Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 10
HINSEGIN DAGAR
OFFICIAL SPONSOR www.omnomchocolate.comomnomchocolate
Hinsegin
bækur
fyrir
börn og
unglinga
Síðan Borgarbókasafnið
tók við safni Samtakanna
’78 af hinsegin bókum árið
2014 hefur það jafnt og þétt
aukið við safnkostinn og þá
sérstaklega þegar kemur að
barna- og unglingabókum.
Þó að úrvalið geti alltaf verið
betra er nú hægt að finna
hinsegin bækur fyrir alla
aldursflokka á öllum söfnum
borgarinnar og auðvitað á
Rafbókasafninu sem hefur
verið í miklum vexti.
Fyrstu unglingabækurnar
á íslensku sem fjölluðu um
samkynhneigð komu ekki út
fyrr en á tíunda áratugnum,
Vinir á vegamótum eftir
Jan de Zanger og Bróðir
minn og bróðir hans eftir
Håkan Lindquist, báðar
þýddar. Árið 2007 komu svo
loksins út fyrstu íslensku
ungmennabækurnar með
hinsegin aðalpersónum,
Strákarnir með strípurnar
eftir Ingibjörgu Reynisdóttur
og fyrsta bókin um Önnu
eftir Jónínu Leósdóttur,
Kossar & ólífur. Úrvalið á
íslensku er því miður enn
takmarkað en meðal bóka
fyrir yngri aldurshópa má
nefna Fjölskylduna mína eftir
Ástu Rún Valgerðardóttur
og Láru Garðarsdóttur um
fjölbreytilegar fjölskyldur,
Búðarferðina eftir Bergrúnu
Írisi Sævarsdóttur með
kynsegin sögupersónu og
Strákinn í kjólnum eftir hinn
sívinsæla David Walliams.
Þær eru auðvitað allar til á
Borgarbókasafninu.
Flestar hinsegin bækur
safnsins fyrir börn og
unglinga eru á ensku og
þar á meðal eru margir
vinsælir titlar. Meðal bóka
um samkynhneigða unglinga
má nefna Aristotle and Dante
Discover the Secrets of the
Universe, Fat Angie, The Music
of What Happens sem kom út
í fyrra og I'll Give You the Sun
sem er einnig til í íslenskri
þýðingu. Það þurfa ekki bara
að vera til skáldsögur um
ástina, We are the Ants er með
vísindaskáldsögulegu ívafi,
Girl Hearts Girl er frásögn
höfundar af því að finna
ástina á netinu og Darius
the Great is Not Okay fjallar
um amerísk-íranskan strák
sem fer í heimsókn til Íran.
Á Rafbókasafninu er líka
hægt að fá fantasíuna Carry
on og framhald hennar eftir
Rainbow Rowell.
Það má líka finna fleiri liti
regnbogans í bókakosti
safnsins. If I Was Your Girl eftir
Meredith Russo fjallar um
trans unglingstúlku sem er
að fóta sig í nýjum skóla og
My Dad Thinks I'm a Boy?! er
sniðug bók fyrir yngri krakka
um hvernig er að vera trans
barn. Aðalpersóna None of
the Above eftir I. W. Gregorio
er intersex og þá bók má
bæði nálgast á pappírsformi
og Rafbóksafninu, ásamt Let's
Talk About Love eftir Claire
Kann um svarta stelpu sem
er eikynhneigð og hvernig
það hefur áhrif á ástalíf
hennar. Nú er líka full ástæða
til að hampa bókum svartra
höfunda, Full Disclosure
eftir Camryn Garrett fjallar
um svarta stelpu sem er
tvíkynhneigð og HIV-jákvæð.
Proud er svo safn ljóða eftir
höfunda unglingabóka
sem spanna allt hinsegin
litrófið. Meðal fræðibóka
fyrir hinsegin ungmenni sem
til eru á safninu má nefna
Trans Teen Survival Guide eftir
Uglu Stefaníu, formann Trans
Íslands.
Ekki má gleyma
myndasögunum. The Prince
and the Dressmaker eftir Jen
Wang er hugljúf saga sem
hentar öllum aldurshópum
og sömuleiðis Lumberjanes-
serían vinsæla sem er bæði
til á Rafbókasafninu og
innbundin. Heartstopper
er svo ný myndasaga fyrir
unglinga um Charlie sem
fellur fyrir vini sínum Nick.
Það má líka finna fræðibækur
á því formi eins og A Quick
& Easy Guide to they/them
Pronouns og Queer and Trans
Identities.
Þetta er einungis lítill
hluti af þeim barna- og
unglingabókum sem snerta
á hinsegin þemum og til eru
á safninu. Þeim mun bara
fjölga enda er sífellt meiri
áhugi meðal yngri lesenda
og foreldra þeirra á sögum
um og eftir hinsegin fólk. Það
er gaman að fá tækifæri til
að hampa þessum bókum á
Hinsegin dögum og vonandi
verða þær til að hjálpa
krökkum og unglingum að
uppgötva eitthvað nýtt um
sig sjálf og finna sögur sem
þau tengja við.
Guttormur Þorsteinsson
bókavörður