Skessuhorn - 13.01.2021, Síða 24
MIÐVIKUDAGUR 13. jAnúAR 202124
Framleiðslufyrirtækið norðan-
fiskur á Akranesi, sem sérhæfir sig
áframvinnslu sjávarafurða í stóreld-
hús og neytendapakkningar, fagn-
ar 20 ára afmæli á þessu ári. Fyrir-
tækið hefur að undanförnu verið að
þróa fjölda nýrra vörutegunda sem
það hefur sett á markað og fengið
góðar viðtökur og bíður nú upp á
yfir 300 vörutegundir af sjávarfangi
fyrir innanlandsmarkað. Fyrirtæk-
ið var upphaflega stofnað á Akur-
eyri árið 2001 en var flutt á Akranes
tveimur árum síðar. HB Grandi,
síðar Brim, keypti fyrirtækið 2014
en á síðasta ári keypti hópur fjár-
festa, sem að stærstum hluta er frá
Akranesi, fyrirtækið af Brimi og
ætlar sér að verða leiðandi í gæðum
og framboði í áframvinnslu sjávar-
afurða á Íslandi. Rætt er við Sig-
urjón Gísla jónsson framkvæmda-
stjóra norðanfisks um markaðs-
sókn fyrirtækisins og framtíðarsýn
og sömuleiðis við Ingu Ósk jóns-
dóttur stjórnarformann fyrirtækis-
ins. Á góma ber m.a. tilurð þess að
einstaklingar á Akranesi og af höf-
uðborgarsvæðinu sáu tækifæri í að
kaupa fyrirtækið, en einnig fram-
tíðarsýn hennar sjálfrar.
Hafa metnað
í vöruþróun
Sigurjón Gísli jónsson fram-
kvæmdastjóri norðanfisks segir að
fyrirtækið hafi mikinn metnað þeg-
ar kemur að vöruþróun. „Við hjá
norðanfiski höfum stöðugt ver-
ið að auka vöruframboð og hef-
ur fyrirtækið verið í mikilli sókn á
innanlandsmarkaði á undanförn-
um árum. Býður nú upp á um 300
vörutegundir af sjávarfangi. Með-
al annars lax, humarhala, brauðaða
fiskbita, þorsk, ýsu, síld og skelfisk.
Við áframvinnum fiskinn og sjáum
landsmönnum fyrir góðu sjávar-
fangi og einbeitum okkur að ís-
lenska markaðnum, sem er í versl-
unum, veitingamarkaði og stór-
eldhúsum,“ segir Sigurjón Gísli í
samtali við Skessuhorn. Hann seg-
ir að framleiðslu fyrirtækisins megi
skipta upp í þrjá megin flokka; þ.e.
laxavinnslu og áframvinnslu á laxi,
brauðun fiskbita og svo framleiðslu
á fiskréttum og öðrum pakkningum
fyrir neytendamarkaðinn. Einnig
er fyrirtækið orðið stór innflutn-
ings- og heildsöluaðili á ýmiskonar
sjávarfangi eins og rækju, skelfiski,
humri, túnfiski og fleiru.
Afurðirnar
í Bónusverslunum
„Afurðir okkar finnur þú í versl-
unum Bónus út um land allt,“ seg-
ir Sigurjón. „Við erum stöðugt að
þróa þær afurðir sem sendar eru á
markað. Við bjóðum upp á tilbúna
fiskréttir í álbökkum beint í ofninn
undir vörulínunni „Fiskréttir í mat-
inn,“ brauðaður fiskur í ýmiskonar
útfærslum og reyktur og grafinn lax
og silungur. Einnig erum við með
ferskan og frosinn lax. En í jóla-
mánuðinum margfaldast salan á
graflaxinum frá okkur og er hann á
borðum um þrjátíu til fjörutíu þús-
und heimila landsmanna um jólin.
Ekki má gleyma heitreykta laxin-
um sem er orðinn mjög vinsæll og
gríðarlega ljúffengur. Heitreiktur
lax er hollustuvara og er góður einn
og sér sem millimál, en hægt er að
gera skemmtilega rétti með honum
líka svo sem forrétti. nú er einn-
ig að koma úr vöruþróun hjá okku
sósa sem hentar sérstaklega vel með
heitreykta laxinum en það er nýja
„Sælkera piparrótasósan“ okkar.“
Síldin að slá í gegn
Þá segir Sigurjón Gísli að síldin
frá norðanfiski hafi slegið í gegn.
„Hugrún Sigurðardóttir, fram-
leiðslustjóri fyrirtækisins sem hef-
ur verið hjá norðanfiski frá upp-
hafi, á uppskriftina af síldinni sem
við köllum „Hátíðarsíld.“ Þetta er
alvöru síldaruppskrift þ.e. pækil-
og sykurverkuð lauksíld eins og svo
margir þekkja, en hefur hingað til
ekki verið í boði fyrir landsmenn í
verslunum. Í gæðakönnunum þeg-
ar síld fer í smökkun ómerkt fram-
leiðendum hefur uppskrift Hug-
rúnar alltaf þótt bragðast best. Þá
er humarinn alltaf vinsæll, rækj-
urnar og skelfiskurinn selst sérstak-
lega vel fyrir jól og páska. Við eig-
um þessar vörur alltaf til, en vegna
takmarkana á veiðiheimildum á ís-
lenskum humri flytjum við inn
danskan og skoskan humar. Þetta er
í raun sama varan en helsti munur-
inn er að danski og skoski humar-
inn er alla jafnan heldur smærri en
sá íslenski. Þá höfum við verið að
kynna nýja laxaplokkfiskinn okkar
en það er einn af fiskréttunum sem
kom úr vöruþróun hjá okkur í haust
þ.e. laxaplokkfiskur með sætkar-
töflum, piparrót og dilli, afskaplega
skemmtilegur réttur sem allir ættu
að prófa,“ segir Sigurjón.
Heimilin að kaupa
meira inn
„Við höfum einnig verið að þróa
hjá okkur eigin vörulínu í sósum
undir heitinu Sælkerasósur norð-
anfisks. Bæði eru þetta sósur sem
henta vel með því sjávarfangi sem
við seljum en einnig með öðrum
mat. Graflaxsósan frá okkur kom á
markað núna rétt fyrir jólin og svo
er piparrótasósa að detta í verslan-
ir núna á allra næstu dögum sem og
fleiri sælkerasósur í kjölfarið. Við
finnum fyrir aukinni fisksölu nú í
faraldrinum. Fólk kemst minna á
veitingahús og er þá að gera vel við
sig heima fyrir með humri, skel-
fiski og öðru skemmtilegu sjávar-
fangi. Einnig sjáum við að heimilin
kaupa meira heim og er hreinn fisk-
ur, t.a.m. þorskur, ýsa og lax vörur
sem fólk vill eiga heima í kistunni
til að elda hefðbundinn heimils-
mat,” segir Sigurjón.
Fagna 20 ára afmæli
á árinu
norðanfiskur fagnar 20 ára afmæli
sínu á þessu ári. En fyrirtækið var
stofnað á Akureyri árið 2001 í þeim
tilgangi að selja vandaðar fiskaf-
urðir til neyslu innanlands. Fyrir-
tækið flutti starfsemi sína til Akra-
ness árið 2003 þegar það samein-
aðist Íslenskt-Franskt eldhúsi og
bar sameinað félag nafnið norð-
anfiskur. Upphaflega átti fyrirtæk-
ið að framleiða og selja fiskafurð-
ir á innanlandsmarkaði. Þróunin
var hins vegar sú að markaðssvæði
fyrirtækisins stækkaði fljótt og náði
um meginland Evrópu. En fyrir-
tækið dróg úr umsvifum sínum er-
lendis og einbeitir sér nú að innan-
landsmarkaði sem hefur skilað góð-
um árangri. HB Grandi, nú Brim,
keypti síðan allt hlutafé í norðan-
fiski árið 2014, en í maí á síðasta
ári keypti hópur fjárfesta frá Akra-
nesi og af höfuðborgarsvæðinu allt
hlutafé fyrirtækisins af Brim hf. Hjá
fyrirtækinu starfa um 30 manns í
dag.
Austfirðingur
að upplagi
Sigurjón er búinn að starfa sem
framkvæmdastjóri norðanfisks frá
árinu 2017. „Ég er fæddur og upp-
alinn í neskaupstað og kynntist ég
þar snemma útgerð og starfaði við
hana til sjós og lands. Árið 1999
fór ég í sjávarútvegsfræði við Há-
skólann á Akureyri og útskrifaðist
þaðan sem sjávarútvegsfræðingur
árið 2003. Þegar ég tek við rekstri
norðanfisks var ég nýfluttur heim
frá Englandi en þar starfaði ég sem
framkvæmdastjóri sjávarfangs hjá
stórverslanakeðjunni Morrisons su-
permarkets í þrjú ár. Kom þar m.a.
að vöruþróun og vinnslu sjávar-
fangs, sem ekki er ólíkt því sem við
vinnum með í dag hjá norðanfiski
og nýtist mér sú reynsla mjög vel.
En auðvitað eru stærðargráðurn-
ar og markaðurinn ekki sambæri-
legur hér og í Englandi. Morrisons
er með um 550 risaverslanir og 130
þúsund manna starfslið, en mark-
aðssetningin og vörurnar þær sömu.
Áður var ég sölustjóri og síðar fram-
kvæmdastjóri alþjóðlegs söluteymis
hjá Marel hf og starfaði á þeim tíma
víðs vegar um heiminn. En þar áður
var ég framleiðslustjóri hjá Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum í sex ár,“
segir Sigurjón að endingu.
Heimafólk í forystu
„Við erum bjartsýn og sjáum mik-
il tækifæri til sóknar,“ segir Inga
Ósk jónsdóttir stjórnarformaður
norðanfisks, en hún og eiginmaður
hennar Gísli Runólfsson eru stærstu
hluthafarnir í fyrirtækinu. „Við telj-
um að norðanfiskur, sem á sér langa
og farsæla sögu á Akranesi, eigi sér
bjarta framtíð og að rekstrargrund-
völlurinn sé góður. Fyrirtækið hefur
verið að þróa fjölda nýrra vöruteg-
unda sem hafa verið settar á mark-
að og notið mikilla vinsælda. Við
höfum til að mynda átt mjög gott
samstarf við Bónus um að breyta og
fjölga vörulínum hjá verslanakeðj-
unni. Auk þess höfum við verið að
þjónusta aðrar verslanir, veitinga-
staði og stóreldhús,” segir Inga Ósk
í samtali við Skessuhorn.
Gefa í eftir faraldur
„Sem dæmi um þau fyrirtæki sem
við þjónustum er Isavia en eftir að
kórónaveirufaraldurinn skall á þá
drógust þau viðskipti saman og því
lögðum við áherslu á að efla við-
skipti okkar á nýjum vettvangi og er
samstarfið við Bónus eitt að því. Við
eru að undirbúa okkur og ætlum að
verða tilbúin að gefa enn frekar í
þegar faraldrinum líkur.“
Inga Ósk sagði að það hefði ver-
ið öflugur hópur sem keypti fyrir-
tækið af Brimi á síðasta ári. „Þetta
er hópur sem vildi veðja á fram-
tíðarsýn undir forystu Sigurjóns
Gísla jónssonar framkvæmdastjóra
norðanfisks. Einnig fannst okkur
mikilvægt að fyrirtækið yrði áfram
á Akranesi. Það sýndi styrk fjárfest-
ingahópsins á þessum óvissutímum
í íslensku efnahagslífi að fyrirhuguð
var sókn frá Akranesi,“ segir Inga
Ósk. „Sævar Freyr Þráinsson bæjar-
stjóri var öflugur við það að fá fjár-
festa að borðinu varðandi kaupin
og á stóran þátt í kaupferlinu með
ráðgjöf sinni og er sjálfur hluthafi.
Einnig kom lögmannsstofan LEX
með Örn Gunnarsson í farabroddi
og KPMG að málinu. Einnig feng-
um við Gísli til liðs við okkur fjár-
festa úr Reykjavík,“ segir Inga Ósk
og bætir við að upphafið að aðkomu
þeirra að norðanfiski hefði verið
sú að Kristján Baldvinsson, öðru
nafni Kiddi pípari, hefði sett sig í
samband við þau með þá hugmynd
að fá þau í hóp fjárfesta til þess að
kaupa norðanfisk, því fyrirtækið
félli ekki lengur að rekstrarlíkani
Brims og væri væntanlega að fara
í söluferli. Inga Ósk segir að þeim
hefði strax litist vel á hugmyndina.
„Gísli hafði nýlega selt hlut sínn í
Runólfi Hallfreðssyni og var opinn
fyrir því að fjárfesta. úr varð að við
komum að kaupunum og við erum
bjartsýn. Við sjáum mikil tækifæri
til sóknar hjá fyrirtækinu í náinni
framtíð,“ segir Inga Ósk jónsdóttir
að lokum.
se
Norðanfiskur á Akranesi styrkir stöðu
sína á innanlandsmarkaði
Öll áhersla lögð á ferskleika og vöruþróun
Síðastliðið vor var skrifað undir kaup hóps fjárfesta á Norðanfiski sem þar
með fór úr eigu Brims. Myndin var tekin við það tilefni en á henni eru fulltrúar
kaupenda, seljenda og ráðgjafa við söluferlir. Á borðinu fyrir framan má sjá hluta
af framleiðsluvörum Norðanfisks. Ljósm. mm.
Sigurjón Gísli Jónsson framkvæmdastjóri Norðanfisks.
Heitreyktur lax er nú meðal afurða fyrirtækisins.