Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 25
Hin Hýra
djasselskandi
jómfrú
Veitingastaðurinn Jómfrúin við
Lækjargötu hefur um árabil verið eftirlæti
margra. Allt frá upphafi hefur hún verið
griðastaður hinsegin fólks og á síðari
árum einnig stutt duglega við bakið á
Hinsegin dögum í Reykjavík. Það var
Jakob Jakobsson, heimsins fyrsta karlkyns
smurbrauðsjómfrú, sem opnaði Jómfrúna
árið 1996 og rak hana ásamt eiginmanni
sínum, Guðmundi Guðjónssyni, til ársins
2015 þegar sonur hans, Jakob Jakobsson
yngri, tók við keflinu.
Þó að ást Jómfrúarinnar á sínum hýrustu
gestum (og ísköldu ákavíti) sé óbilandi
er það djassinn sem á hug hennar og
hjarta yfir björtustu sumarmánuðina.
Alla laugardaga í júní, júlí og ágúst
fyllist Jómfrúargarðurinn því af seiðandi
djasstónlist sem flutt er af landsliði
tónlistarfólks. Þetta sumarið koma þar
fram Skuggatríó Sigurðar Flosasonar,
Ari Bragi Tómasson, Latínband Tómasar
R., Bjössi Thors og Unnur Birna,
Kristjana Stefáns og Ife Tolentino,
Una Stef og þannig mætti áfram telja.
Jómfrúargarðurinn er umlukinn þéttri
miðborgarbyggð með lágreistum húsum
til suðurs og því skjólsæl og sólrík paradís
á björtum sumardögum. Lítið danskt
fríríki sem býður upp á sumarstemmingu
sem enginn ætti að láta framhjá sér fara!
jómfrúin:
THe queer
jazz
lover in
reykjavik
For years the restaurant Jómfrúin has not
only attracted a large group of LGBT+
guests but also been a proud supporter of
Reykjavik Pride. Founder Jakob Jakobsson,
the first man in the world to graduate as a
“smørrebrødsjomfru”, operated Jómfrúin
with his husband until 2015 when his son,
Jakob Jr., took over. On a sunny summer
day the backyard of Jómfrúin is a real
paradise which could explain why some
of Iceland’s best musicians show up there
every Saturday in June, July and August to
play live jazz music – something that’s truly
worth experiencing!