Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 26
ÖRVIÐTAL
Nafn, fornafn
Sigga Birna, hún.
Hvenær fórstu fyrst í gleðigöngu?
Ætli það hafi ekki verið 2000, en þá
tók ég þátt í að skipuleggja gönguna
og það var mikið ævintýri.
Hefur þú farið í gleðigöngu annars
staðar en á Íslandi?
Já, ég hef bæði horft á og gengið
í New York Pride, eitt árið gekk ég
með Samtökunum í NYC en vinur
minn var ráðgjafi þar um tíma.
Það var trúlega árið 2001 og mikil
upplifun. Eins var mér boðið að taka
þátt í Euro Pride í Osló árið 2005 fyrir
hönd stjórnar Hinsegin bíódaga sem
voru nokkuð öflugir á þeim tíma.
Það var ótrúlegt ævintýri þar sem
heiðursgestur Euro Pride það árið var
Ian McKellen og ég varð þess heiðurs
aðnjótandi að vera með honum í
kvöldverðarboði.
Hver er þín uppáhaldsminning tengd
Gleðigöngunni og hvaða ár var það?
Ætli það sé ekki atriðið okkar
í gleðigöngunni 2007 en þá
klæddum við vinkonurnar okkur
upp sem húsmæður og vorum
með lítinn vagn sem við kölluðum
„Hexodus“ og tókum kaldhæðnina
á Exodus-samtökin sem voru í því
að „afhomma“ fólk á þeim tíma. Við
lékum drukknar húsmæður á valíum
og dreifðum „valíum“ og áróðri í
allar áttir með klósettbursta og
rjómasprautur á lofti.
Hvers vegna gengur þú?
Ég geng vegna þess að sýnileiki er
gífurlega mikilvægur og við höfum
alls ekki náð að útrýma fordómum
og þekkingarleysi á Íslandi. Hinsegin
ungmenni t.d. verða enn fyrir
miklu áreiti í skólum og eru líklegri
til að upplifa vanlíðan og kvíða.
Þrátt fyrir að samkynhneigðir séu
orðnir nokkuð öruggir í okkar
samfélagi eru margir aðrir hópar
innan hinsegin samfélagsins
sem ekki upplifa sama öryggi og
skilning meðal almennings, má
þar t.d. nefna kynsegin fólk, trans
fólk og eikynhneigða. Eins er mjög
mikilvægt fyrir mig að barnið mitt
upplifi fjölbreytileikann og stoltið
sem fylgir því að vera hluti af
hinsegin fjölskyldu.
VIÐBURÐUR / EVENT
HINSEGIN SÖGUGANGA – SÖGUR UM SÝNILEIKA
A QUEER HISTORICAL WALK
Gangan leggur af stað frá horni
Skólavörðustígs og Laugavegs,
4. ágúst kl 18
Corner of Skólavörðustígur
and Laugavegur,
August 4th, 6-7 pm
Stutt gönguferð um miðborgina þar sem
sögu hinsegin fólks á Íslandi er haldið í
heiðri. Þema göngunnar í ár er sýnileiki.
Sýnileiki hinsegin fólks er mikilvægur þáttur í
réttindabaráttunni og sagðar verða sögur af
stórum og smáum skrefum sem hafa leitt til
aukins sýnileika hinsegin fólks í samfélaginu.
Gangan tekur um klukkustund og endar við
Listasafn Reykjavíkur þar sem opnunarhátíð
Hinsegin daga hefst kl. 19:00.
Frítt inn, viðburðurinn fer fram á íslensku
A short walking tour around the city centre
celebrating the visibility of queer people in
Reykjavík and the importance of visibility in
the fight for equal rights.
The walk takes approx. one hour and
concludes in front of Listasafn Reykjavíkur
where the Opening Ceremony will be held.
FREE ADMISSION, THE EVENT IS IN
ICELANDIC
KAUPFÉLAG HINSEGIN DAGA OG
UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ
PRIDE STORE AND SERVICE CENTER
Forsala miða er til 1. ágúst.
Kaupfélagið er í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi
Pre-sale priced tickets available until August 1st.
The Pride store is located in Reykjavik Art Museum, Hafnarhús
Opnunartími:
þriðjudaginn 4. ágúst 11:00 – 17:00
miðvikudaginn 5. ágúst 11:00 – 17:00
fimmtudaginn 6. ágúst 11:00 – 17:00
föstudaginn 7. ágúst 11:00 – 17:00
laugardaginn 8. ágúst 11:00 – 15:00
Opening hours:
Tuesday August 4th 11 – 5 pm
Wednesday August 5th 11 – 5 pm
Thursday August 6th 11 – 5 pm
Friday August 7th 11 – 5 pm
Saturday August 8th 11 – 3 pm
26