Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 20. tbl. 24. árg. 19. maí 2021 - kr. 950 í lausasölu
Crispy chicken burger special
1.795 kr.
Máltíð
Tilboð gildir út maí 2021
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
sími 437-1600
Saga Refilsins
frá Bayeux
á Söguloftinu
Í flutningi Reynis
Tómasar Geirssonar
Næstu sýningar:
Sunnudaginn 23. maí kl. 16:00
Sunnudaginn 30. maí kl. 16:00
Miðasala og borðapantanir:
landnam@landnam.is
og í síma 437-1600
Á sunnudaginn héldu nokkrir félagar í björgunarsveitum og Slökkviliði Borgarbyggðar bátaæfingu á Skorradalsvatni. Auk þess að liðka tæki og mannskap var prófað að
setja vatnsdælu um borð í bát og dæla í land. Ennþá ríkir hættustig almannavarna vegna þurrka og hættu á gróðureldum og vilja menn vera við öllu búnir. Sjá nánar bls. 25.
Ljósm. Kristín Jónsdóttir.
Grásleppuveiði hefur verið afar góð
á þessari vertíð en margir hafa nú
lokið veiðum. Útlit er fyrir að ver-
tíðin verði með hæstu meðalveiði á
bát frá upphafi, en hún stendur nú í
tæpum 40 tonnum á bát. Verðið er
hins vegar lágt miðað við síðustu ár,
en algengt verð fyrir óskorna grá-
sleppu er nú 130 krónur fyrir kílóið
en var um 230 krónur í fyrra. Þrír
bátar hafa nú landað yfir hundrað
tonnum af grásleppu á vertíðinni,
en þeir eru Sigurey ST með ríflega
110 tonn, Hlökk ST með 107 tonn
og Rán SH-307 með ríflega hundr-
að tonn. Eiður Ólafsson á Ísak AK
er einnig í hópi þeirra sem gert hafa
góða vertíð, landaði 89,7 tonnum á
Akranesi.
Flestir bátar hafa nú lokið ver-
tíð ef frá eru taldir þeir sem gera
út til veiða á innanverðum Breiða-
firði þar sem veiðar mega hefjast á
fimmtudaginn. Veiðiráðgjöf Hafró
gerir ráð fyrir að veidd verði alls
9.040 tonn á vertíðinni og er búið
að veiða tæplega sex þúsund tonn.
Veiðiráðgjöfin gerir ráð fyrir að
22% veiðanna verði á innanverðum
Breiðafirði.
Feðgarnir Magnús Emanúelson
og Jón Þór Magnússon gera út á
Rán SH. Þeir luku met grásleppu-
vertíð sinni nú á dögunum; lönd-
uðu 100 tonnum og 40 kílóum bet-
ur sem telst vera metafli á grásleppu
í Breiðafirði. Með þeim réri einn-
ig Jóhannes Stefánsson tvær vikur
veiðitímabilsins. Afli Ránar á vertíð-
inni fékkst í 26 róðrum og spann-
aði leyfilega 40 daga. Mest fiskaðist
6.887 kg í einum róðri. Í samtali við
fréttaritara sagði Magnús að hann
hefði aldrei upplifað annað eins mok
á einni vertíð hjá sér en hann hefur
stundað grásleppuveiðar á bátum
sem Oliver ehf. gerir út undanfarin
ár. Hann segir að á síðasta ári hafi
veiðin ekki verið neitt sérstök, aflinn
um 40 tonn í 27 löndunum. Þegar
Magnús er spurður hvaða skýringu
hann hafi á þessum mikla afla nú
segir hann að kannski sé ein af þeim
sú að þeir byrjuðu veiðar seinna að
þessu sinni eða 16. mars í fyrra, en
6. apríl nú. Þá hafi tíðin einnig verið
einstaklega góð í vor. Magnús segir
að lítil þorskgengd hafi verið í netin
hjá þeim á þessari vertíð.
mm/þa
Ríflega hundrað tonna grásleppuvertíð feðganna lokið
Feðgarnir Magnús og Jón Þór kampakátir að lokinni síðustu löndun úr Rán SH.
Hagstæðustu bílalánin*
arionbanki.is *Skv. aurbjorg.is
Bílalán Arion banka standa öllum til boða. Þú þarft ekki að vera í
öðrum viðskiptum við okkur til að njóta bestu kjara á bílafjármögnun
sem í boði eru á Íslandi samkvæmt fjártæknivefnum Aurbjörgu.