Skessuhorn - 19.05.2021, Page 9
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 2021 9
AUGLÝSING UM NIÐURSTÖÐU SVEITARSTJÓRNAR
BORGARBYGGÐAR VEGNA SKIPULAGS
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 8. apríl 2021 eftirfarandi
tillögur samkvæmt 32. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022, breytt landnotkun við Ytri-Skeljabrekku,
landnotkunarreitir F45 og Í7.
Deiliskipulag – Frístundabyggð og íbúðarbyggð í landi Ytri-Skeljabrekku.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Borgarbyggðar á www.borgarbyggd.is
Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum
um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að
stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri
ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í
B-deild Stjórnartíðinda.
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér með auglýstar tillögur að
nýju deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Deiliskipulag fyrir byggingarlóð í landi Stóra-Áss
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. maí 2021 að auglýsa tillögu að nýju
deiliskipulagi í landi Stóra-Áss í Borgarbyggð.
Deiliskipulagið tekur til tveggja lóða innan 5 ha svæðis í landi Stóra-Áss. Á annarri lóðinni
er heimilt að byggja íbúðarhús og hin er ætluð fyrir fjölnotahús/smiðju og hesthús. Heilda
byggingarmagn er allt að 650 m2. Aðkoma að lóðum verður af Hálsasveitarvegi (518).
Deiliskipulag Bjarnastaðir
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 12. maí 2021 að auglýsa tillögu að nýju
deiliskipulagi á Bjarnastöðum í Hálsasveit, Borgarbyggð.
Deiliskipulagið tekur til bæjarstæðis jarðarinnar Bjarnastaðir. Svæðið er 5,5 ha að stærð
og innan þess eru skilgreindar 3 íbúðarhúsalóðir ásamt landbúnaðarbyggingum. Aðkoma
að lóðum er af Hvítársíðuvegi (523-02).
Ofangreindar deiliskipulagstillögur eru aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar www.
borgarbyggd.is frá 19. maí 2021 til og með 2. júlí 2021. Ef óskað er eftir nánari kynningu
á ofangreindri tillögu þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemd við auglýstar skipulagstillögur og er frestur til að skila inn athugasemdum
til 2. júlí 2021.
Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Bjarnabraut 8, 310
Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulagsfulltrui@borgarbyggd.is.
Borgarbyggð, 19. maí 2021
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
1
AUGLÝSING UM SKIPULAG -
BORGARBYGGÐ
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
S: 860-0708 • Smiðjuvellir 7, Akranesi • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Blaðamaður Skessuhorns ákvað
að skella sér í hjólatúr á Akranesi
í góða veðrinu í liðinni viku. Far-
ið var um allar helstu umferðar-
götur bæjarins og lagst í smá rann-
sóknarvinnu. Þá kom í ljós að á ansi
mörgum stöðum eru gangbrauta-
merkingar lítt sýnilegar og erfitt í
raun að sjá að um gangbrautir væri
að ræða. Málningin hefur máðst
af eftir veturinn og því tími kom-
inn að skella sér í málningargallann
og henda í nokkrar rendur. Að sögn
Jóns Brynjólfs Ólafssonar, verk-
efnastjóra hjá Akraneskaupstað, er
það yfirleitt fyrsta af vorverkum
sumarsins að mála gangbrautirnar
og ætti þeirri vinnu að ljúka á næstu
vikum.
Þá tók blaðamaður eftir því í
þessum stutta hjólatúr að ökumenn
aka oft ansi hratt yfir gangbrautir
og jafnvel hraðahindranir og virð-
ast stundum gleyma því að börn og
aðrir eiga það til að fara óvarlega
áður en farið er yfir gangbrautir.
Því er ástæða til að minna ökumenn
á að hægja á sér þegar þeir nálgast
gangbrautir og hraðahindranir og
aka ætíð á löglegum hraða, því öll
viljum við komast á leiðarenda heil
á húfi. vaks
Gangbraut við Suðurgötu.
Illa merktar gang-
brautir eftir veturinn
Hraðahindrunin við Skagabraut.
Fátt sem minnir á að þarna við Þjóðbraut sé gangbraut.
Við Faxabraut.