Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 30
VIÐBURÐUR / EVENT VIÐBURÐUR / EVENT HINSEGIN Á ÓPERUSVIÐINU LGBTQ+ IN OPERAS Safnahúsið, 5. ágúst, kl. 17–18 The Culture House, August 5th, 5–6 pm Íris Björk Gunnarsdóttir óperusöngkona og Hjalti Þór Davíðsson píanóleikari flytja aríur úr ýmsum óperum þar sem hinseginleiki er sýnilegur og fjalla um rannsókn Írisar Bjarkar á hinseginleika á óperusviðinu á fræðandi og skemmtilegan hátt. Tónlistin á tónleikunum spannar langt tímabil, allt frá Händel til núlifandi tónskálda. Íris Björk bregður sér í hlutverk ýmissa kynja, castrati- söngvara og sögulegra persóna, buxnahlutverk, samkynhneigð og trans hlutverk. Tónleikarnir verða endurteknir á Óperudögum í Reykjavík í október 2020. Frítt inn, viðburðurinn er á íslensku Opera singer Íris Björk Gunnarsdóttir and pianist Hjalti Þór Davíðsson will perform arias from operas with prominent LGBTQ+ characters and talk about Íris‘s current research on the subject. The music performed comes from many periods, from Händel to contemporary composers. During the performance Íris Björk will take on the roles of various genders, castrati singers, historical figures, pants/skirt roles as well as gay and trans roles. The recital will be repeated in October at the Opera Days festival in Reykjavík. Free admission, this event is in Icelandic HINSEGIN LADIES NIGHT Á HINSEGIN DÖGUM 2020 QUEER LADIES NIGHT AT REYKJAVIK PRIDE 2020 Gamla bíó, 5. ágúst, kl. 20:00 Miðaverð: 1.900 kr. í forsölu en hækkar 1. ágúst í 2.500 kr. Gamla bíó, August 5th, 8 pm Admission: 1.900 ISK in pre-sale, 2.500 ISK after August 1st Í júní á síðasta ári hélt hópur hinsegin kvenna sinn fyrsta viðburð undir heitinu Hinsegin Ladies Night. Hugmyndin kviknaði hjá Ástrósu Erlu Benediktsdóttur eftir heimsókn til Öldu Karenar Hjaltalín í New York-borg. Þær vinkonur sóttu meðal annars viðburði á vegum Ellis Presents sem eru tileinkaðir konum sem heillast af konum. Þegar heim var komið varð Ástrósu tíðrætt um að mikil þörf væri fyrir slíkan vettvang hér heima. Þegar henni bauðst tækifæri til þess að halda viðburði á Miami bar á Hverfisgötu rann upp fyrir henni að hún ætti sjálf að ríða á vaðið. Til að byrja með var viðburðurinn hugsaður fyrir konur sem heillast af konum, þess vegna ber hópurinn nafnið Hinsegin Ladies Night. Þegar fyrsti viðburðurinn var auglýstur vaknaði spurningin, hvað með kynsegin einstaklinga? Öll eru velkomin sem langar að vera með, tví- og pankynhneigð, intersex, asexual, lesbíur, polyamorous, trans, og allt hinsegin fólk sem heillast af konum hvernig sem það skilgreinir sig innan LGBTQIAP+. Meginmarkmiðið er skapa vettvang, að þessi hópur eigi samastað til að kynnast, skapa tengsl og styrkja samfélagið okkar. Viðtökurnar við fyrsta viðburði Hinsegin Ladies Night fóru fram úr björtustu vonum, þar sem færri komust að en vildu. Viðburðirnir hafa síðan verið mánaðarlega og oft og tíðum er boðið upp á fjölbreytta dagskrá, svo sem pöbbarölt, stjörnuspeki, grínista og opinn mæk, drag, bingó, förðun, plötusnúða og kokteila. Í samkomubanninu var Instagram-síða Hinsegin Ladies Night opnuð fyrir áhugasömum hinsegin einstaklingum, sem hver á eftir öðrum tóku síðuna yfir, ræddu hugðarefni sín og styttu okkur hinum stundir á tímum COVID-19. Hápunkti fyrsta starfsársins var náð þegar Hinsegin Ladies Night héldu upp á ársafmæli sitt með útilegu í Árnesi í Þjórsárdal helgina 12.–14. júní. Hópurinn sem stendur á bak við viðburðina er hvergi nærri hættur heldur ætlar að færa út kvíarnar. Draumurinn er að hafa starfið það fjölbreytt að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Mánaðarlegir skemmtiviðburðir verða á sínum stað, framvegis á föstudögum, en markmiðið er að bjóða upp á annars konar samkomur á virkum dögum, t.d. Burlesque-dansnámskeið, hugleiðslu, göngu, umræðuhópa um ýmis málefni, sjálfstyrkingarkvöld og sjálfsvarnarnámskeið svo eitthvað sé nefnt. Ástrós hvetur alla sem hafa áhuga á að taka þátt að hafa samband við Hinsegin Ladies Night með því að senda skilaboð á hinseginladiesnight á Instagram. Þessi viðburður er tileinkaður öllum hinsegin konum og kynsegin fólki sem heillast af konum. Meginhugmyndin er að skapa öruggt umhverfi til að koma saman og skemmta sér, kynnast og styrkja samfélag okkar. Öll eru velkomin óháð aldri, sambandsstöðu eða skilgreiningu. If you want to join you are welcome. This event is dedicated to all queer women/gender queer/ non-binary or however you choose to define yourself, for instance lesbian, trans, polyamorous, bi-/pansexual, intersex or asexual. The main idea for these events is to create a safe environment for queer women to come together, get to know each other, make connections and learn from one another to strengthen our community. At these events all queer women, whatever their age, however they define themselves inside the LGBTQIAP+ or whether they’re in a relationship or single, can feel welcome and a part of the community. 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.