Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 56

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 56
EIPR, frá vorinu 2017, segir að frá árslokum 2013 og fram í mars 2017 hafi að minnsta kosti 232 Egyptar verið handteknir fyrir meinta siðspillingu — fleiri á tæpum þremur og hálfu ári en síðustu þrettán árin þar á undan. Í meirihluta tilvika voru handtökurnar afrakstur grimmilegrar tækni sem siðferðisdeild egypsku lögreglunnar notar til að ná í hinsegin fólk og byggist bókstaflega á að veiða það í gildru. Lögreglumenn fara þá huldu höfði á samfélagsmiðlum og stefnumótasíðum þar sem karlar geta sóst eftir kynnum við aðra karlmenn eða trans konur. Lokka svo fórnarlambið á stefnumót, þar sem það er handtekið. Þau sem verða uppvís um slíka „siðspillingu“ geta átt yfir höfði sér margra ára fangelsisdóma. Tugir handteknir Egypskir fjölmiðar loguðu. Myndin af glöðu ungmennunum með regnbogafánann á tónleikunum fór út um allt. Í frétta- og spjallþáttum í útvarpi og sjónvarpi var þetta uppátæki harðlega fordæmt. Regnbogafáninn var, samkvæmt álitsgjöfum þar, tákn siðspillingar. Hinsegin fólk var sagt almennt hneigðara til glæpa en aðrir sómakærir Egyptar — eiturlyfjaneyslu og -sölu, rána, morða. Hinsegin fólk væri jafn hættulegt samfélaginu og hryðjuverkamenn. Stjórnvöld lögðu við hlustir og sáu færi. Hljómsveitinni Mashrou’ Leila var auðvitað umsvifalaust bannað að koma aftur fram í Egyptalandi — tugþúsundum egypskra aðdáenda til vonbrigða — en öllu alvarlegra var að í hönd fór einhver grimmilegasta herferð stjórnvalda gegn hinsegin fólki í landinu til þessa. Á næstu dögum og vikum voru að minnsta kosti 75 ungar hinsegin manneskjur handteknar fyrir að hafa verið á hinum alræmdu tónleikum Mashrou’ Leila eða tengst einhverjum sem þar var. Eða eitthvað svoleiðis — það þurfti sjaldnast mikið tilefni. Ahmed Alaa, sem hafði upplifað bestu andartök lífs síns þegar hann veifaði regnbogafánanum yfir mannfjöldanum, var handtekinn 1. október, rúmri viku eftir tónleikana. Hann var í bíl með félaga sínum þegar lögreglumenn umkringdu bifreiðina, börðu á húddið og skipuðu honum að koma út. Svo var hann fluttur í einangrunarklefa þar sem hann var meira og minna næstu þrjá mánuðina. Vinkona Alaa, Sarah Hegazi, 28 ára forritari, var líka handtekin. Þau höfðu kynnst í samtökum sem börðust gegn öðru samfélagsmeini í Egyptalandi, heimilisofbeldi, og deildu áhuga á að bæta stöðu hinsegin fólks í heimalandinu. Hegazi hafði líka veifað regnbogafánanum þetta kvöld. Annar tónleikagestur náði mynd af henni þar sem hún situr á öxlunum á vini sínum með fánann á lofti. Hún skælbrosir — þetta var í fyrsta sinn á 28 ára ævi sem hún opinberaði samkynhneigð sína fyrir öðrum en sínum nánustu ættingjum og vinum. Óþefur og sársaukavein Hegazi var handtekin heima hjá sér. Lögreglumenn bundu fyrir augun á henni og fluttu hana á lögreglustöð þar sem hún var pyntuð með rafmagnslostum og aðrir fangar hvattir til að ráðast á hana, líkamlega og kynferðislega. „Óþefur og sársaukavein,“ skrifaði hún síðar. „Ég sat í stól, hendurnar á mér bundnar og tusku troðið í munninn á mér af einhverri ástæðu sem ég skildi ekki. Ég sá engan og enginn talaði við mig. Ekki löngu síðar fékk ég krampa og missti meðvitund, ég veit ekki hvað lengi.“ Í fangelsinu var henni haldið í einangrun dögum saman. Fangaverðirnir vildu að hún játaði að samkynhneigð væri geðsjúkdómur. Sökuðu hana um að tilheyra ólöglegum samtökum. Eftir þriggja mánaða varðhald var hún loks látin laus gegn tryggingu. Hún var heppin — margir aðrir sem voru handteknir þessa haustdaga 2017 fengu að endingu áralanga fangelsisdóma. En Sarah Hegazi var í raun alls ekki heppin. Áhrif arabíska vorsins Í skýrslu Human Rights Watch (HRW) frá 2018 um mannréttindabaráttu hinsegin fólks í Arabalöndunum vildu margir aðspurðra ítreka að þó að staðan væri víðast hvar slæm væri mikilvægt að draga 56
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.