Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 38
Gleðigangan mín
Gleðiganga Hinsegin daga, hvar sem þú vilt ganga, 8. ágúst kl. 14:00
Gleðigangan árið 2020 verður
ekki ein heldur fjölmargar
minni gleðigöngur, sem
fara fram víðs vegar um
höfuðborgarsvæðið og
um land allt! Frá upphafi
Gleðigöngunnar hafa
einstaklingar og hópar
skipulagt eigin atriði og þau
munu nú einnig skipuleggja
eigin gönguleið. Hver og
einn getur rölt með sjálfum
sér, vinum eða fjölskyldu,
í hæfilega stórum hópum
og með smitgát í fyrirrúmi.
Vinahópur gengur upp
Helgafellið eða meðfram
Ægisíðunni, annar röltir
kringum Rauðavatn, sá þriðji
er fjölskylda sem gengur í
Gróttu, sá fjórði vinnufélagar
sem ganga Hafnarstrætið á
Akureyri og fimmti áhöfnin
sem stikar Fjarðargötuna á
Seyðisfirði.
Gleðigöngurnar, í öllum
sínum fjölbreytileika, leggja
af stað kl. 14 laugardaginn 8.
ágúst, hvar sem þátttakendur
vilja ganga, sýna stuðning
sinn við réttindabaráttu
hinsegin fólks og fagna
fjölbreyttu samfélagi.
Vonandi bera sem flestir
regnbogafána eða skreyta
sig regnbogalitum og senda
skýr skilaboð um veruleika
hinsegin fólks á einn eða
annan hátt. Við biðjum alla
þátttakendur að fara um
gangandi, hjólandi eða á
hjólaskautum og fara eftir
öllum umferðarreglum.
Stærri hópar, sem hafa tekið
þátt í göngunni undanfarin
ár, t.d. Intersex Ísland, Trans
Ísland, BDSM á Íslandi, Ásar
á Íslandi, Samtökin ’78 og
Dragsúgur, þurfa að skrá
sig hjá Hinsegin dögum svo
yfirsýn fáist yfir hverjir ganga
hvar. Hægt verður að fylgjast
með framgangi gleðiganga
á hinum ýmsu miðlum og
þátttakendur eru hvattir sem
aldrei fyrr til að deila reynslu
sinni á samfélagsmiðlum.
#stoltskref #takeaproudwalk
#reykjavikloves
#reykjavikpride2020
#reykjavikpride
#glediganganmin
Stolt í hverju skrefi Take a Proud Walk
Höfundur: Lilja Ósk Magnúsdóttir
The Reykjavik Pride Parade
2020 will be many small
parades all around the country
and the capital area. We
encourage groups, couples,
friends and families to go out
for a walk on Saturday August
8th at 14:00 wherever they
are, embrace the colors of the
rainbow and convey some
message that addresses the
realities of LGBTQ people. If
you are a part of a group and
wish to join The Reykjavík Pride
Parade this year, you must
apply by filling out a special
application form. This form
can be found on reykjavikpride.
is and must be completed for
you to be eligible to participate
in the parade.
38