Skessuhorn - 19.05.2021, Síða 11
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 2021 11
Aðalfundur 2021
Aðalfundur Stjórnendafélagsins Jaðars á Akranesi verður
haldinn á Gamla Kaupfélaginu 27. maí kl. 20:00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Skýrsla stjórnar•
Reikningar félagsins•
Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga•
Kosning stjórnarmanna og varamanna•
Kosning skoðunarmanna reikninga•
Kosning í orlofsnefnd•
Tilnefning á aðal- og varafulltrúa í stjórn Sambands stjórnendafélaga•
Sumarhús félagsins
Norðurási 9, Kambshólslandi Svínadal, 301 Akranesi•
Umræður um sumarhús•
Jóhann Baldursson
Framkvæmdastjóri flytur erindi um störf STF og sameiningu á félögum innan STF.
Eyþór Óli Frímannsson
Kynningar- og menntafulltrúi STF. Fer yfir og kynnir nánar sameiningu félaga.
Í góða veðrinu síðastliðinn mið-
vikudag var vegstubbur á Breið-
inni á Akranesi malbikaður. Lengi
og mikið hefur verið kvartað yfir
þeim holótta malarvegi sem þar var.
Einnig voru bílastæðin við Akra-
nesvitana malbikuð. Breiðin og vit-
arnir þar hafa sem kunnugt er ver-
ið eitt helsta kennileiti og aðdrátt-
arafl bæjarins. Áhugasamir geta því
farið að gera sér ferð niður á Breið
án þess að þurfa að hafa áhyggjur
af því að skemma eða skíta út fínu
bílana sína. Það var Malbikunar-
stöðin Höfði sem sá um verkið.
frg
Síðastliðinn föstudag var á djúpa-
lónssandi á Snæfellsnesi kynnt nýtt
merkingakerfi fyrir ferðamanna-
staði og friðlýst svæði. Nefnist það
Vegrún og er afurð samstarfshóps
á vegum umhverfis- og auðlindar-
áðuneytis og atvinnuvega- og ný-
sköpunarráðuneytis um eflingu
fagþekkingar, hönnunar og sam-
ræmingar við uppbyggingu inn-
viða á ferðamannastöðum. Merk-
ingarkerfið var hannað til að sam-
ræma merkingar, til einföldun-
ar fyrir uppbyggingaraðila og til
að bæta upplifun ferðamanna og
auka bæði gæði og öryggi á ferða-
mannastöðum og öðrum áfanga-
stöðum í náttúru landsins. Vegrún
stendur öllum til boða, jafnt opin-
berum aðilum sem og einkaaðil-
um, sem hyggjast setja upp merk-
ingar á slíkum stöðum.
„Vegrún er frábært dæmi um af-
rakstur árangursríkrar vinnu þvert
á ráðuneyti og stofnanir og með
aðkomu fleiri hagaðila,“ sagði
Guðmundur ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra
þegar nýju merkin voru kynnt.
„Með Vegrúnu fáum við lang-
þráða samræmingu í merkingum
á friðlýstum svæðum og ferða-
mannastöðum og heildstætt kerfi
sem sækir innblástur í íslenska
náttúru. Það miðar að því að
merkingar falli betur að íslensku
landslagi og upplifun gesta verður
jákvæðari.“
Vegrúnu verður hægt að nálgast
á vefnum godarleidir.is. Vefurinn
er hugsaður sem upphafsreitur
fyrir þá sem huga að uppbyggingu
innviða á ferðamannastöðum.
mm
Malbikað á Breiðinni
á Akranesi
Vegvísar samkvæmt nýja kerfinu.
Vegrún er nýtt merkinga-
kerfi fyrir ferðamannastaði
Við kynningu á Vegrúnu. Stefán Pétur Sólveigarson vöruhönnuður, Guðmundur
Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Hörður Lárusson fulltrúi
hönnunarteymis Kolofon.