Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 45
VIÐBURÐUR / EVENT
VIÐBURÐUR / EVENT
EIN SAGA – EITT SKREF
ONE STORY – ONE STEP
Hallgrímskirkja, 8. ágúst, kl. 13
Hallgrímskirkja Church, August 8th, 1 pm
Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, kynnir verkefnið
Ein saga – Eitt skref, í samstarfi við Samtökin ’78. Tilgangur
verkefnisins er að gera upp og læra af sögu misréttis gagnvart
hinsegin fólki innan kirkjunnar. Fyrsta skrefið verður að safna
persónulegum reynslusögum af fordómum og andstöðu
Þjóðkirkjunnar við réttindi hinsegin fólks í gegnum árin.
Frásagnirnar verða síðar gerðar aðgengilegar og m.a. hengdar
upp í kirkjum hringinn í kringum landið næsta vor til vitnis
um erfiða sögu sem mikilvægt er að endurtaki sig ekki, en
einnig um þjáningu, baráttu og vilja hinsegin fólks til að öðlast
viðurkenningu, frelsi og mannréttindi.
Viðburðurinn verður í hliðarsal Hallgrímskirkju 8. ágúst og
hefst kl. 13.
Klukkan 14 verður regnbogafáninn dreginn að húni við kirkjur
víðs vegar um landið í samstarfi við ÆSKÞ, Æskulýðssamband
Þjóðkirkjunnar.
The bishop of Iceland, Agnes M. Sigurðardóttir, will introduce
the project One story - One step in Hallgrímskirkja Church. The
project is made in collaboration with Samtökin ’78 – the National
Queer Organisation of Iceland. Its main purpose is to bring to light
and learn from the history of discrimination against queer people
within the church. The first step is to collect personal stories of
prejudice and the The Evangelical Lutheran church of Iceland’s
opposition to the human rights of queer people through the years.
Next spring, the stories will be presented in churches all around
the country as testament to a difficult history that must not repeat
itself, as well as to the pain, struggle and strong will of people to
gain recognition, freedom and human rights.
At 2 pm, the rainbow flag will be raised outside churches all around
Iceland.
FJAÐRAFOK - GLEÐIGANGAN Í 20 ÁR
FJAÐRAFOK CHRONICLES THE TWENTY
YEARS OF PRIDE PARADING IN ICELAND
Tjarnarbíó, 9. ágúst kl. 16
Tjarnarbíó, August 9th, 4 pm
Heimildarmyndin Fjaðrafok rekur forsögu og 20 ára
sögu Gleðigöngunnar. Hrafnhildur Gunnarsdóttir
kvikmyndagerðarkona hefur frá upphafi safnað saman
myndskeiðum úr göngunum sem aldrei hafa komið fyrir
sjónir almennings. Nú hefur hún og samstarfsfólk hennar,
Felix Bergsson, umsjónarmaður myndarinnar, og Halla Kristín
Einarsdóttir handritshöfundur, tekið viðtöl við fjölda fólks til
viðbótar, sem rifjar upp þátttöku sína í Gleðigöngunni og lýsir
hvaða áhrif og þýðingu hún hefur haft á íslenskt samfélag og
fyrir hinsegin samfélagið. Heimildarmyndin er framleidd af
Krumma Films í samstarfi við Hinsegin daga og RÚV.
Frítt inn
The documentary Fjaðrafok chronicles the twenty years of pride
parading in Iceland. Film maker Hrafnhildur Gunnarsdóttir has shot
the parade from the beginning. She mixes old material and new
interviews with people who reminisce about their participation
in the parade, what its impact on society has been in general,
and what Pride means for the LGBTQ+ community. Produced
by Krumma Films, in cooperation with Reykjavik Pride and the
Icelandic National Broadcasting Service (RÚV)
Free admission
45