Skessuhorn - 24.03.2021, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 24. MARs 20216
Rótarý minnir
á söfnun
BORGARFJ: Rótarýklúbb-
ur Borgarness minnir á söfn-
unarátak klúbbsins til kaupa
á stafrænum þjálfunarbún-
aði fyrir slökkvilið Borgar-
byggðar. Þeir sem vilja leggja
málefninu lið geta greitt inn
á reikning 0354-03-400624
kt. 530586-2009 í Arion
banka í Borgarnesi fyrir 15.
apríl nk. „Tökum nú hönd-
um saman og styðjum fram-
faramálefni í héraði,“ segir
í tilkynningu frá klúbbnum.
-mm
Styrkir til
menningarfyr-
irtækja og ein-
yrkja
LANDIÐ: Nú hefur ríkis-
sjóður greitt út 357 millj-
ónir króna í tekjufallsstyrki
til rekstraraðila í menning-
argeiranum og skapandi
menningargreinum. Heild-
arfjárhæð tekjufallsstyrkja
er hins vegar níu milljarð-
ar króna. Greiðsla styrkja til
menningarfyrirtækja hófst
í janúar en markmið þeirra
er að styðja við einyrkja og
fyrirtæki sem orðið hafa fyr-
ir meira en 40% tekjufalli
vegna sóttvarnaráðstafana
eða takmarkana vegna Co-
vid-faraldursins á tímabilinu
frá apríl til október 2020.
-mm
Menningar-
styrkir auglýstir
B O R G A R B Y G G Ð :
Menningarsjóður Borgar-
byggðar auglýsir eftir um-
sóknum í sjóðinn. Tilgang-
ur hans er að efla menn-
ingu í sveitarfélaginu og er
sérstök rækt lögð á gras-
rót í menningarlífi. Lögð er
áhersla á að styrkja einstak-
linga og félagasamtök. „Um-
sókninni þarf að fylgja sund-
urliðuð kostnaðaráætlun fyr-
ir verkefnið ásamt greinar-
gerð. styrkþegar síðasta árs
eru minntir á að skila inn
skýrslu um framgang og lok
verkefnis fyrir næstu styrk-
veitingu. skýrsluskil eru
skilyrði fyrir styrkveitingu til
nýrra verkefna. Umsækjend-
ur eru hvattir til að kynna sér
reglur sjóðsins áður en um-
sókn er lögð inn,“ segir í til-
kynningu. sótt er um raf-
rænt í gegnum þjónustugátt
á borgarbyggd.is og þarf að
vera búið að skila inn um-
sókn fyrir 7. apríl nk. -mm
Landaði salti í
höfnunum
SNÆFELLSNES: saltskipið
Wilson Cork kom til hafnar í
Ólafsvík síðastliðinn föstudag
og lóðsaði björgunarbátur-
inn Björg það síðasta spölinn.
Það voru starfsmenn Ragnars
og Ásgeirs sem sáu um upp-
skipunina en alls var skipað
upp 1200 tonnum í Ólafsvík.
Fóru 500 tonn í KG fiskverk-
un í Rifi, 200 tonn í Valafell
í Ólafsvík og 500 tonn voru
sett á lager. Þaðan fór skip-
ið til Grundarfjarðar þar sem
Djúpiklettur sá um uppskip-
un á mánudaginn og var skip-
að upp 500 tonnum þar á lag-
er. Loks lagði skipið af stað til
stykkishólms í gærmorgun.
-þa
Fjallað um sam-
einingu BÍ og
búgreinafélaga
LANDIÐ: Búnaðarþing fór
fram á mánudag og í gær,
þriðjdag, í súlnasal Hótels
sögu. Gert var ráð fyrir að
þinginu lyki síðdegis í gær,
eftir að blaðið var sent í prent-
un. stærsta mál þingsins var
tillaga sem gengur meðal ann-
ars út á sameiningu Bænda-
samtök Íslands og búgreina-
félaganna – og breyta þar með
félagskerfi landbúnaðarins.
-mm
samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
settu af stað verkefnið „Nýsköpun-
arnet Vesturlands“ á dögunum en
það hlaut styrk í desember 2020 úr
stefnumótandi byggðaáætlun fyr-
ir árin 2018-2024 sem ætlað er að
styðja sértæk verkefni sóknaráætl-
anasvæða. Verkefnið Nýsköpunar-
net Vesturlands felst í því að tengja
saman þá sem vinna að nýsköpun
á Vesturlandi og efla þau nýsköp-
unarsetur og samvinnurými sem
eru að stíga sín fyrstu spor í flest-
um sveitarfélögum í landshlutan-
um. Á svæðinu eru auk þess tveir
háskólar, þrír framhaldsskólar, sí-
menntunarmiðstöð, þekkingarset-
ur og öflugt atvinnulíf. Markmiðið
með Nýsköpunarnetinu er m.a. að
tengja saman setrin og hið öfluga
þekkingarsamfélag sem er á Vest-
urlandi.
Nýsköpunarsetrin og samvinnu-
rýmin verða í lykilhlutverki í ný-
sköpunarnetinu. stefnt er að því
að þar verði hægt að nálgast fag-
legan stuðning og sækja erindi og
fræðslu um frumkvöðla og nýsköp-
un. Nýsköpunarnetið stuðli þann-
ig að aukinni umræðu og skoð-
anaskiptum og efli tækifæri til at-
vinnusköpunar á Vesturlandi.
Í nýskipaðri verkefnastjórn Ný-
sköpunarnetsins sitja Gísli Gísla-
son sem er formaður stjórnarinn-
ar, Helena Guttormsdóttir, stefán
Valgarð Kalmansson, Jakob Krist-
jánsson og Rut Ragnarsdóttir.
starfsmaður verkefnisstjórnar er
Helga Guðjónsdóttir atvinnuráð-
gjafi. Jafnframt sitja fundi stjórn-
arinnar Ólafur sveinsson atvinnu-
ráðgjafi og Páll Brynjarsson fram-
kvæmdastjóri. „Verkefnastjórnin
hittist á fyrsta fundi nýverið þar
sem farið var yfir stöðuna á Vest-
urlandi og línur lagðar um næstu
skref. skemmtilegar umræður
sköpuðust um málið og verkefna-
stjórnin hlakkar til áframhaldandi
vinnu við Nýsköpunarnet Vestur-
lands,“ segir í frétt ssV af fund-
inum.
mm
Nýsköpunarnet Vesturlands verður til
Fengu viðurkenningar fyrir
úrvalsmjólk hjá Auðhumlu
Hefð er fyrir því að halda deildar-
fundi Auðhumlu svf. í marsbyrj-
un ár hvert. Á síðastliðnu ári var
þó beygt út af þeirri venju þar sem
fundurinn var haldinn í júníbyrjun
vegna Covid-19. Þann 18. mars sl.
var deildarfundur Auðhumlu hér
á svæðinu haldinn með rafrænu
formi. svæðið var óvenju stórt sem
lá undir fundinum, eða allt frá Mos-
fellsdal að skagafirði. Fundarstjóri
ásamt forsvarsmönnum Auðhumlu
svf. og Ms ehf. voru stödd í fund-
arherbergi í höfuðstöðvum Ms á
Bitruhálsi í Reykjavík. Forsvars-
menn fóru yfir drög að ársreikning-
um félaganna og málefni þeirra. Þá
var nýbreytni að kosningar til trún-
aðarstarfa fóru fram með rafrænum
hætti á fundinum og gengu þær vel
fyrir sig.
Að venju voru veittar viðurkenn-
ingar til bænda sem höfðu fram-
leitt úrvalsmjólk á árinu 2019. Þeir
voru (á svæðinu snæfellsnes- og
Mýrasýsludeild, Borgarfjarðar-
deild og Hvalfjarðardeild): Hæg-
indi og Brekkukot í Borgarfjarð-
ardeild, Gunnlaugsstaðir, Dals-
mynni, stakkhamar, syðri-Knarr-
artunga og Nýja-Búð í snæfellsnes-
og Mýrasýsludeild og Neðri-Háls í
Hvalfjarðardeild.
Venja er fyrir að aðalfundur Auð-
humlu sé haldinn í apríllok. Hvort
það næst og með hvaða hætti ræðst
af stöðu heimsfaraldurs, sem er
óútreiknanlegur.
Laufey Bjarnadóttir