Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 73

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2020, Blaðsíða 73
Guðrún Ögmundsdóttir, sem lést síðastliðinn gamlársdag, var þekktust fyrir að vera baráttukona fyrir mannréttindum í störfum sínum sem félagsráðgjafi, þingkona og borgarfulltrúi auk þess sem hún vann fyrir fjölmörg mannréttindasamtök eins og UNICEF og Alnæmissamtökin (HIV-Ísland). Hennar helstu málaflokkar voru kvenréttindabarátta og réttindi barna og fatlaðra en þar að auki barðist hún fyrir hinsegin réttindum áratugum saman. Guðrún hlaut ótal viður kenn ing ar fyr ir brautryðjanda störf í þágu mann rétt inda, m.a. riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 17. júní 2019 fyr ir fram lag í þágu mannúðar og jafn rétt- is bar áttu hinseg in fólks. Hún talaði alltaf frá hjartanu og lagði allt sitt í það sem hún trúði á. Sumt fólk er þannig gert að nærvera þess lýsir allt upp. Gunna var ein af þeim. Einstök og einlæg hugsjónamanneskja. Enginn gat staðist dillandi hláturinn, rámu röddina og blikið í augunum. Þvert á pólitískar línur heillaðist fólk af henni og hún gat fengið alla með sér í lið. Allir mátu heiðarleikann, töffaraskapinn, kærleikann og mennskuna. Hún sá fólk, lét það skipta sig máli og heyrði í því, alveg sama hvert það var eða hvaðan það kom. Hún notaði þessa krafta alla tíð til að búa til betra samfélag. Henni fannst ósanngjarnt að fólk fengi ekki sömu tækifæri í lífinu og barðist fyrir breytingum. Hún sá fólk þegar enginn annar sá það. Fólk sem þurfti á breytingum að halda og viðurkenningu á sínu lífi. Uppgjöf var ekki í boði af því að hún trúði því að allt væri hægt með viljann að vopni. Gunna var algerlega óhrædd við að tjá skoðanir sínar og barðist fyrir því sem hún brann fyrir, jafnvel þótt þær skoðanir væru ekki alltaf vinsælar þegar hún tjáði þær. Það er af því að hún hlustaði, meðtók, dró sínar eigin ályktanir og barðist fyrir þeim. Gunna er þekktust fyrir það í hinsegin samfélaginu að hafa verið fremst í flokki þegar kom að staðfestri samvist. Hún sá hverju þyrfti að breyta í lögunum, vann skýrslur og keyrði málin í gegn í þinginu. Allra magnaðast var hins vegar hvernig hún breytti hugarfari fólks með því að vera alltaf til staðar. Mæta á Hinsegin daga og viðburði Samtakanna ’78. Ræða við fólk um málefni hinsegin fólks. Kerfi fyrir fólk, ekki fólk fyrir kerfi, var mantra sem hún endurtók allt til síðasta dags. Guðrún Ögmundsdóttir var ein okkar helsta stuðningskona og fyrirmynd í því hvernig aðrir geta stutt hinsegin baráttu. Á einum af okkar síðustu kaffifundum, þá þrotin að kröftum, spurði hún mig hvað væri fram undan í baráttu hinsegin fólks. Ég útskýrði í stuttu máli hvað væri að gerast og hverju við vildum breyta. „Tótla mín, við bara gerum þetta. Við skulum alveg endilega bóka fund með ráðherra á næstu dögum og bara keyra þetta í gegn. Þetta er bara ein eða tvær reglugerðir. Ekkert mál elskan.“ Takk fyrir baráttuna og vináttuna! Tótla I. Sæmundsdóttir Í minningu Guðrúnar Ögmundsdóttu r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.