
sögur.
Hvað gerir þú eftir skólann?
Margt, til dæmis að syngja, hlusta á
tónlist, teikna og lesa bækur.
Hvernig tónlist? Ég hlusta á popp-
tónlist og kristileg lög.
Horfir þú sjónvarp? Ég horfi á
KrakkaRÚV og þætti sem mamma
og pabbi leyfa mér að horfa á.
Hvern í heiminum langar þig
mest að hitta? Ég á stóra fjölskyldu
á Filippseyjum sem eru ættingjar
mömmu. Mig langar mjög mikið að
heimsækja þá.
Manstu eftir einhverju fyndnu
sem þú hefur upplifað? Einu sinni
faldi pabbi mörg páskaegg sem við
systir mín leituðum að. Á páska-
dagsmorgun fundum við ekki öll.
Þegar við spurðum pabba hvar síð-
ustu eggin væru þá var hann búinn
að gleyma hvar hann hefði falið
þau, páskaeggin voru bara týnd. Við
fundum þau síðan eftir nokkra daga
á bak við eitthvað dót í eldhúsinu.
Hvað langar þig að gera þegar þú
verður stór? Mig langar að verða
kennari eins og amma mín. Að
kenna börnum það sem ég hef lært.
Mig langar líka að mamma og pabbi
séu stolt af mér.
Páskaeggin
voru bara týnd
Svo finnst mér
gaman í ritun í
skólanum, þá er ég að skrifa
sögur.
Listaverkið Ugne Anuseviciute sendi okkur þessa mynd af gígnum í Geldingadölum.
3 . A P R Í L 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR