Skessuhorn - 24.03.2021, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 24. MARs 2021 15
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Kjalar stéttarfélags
verður haldinn fimmtudaginn 25. mars kl. 17
í Hömrum í menningarhúsinu Hofi á Akureyri
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning fulltrúa á þing BSRB
3. Önnur mál
Stjórn Kjalar stéttarfélags
Fjöldi fundarmanna er takmarkaður
í samræmi við sóttvarnarreglur.
Streymi frá fundinum
verður á heimasíðu Kjalar,
www.kjolur.is
stjórnendur hjúkrunar- og dvalar-
heimilisins Brákarhlíðar hafa sent
heilbrigðisráðherra ítrekun á er-
indi sem þeir sendu 10. nóvember
síðastliðinn. Í því var óskað eftir
að þau fjögur biðrými sem Brák-
arhlíð var með samkvæmt sér-
stökum samningi vegna aðstæðna
á LsH, yrðu samþykkt varanlega
og hins vegar að fimm dvalarrým-
um af sautján á heimilinu yrðu
samþykkt sem hjúkrunarrými
enda uppfylla þau allar þær kröfur
sem til þeirra eru gerðar.
Ekki hafa borist nein viðbrögð
við þessu erindi önnur en þau sem
Birni Bjarka Þorsteinssyni fram-
kvæmdastjóra heimilisins barst í
tölvupósti 27. janúar síðastliðinn
þar sem fulltrúi sjúkratrygginga
Íslands skrifaði: „Við erum loks að
fá niðurstöðu varðandi framhald-
ið á þessum tímabundnu rýmum.
Því miður er okkur frekar þröngt
skorinn stakkur varðandi fjölgun
rýma utan höfuðborgarsvæðisins
en við getum boðið framlengingu
á tveimur tímabundnum rýmum
á Brákarhlíð út maí. Ráðuneyt-
ið telur mikilvægt að þessi rými
yrðu notuð sem biðrými fyrir fólk
af LsH til að létta af álagi þar…“
Þá segir: „Varðandi skipti á dval-
arrýmum fyrir hjúkrunarrými er
það möguleiki en þá í hlutfallinu
tvö dvalarrými á móti einu hjúkr-
unarrými, en ekki eitt á móti einu
eins og þið óskuðuð eftir. Ef það
er eitthvað sem ykkur hugnast
láttu mig þá endilega vita,“ skrif-
aði fulltrúi sjúkratrygginga Ís-
lands í svar sínu við erindi Brák-
arhlíðar.
Um þetta svar sÍ segja þeir Björn
Bjarki og Jón G Guðbjörnsson for-
maður stjórnar m.a. í bréfi til ráðu-
neytisins: „Varðandi hjúkrunar-
rými vs. dvalarrými skal því svarað
í fullri hógværð að okkur hugnast
ekki skipti á íbúðarrýmum í anda
ráðuneytisins eða sÍ. Við höfum
ítrekað rökstutt afstöðu okkar í því
efni með því að vísa til almenns
skorts á hjúkrunarrýmum, viðvar-
andi biðlista í Brákarhlíð og þess að
öll íbúðarrými í Brákarhlíð uppfylla
skilyrði sem gerð eru til hjúkrunar-
rýma; þökk sé nýlegri uppbygg-
ingu og endurbyggingu heimilisins.
Einnig höfum við mótmælt viðmiði
ráðuneytisins varðandi þörf fyrir
hjúkrunarrými á starfssvæði HVE,
að þar sé horft til meðaltalsþarfar
svæðisins í heild, þrátt fyrir gjör-
ólíkar aðstæður innan þess, enda
er svæðið stórt og dreift um þrjá
landshluta. Varðandi hinn þáttinn,
sem við setjum framar í röð ef því
er að skipta, þ.e. óskina um að þau
fjögur biðrými sem við vorum með
til síðustu áramóta verði gerð var-
anleg, þá uppskárum við tvö bið-
rými, framlengt til bráðabirgða til
loka maí. Borið er við að sÍ sé frek-
ar þröngt skorinn stakkur varðandi
fjölgun rýma utan höfuðborgar-
svæðisins.“
Loks segir í bréfi forsvarsmanna
Brákarhlíðar: „Það væri gríðarlega
dýrmætt í öllum rekstri Brákarhlíð-
ar að til þessa væri horft nú, bæði
hvað varðar þau tvö tímabundnu
rými sem heimild fyrir til 31. maí
nk. og að einnig verði horft til þess
að heimilið getur útbúið tvö við-
bótarrými með stuttum fyrirvara.
Undirritaðir vænta enn skilnings
og jákvæðra viðbragða við þessu
endurtekna erindi og eru reiðu-
búnir til samtals og samvinnu um
þætti þessa erindis við alla viðtak-
endur þess,“ skrifa þeir Jón G Guð-
björnsson formaður stjórnar og
Björn Bjarki Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri. Þingmönnum kjör-
dæmisins og sjúkratryggingum Ís-
lands var sent afrit af bréfinu til
ráðuneytisins.
mm
Tregðu gætir í kerfinu á fjölgun
hjúkrunarrýma í Brákarhlíð
Hjúkrunar- og dvalarheimilið Brákarhlíð. Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson.