Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 72

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 72
inn í skápinn til að lifa af eða hvort við náum að svífa inn í framtíðina á bleiku skýi kemur í ljós. Baráttan endar aldrei.“ Fjórði segir að krafan um að fagna fjölbreytileikanum verði áreiðanlega enn áberandi eftir 20 ár. Kröfurnar 2040 verða um að allir megi tjá sig eins og þeir vilja, eiga börn, skapa alls konar fjölskyldur, fara út fyrir normið – en þrýstingur um að fylgja „normi“ gæti alveg verið enn öflugri árið 2040 ef öfgaöflin ná festu í samfélögum heimsins. „Ég hef miklar áhyggjur af því að með auknum fjölbreytileika og meira frelsi til að tjá sig og vera alls konar þá muni ótti á meðal margra aukast og birtast með auknum fordómum og jafnvel sviptingu á tjáningarfrelsi, hugsanlega verðum við bara að fara í hringi og berjast gegn svipuðum fordómum eftir 20 ár,“ segir í einu svarinu og þar vísar bréfritari m.a. til ótta sumra við aukinn sýnileika trans ungmenna. „Með auknum sýnileika og meðvitund í samfélagi hefur ungt fólk leyft sér að setja spurningarmerki við kyn og leika sér með kyntjáningu. Margt fólk á erfitt með þetta, skilur það ekki og er hrætt og það birtist t.d. í eins konar hræðsluáróðri til foreldra. Eins birtist það í stöðugum efasemdum og börnin þurfa stöðugt að sanna sig og fá seint eða ekki þá þjónustu sem þau þurfa sem getur haft mjög alvarlegar afleiðingar.“ Sýnileikinn sífellt meiri Vonandi þurfa þátttakendur í göngunni ekki að óttast lögregluofbeldi eða rasisma og internetdurgarnir, sem býsnast yfir sóun á skattfé, verða horfnir. Trans og intersex fólk verður búið að öðlast öll þau réttindi og allan þann skilning sem það dreymir um. Sama gildir um eikynhneigt og fjölkært fólk. Sýnileiki ólíkra hópa verður sífellt meiri – enda meginhlutverk Gleðigöngunnar að skapa hinsegin fólki vettvang til að staðfesta tilvist sína fyrir allra augum. Og þó. Kannski verða hinir ýmsu hópar ekki meira áberandi. Kannski verður áherslan einmitt fyrst og fremst á einstaklinginn? Eru líkur á að eftir 20 ár munum við einfaldlega sætta okkur við gríðarlega fjölbreytta flóru mannlífsins og hætta að setja merkimiða á hvern og einn? Sumir vonast a.m.k. til þess og það er til verri framtíðarsýn. „Við erum oft svo upptekin af því að tryggja sýnileika allra hópanna að við gleymum að horfa á það sem við eigum sameiginlegt,“ skrifar einn og veltir fyrir sér hvort eftir 20 ár verði bara einn hópur: Hinsegin fólk. Af svipuðum meiði eru vangaveltur – og tilheyrandi bjartsýni – þess sem sagðist hafa trú á að vakning samkenndar mannkyns muni fleyta okkur enn lengra í réttlætisátt. Byltingar #metoo, Druslugöngunnar og Black Lives Matter hafi opnað augu fjölmargra fyrir ýmiss konar misrétti og sú réttlætiskennd sem fylgi þeim muni vaxa á næstu árum og áratugum. „Jafnrétti er ekki kaka sem klárast þótt fleiri hópum sé boðið að borðinu“, skrifar sá álitsgjafi og bætir við um stöðuna eftir 20 ár: „Kannski kemur nýr hópur hinsegin fólks, sem hefur ekki átt orð til að lýsa sínum upplifunum áður sem mun þurfa pláss, nýyrði, lagaleg og félagsleg réttindi o.s.frv. Kannski verðum við ennþá að berjast fyrir réttindum þeirra hópa sem eru þekktir í dag en hafa annaðhvort misst réttindi, eða hafa verið skilin eftir í einhverjum nýjum forréttindum sem munu koma upp. Ég held að það mikilvægasta sé bara að við stefnum á gönguna eftir 20 ár í sameiningu og sameflingu, því eins og stórfjölskyldan sem við líkjum okkur oft við, þá kemur okkur ekki alltaf fullkomlega saman, en við ættum samt að verja hvort annað með kjafti og klóm frá allri hættu eða ógn.“ Álitsgjafarnir eru ekki fæddir í gær og þótt þeir séu flestir jákvæðir og fullir bjartsýni þá vita þeir að fordómar og þekkingarleysi er enn til staðar þrátt fyrir að lagalega séum við komin nokkuð langt. Það vill líka stundum gleymast að þrátt fyrir að það sé auðveldara að vera hinsegin í dag en áður fyrr og fordómar hafi minnkað til muna þá geta innri fordómar og sjálfshatur verið alveg jafn slæmt nú og fyrir 20 eða 40 árum. Við værum heldur betur komin langt eftir 20 ár ef við værum laus undan þeirri byrði. Þá verður fjandinn laus Það er líklegt að við þurfum að ganga um með kröfuskilti eftir 20 ár, með skilaboðum um mannréttindi, frelsi og réttinn til að vera og elska. Þá gerum við það. Því eins og einn álitsgjafinn sagði: „Ef við höldum ekki umræðunni lifandi, tökumst ekki á um málefnin, sjálfsmyndirnar og pólitíkina þá gerir það einhver í staðinn fyrir okkur. Og þá fyrst verður fjandinn laus.“ Við höfum áhyggjur, áreiðanlega réttmætar. Að breytt landslag í pólitík verði til þess að réttindi verði tekin af okkur. En aðallega erum við stolt og glöð með gönguna okkar. Og við eigum líka að muna hversu margir koma í gönguna og hversu margir fagna okkur á hliðarlínunni. Þar er styrkurinn okkar og hverfur varla á einni nóttu. Vonandi verð ég í göngunni eftir 20 ár. Vonandi brosandi út að mínum 80 ára gömlu eyrum, samt hálfklökk yfir að öll réttindi alls hinsegin fólks skuli tryggð. En ef staðan verður ekki svo góð, þá mæti ég með steyttan hnefann. Og við verðum mörg. English translation of this article can be found on www. reykjavikpride.is Í minningu Guðrúnar Ögmundsdóttu r ÖRVIÐTAL Nafn, fornafn, aldur Þorbjörg, hún, 30 ára. Hvenær fórstu fyrst í gleðigöngu? Ég fór fyrst í gleðigöngu árið 2015, eða það var í fyrsta sinn sem ég gekk í gleðigöngunni sjálfri á Hinsegin dögum. Hefur þú farið í gleðigöngu annars staðar en á Íslandi? Nei, því miður! En ég stefni á að láta sjá mig á World Pride í Kaupmannahöfn á næsta ári. Hver er þín uppáhaldsminning tengd Gleðigöngunni og hvaða ár var það? Flestar af mínum minningum sem tengjast gleðigöngunni eru í raun og veru svona ótímasettar tilfinningar sem blandast við glefsur af litum, mannhafi, glimmersprengjum, faðmlögum og fagnaðarópum. En ég held að uppáhalds einstaka minningin mín sé síðan í fyrra. Það var bæði mjög skemmtilegt að taka þátt í fyrstu gleðigöngunni sem formaður Samtakanna ‘78 og svo fór konan mín alla leiðina á hörkunni, alveg kasólétt af yngri dóttur okkar. Hvers vegna gengur þú? Mér finnst alveg ótrúlega gaman að taka þátt í gleðigöngunni og það veitir mér mjög djúpstæða gleði og frelsistilfinningu. Það er líka eitthvað svo dýrmætt að finna að maður er hluti hinsegin samfélagsins. En gleðigangan er ekki síður mikilvæg út á við. Sýnileiki hinsegin fólks er ennþá róttækur og gleðigangan skiptir mjög miklu máli í hagsmuna- og réttindabaráttunni. 72
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.