Skessuhorn - 24.03.2021, Page 26
MIÐVIKUDAGUR 24. MARs 202126
Pennagrein
svokölluð flygildi, eða drónar, hafa
á liðnum árum verið að ryðja sér til
rúms og er nú á færi almennings
að eignast slík tæki. Meðal þeirra
sem hafa keypt dróna eru fréttarit-
arar skessuhorns sem hver á fæt-
ur öðrum tekur nú tæknina í sína
þjónustu. Nýverið keypti Alfons
Finnsson fréttaritari skessuhorn í
snæfellsbæ dróna. Heimsótti hann
Tómas Frey Kristjánsson stall-
bróður sinn í Grundarfirði og fékk
leiðsögn um notkun tækisins. síðan
var tekið á flug. Meðfylgjandi eru
tvær skemmtilegar loftmyndir af
þéttbýlisstöðum í snæfellsbæ sem
Fonsi tók í einni af fyrstu flugferð-
unum á nýja tækinu. Annars vegar
í Ólafsvík en hins vegar af Rifi og
Hellissandi. mm
Það eru fúin verkfærin sem Teitur
Björn Einarsson reynir að hand-
leika í grein sinni í skessuhorni á
dögunum. Upp úr töskunni tín-
ist eitt og annað gamalkunnugt s.s.
slagorðin um aðför að landsbyggð-
inni, niðurrif, skattaáráttu og van-
þekkingu á lögmálum í greininni.
Allt er þetta harla aumkunarvert
og hittir Teit og kumpána hans í
sjálfstæðisflokknum illilegast fyr-
ir sjálfa.
Sviðin jörð – meira af
svo góðu?
Teitur dregur ekkert af sér, stekk-
ur upp á afturlappirnar til að verja
kerfi sem lagt hefur byggðarlögin
eitt af öðru í rúst, skilið eftir sviðna
jörð. Þetta kerfi sem komið hef-
ur samfélögum sem ættu að standa
honum nærri á vonarvöl, rænt
íbúana bjargræðinu, hneppt þá í
gíslingu fyrirtækja sem sum hver
skeyta hvorki um skömm né heið-
ur utan lands sem innan. Þessum
öflum kemur Teitur Björn til varn-
ar af öllum mætti. Finnst íbúum á
þessu landssvæði svona málflutn-
ingur sannfærandi og boðlegur?
Hverra erinda gengur frambjóð-
andi sem trúir á þessa hugmynda-
fræði? Eru það hagsmunir og vel-
ferð almennra íbúa og byggðarlaga
sem Teiti eru efstir í huga? Er hann
kannski fremur með hugann við
ofsagróða fámennrar hagsmuna-
klíku? Hann þekkir söguna. Þurfa
landsmenn fleiri varðmenn af hans
tagi á Alþingi? Ég held ekki.
Fyrirlitning á hags-
munum byggðanna
Bábiljur Teits eru margar og allar af
sömu sort. Einlægni hans og trúar-
leg vandlæting leynir sér ekki, en
er um leið grátbrosleg þegar hann
spyr hversu langt samfylkingin ætli
að ganga gegn byggðum landsins.
Í hvaða heimi lifir Teitur Björn?
Þekkir hann ekkert til aðstæðna á
landsbyggðinni og á hverju hefur
gengið. Byggðir hafa hrunið, fólk
hefur flæmst í burtu frá rótgrónum
sjávarútvegsbæjum þar sem fisk-
urinn er spriklandi skammt undan
landi. samþjöppunin hefur verið
stórfelld og nýliðun nánast ómögu-
leg, hinir stóru bara orðið stærri
og stórfelldur ábati fallið æ færri
í skaut. Nær er að spyrja; hversu
lengi ætlar sjálfstæðisflokkurinn
að styðja og ýta undir þau öfl sem
eru nú að verki, sem engu mannlífi
eira og hafa gróðahyggjuna eina að
markmiði.
Grænland, með
fullri virðingu
Aðstæður eru mismunandi eft-
ir greinum sjávarútvegs, stærð og
umfangi. Afkomutölur og fjárfest-
ingar út um hvippinn og hvappinn
tala hins vegar sínu máli. Eigend-
ur sjávarútvegsfyrirtækja hafa feng-
ið rúmlega 100 milljarða í hreinan
arð á innan við áratug.
Enginn deilir um að ábatasamur
rekstur er forsenda fyrir uppbygg-
ingu og framförum. Krafa sam-
félagsins er hins vegar sú að sann-
gjarn hluti auðlindarentunnar skili
sér til innviða samfélagsins, s.s. heil-
brigðiskerfis, skólakerfis, vega- og
hafnagerðar. Það var rauði þráður-
inn í grein minni þar sem ég benti
á leið Grænlendinga. Á Græn-
landi er það skýrt og ekki véfengt
að þjóðin á auðlindina og krafan er
einbeitt um að hún skili þjóðinni
umtalsverðum tekjum. Þar lýkur
samlíkingu við grænlenska kerfið.
Viðsnúningur fyrir
byggðirnar
samfylkingin berst fyrir réttlátum
og sanngjörnum breytingum svo
skapa megi viðsnúning fyrir byggð-
irnar, opna fyrir nýliðun og eðli-
legt rekstrarumhverfi í þágu sjáv-
arbyggða. Þetta útmála skoðana-
systkin Teits og hann sjálfur sem
hreint niðurrif og ógn.
Viðhorf og stefna samfylkingar-
innar er skýr og málefnaleg. Það
er réttlætismál að fólkið í landinu
fái að njóta arðsins sem eign þess
á fiskveiðiauðlindinni skapar og að
þjóðin fái fullt verð fyrir veiðileyf-
in. Þann arð gætum við notað til
að efla okkar nauðsynlegu og fjöl-
breytilegu innviði.
Við Íslendingar erum sem betur
fer rík af auðlindum. Mörg lönd í
sömu stöðu glíma hins vegar við
bölvun auðlindanna, spillinguna og
það gerum við líka. Hér á landi birt-
ist hún helst í því að stórútgerðir
ausa fé í stjórnmálamenn og núver-
andi ríkisstjórnarflokka til að reyna
að tryggja sérhagsmunina auk þess
sem þær halda úti dagblaði sem
talar þeirra máli. Auðlindin hefur
verið að safnast á fárra hendur og
dæmi eru um óeðlileg völd stórút-
gerða í samfélaginu. slíkt ástand er
ekki í hag almennings.
Óréttlætið á kostnað
sjávarbyggða
Þótt margt hafi tekist vel í sjávarút-
vegi hér á landi þá vantar enn nauð-
synlegan þátt. Það vantar réttlætið
og fullvissuna um að samfélagið allt
njóti nægilega góðs af auðlindanýt-
ingunni. Auðlindanýting er ekki
sjálfbær til lengri tíma nema hún
leiði til jafnvægis þriggja þátta; um-
hverfisáhrifa, efnahagsáhrifa og
samfélagsáhrifa.
Við höfum nú þegar tekið tvö
skref af þessum þremur við stjórn
fiskveiða. Kvótakerfið var sett á af
umhverfisástæðum, til að vernda
nytjastofnana og það var áhrifa-
ríkt skref. Það olli hins vegar mis-
rétti milli kynslóða nýrra og eldri
útgerðarmanna og hamlaði nýlið-
un. Nokkrum árum síðar var fram-
sal kvóta heimilað af efnahagsleg-
um ástæðum og það hefur leitt til
hagræðingar í greininni. sú að-
gerð hefur hins vegar víða haft nei-
kvæð samfélagsleg áhrif. Með sölu
kvóta er mögulegt að kippa í einni
svipan megin stoðum undan heilu
byggðalögunum eins og dæmin
sanna. Fólkið í sjávarbyggðunum
hefur fórnað öllu sínu við hagræð-
inguna en ágóðinn að mestu runnið
til einkaaðila.
Virkjum markaðs-
lögmálin – tryggjum
nýliðun
samfylkingin hefur lengi talað fyr-
ir útboði á aflaheimildum. sú að-
gerð ein og sér færir samfélaginu
réttlátari hlut í auðlindaarðinum
og gerir nýliðun í greininni mögu-
lega. Til þess að ná sátt um hvernig
veiðigjöld eru ákvörðuð og tryggja
að auðlindinni sé ekki úthlutað á
undirverði, liggur beinast við að
nota markaðinn til að ákveða verð-
ið. svigrúm innan kerfisins verð-
ur meira með tilboðsmörkuðum
sem veitir best reknu fyrirtækjun-
um aukin tækifæri hvort sem þau
eru gömul eða ný. Í útfærslu út-
boðsleiðar er auðvelt að taka til-
lit til byggðasjónarmiða, koma í
veg fyrir samþjöppun og virða sér-
stöðu minni útgerða. Mikilvægt er
að taka viðráðanleg skref í áföngum
og ef rétt er á málum haldið leið-
réttir útboðsleiðin óréttlætið.
Rétt er að minna á að kvótaút-
boð á vegum einkaaðila í sjávarút-
vegi hefur verið heimilt í áratugi.
Kvótinn þar er seldur hæstbjóð-
enda og verðið er því miður him-
inhátt. Ástæðan er fyrst og fremst
mikil eftirspurn og lítið fram-
boð og verðið svokallað jaðarverð.
Uppboðsgjaldið á þessum markaði
rennur allt í vasa kvótaþega en ekki
til þjóðarinnar. Ef við bætum við
það framboð er líklegt að nýliðar
og kvótalitlar útgerðir geti fengið
kvótann á mun lægra og réttlátara
verði en nú býðst. Og afraksturinn
rennur til þjóðarinnar.
Sveitarfélögn
skipta máli
Með því að sveitarfélög fái aukna
hlutdeild í arðinum t.d. í gengum
sóknaráætlun landshluta, gætum
við styrkt stöðu þeirra til uppbygg-
ingar með hugviti heimamanna.
Útboð tryggir fullt verð fyrir
sjávarauðlindina. Útgerðarmenn
þyrftu þá ekki lengur að treysta á að
stjórnmálamenn ákveði veiðigjald
sem er þeim þóknanlegt. Þannig
getum við náð nauðsynlegri sátt
um sjávarútvegsmál. Fólkið í land-
inu fengi notið arðsins af auðlind-
inni til uppbyggingar í sveitarfélög-
unum og til almennrar velferðar.
Þessar sanngjörnu og heilbrigðu
leiðir leggjum við jafnaðarmenn á
borðið og viljum ræða við liðsmenn
Teits Björns og félaga. Miðað við
forherðingu undanfarinna missera
er ólíklegt að á þeim bæjum þyki
þetta spennandi kostir. Hingað til
hafa nefnilega fáir setið við veislu-
borð þar sem ekkert réttlæti hefur
ríkt. Því verður að breyta.
Guðjón S. Brjánsson
Höf. er alþingismaður fyrir Sam-
fylkiningu í NV kjördæmi
Breytt útlit
Anna sigga förðunarfræðingur og hárgreiðslukona
tók hana skúlínu Guðmundsdóttur í smá meðferð
í Breyttu útliti að þessu sinni. Myndirnar tala sínu
máli, en þess má geta að allar förðunarvörurnar sem
Anna sigga notaði eru frá Lancome og fást í verslun-
inni Bjargi á Akranesi. mm
Skúlína til í extreme meðferð.
Skúlína með í breyttu útliti
Samstarfsfélagar hennar þekktu ekki konuna þegar
Anna Sigga sendi ljósmyndina á ritstjórn.
Fréttaritarar drónavæðast
Fúin viðhorf frambjóðandans