Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 3
Eitt meginmarkmið Hinsegin daga var og er að standa að Gleðigöngunni, göngu
fagnaðar, sýnileika og baráttu. Í ár fögnum við tuttugu ára afmæli göngunnar
og þeim skrefum sem tekin hafa verið í átt að bættum réttindum hinsegin fólks
á Íslandi. Hverju einasta skrefi ber að fagna, hverju einasta skrefi fylgir stolt. Bak
við hvert skref í rétta átt er fólk sem hefur þurft að berjast fyrir tilverurétti sínum,
réttinum til að elska, réttinum til að lifa samkvæmt eigin kynvitund, réttinum til að
vera til, réttinum til að fá að vera það sjálft án áreitis samfélagsins.
Gleðigangan er birtingarmynd þessara skrefa. Við göngum saman sem eitt en um
leið fyrir alla. Ófá okkar hafa tekið síðasta skrefið út úr skápnum í Gleðigöngunni,
gengið hnarreist til móts við framtíðina, stolt í eigin skinni, steytt hnefann á móti
fordómum og gefið þrúgandi stöðlum samfélagsins fingurinn. Með hverju skrefi
vonumst við til að útmá skömmina sem allt of oft fylgir hinsegin fólki. Skömminni
yfir því að passa ekki inn í réttu boxin – að tilheyra ekki. Vittu til, þú tilheyrir svo
sannarlega samfélagi hinsegin fólks sem sér þig og virðir.
Við tileinkum hátíðina í ár því fólki sem barist hefur fyrir réttindum hinsegin fólks og
þorað að taka þessi mikilvægu skref. Við tileinkum þér hátíðina í ár.
The main goal of Reykjavik Pride was, and is, to organize the Pride Parade where we
visibly celebrate our victories, and continue the fight for LGBTQI+ rights. This year
we celebrate the 20th birthday of the Reykjavik Pride Parade and all the steps we
have made towards equal rights for LGBTQI+ people in Iceland. Every step should be
celebrated, every step should be taken proudly as behind every step are people that
have had to fight for their right to exist, for the right to love, for the right to express
their gender identity, and their right to be who they are without societal aggression.
The Pride Parade is the manifestation of those steps and the pride that comes with
each one we take. Steps we take as one, but for all. Many have taken their first step
out of the closet at the Pride Parade, walking proudly towards their future, proud
in and of their own skin, raised their fist against prejudice and given oppressive
societal norms the finger. With every step we hope to eradicate the shame that way
too often follows LGBTIQI+ people around. The shame that is brought on you when
you don’t fit the mold – you don’t belong. Know that you do belong and that you are
seen and respected.
We dedicate this year's Reykjavik Pride to those people that have fought for
LGBTQI+ rights and dared to take those proud steps out in the open. We dedicate this
year's pride to you.
STOLT Í
HVERJU
SKREFI
3