Skessuhorn - 19.05.2021, Page 20
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 202120
Kúla - óstaðbundið safn, er ný-
sköpunarverkefni sem Guðlaug
dröfn Gunnarsdóttir í Borgarnesi
hefur sett af stað. Verkefnið seg-
ir Guðlaug hafa sprottið upp út
frá umræðu um aukna þörf á fag-
legri nálgun þegar kemur að safn-
astarfi. „Söfn eru mikilvæg varð-
andi rannsóknir, varðveislu gagna,
fræðslu og miðlun. Söfn og sýn-
ingar eru í raun óformlegur vett-
vangur menntunar og þurfa að
geta virkað sem slík. Þau eru ætl-
uð öllum og þurfa að geta tek-
ið á móti fjölbreyttum hópi fólks,
óháð aldri, uppruna og samfélags-
stöðu og allir eiga að geta kom-
ið að samtali um það starf ásamt
fagfólki,“ segir Guðlaug. „Menn-
ingarminjasöfn og listasöfn eru al-
mennt að kafna í munum og dóti
og því fer mikill tími í umsýslu.
Púðrið fer því frekar í að sjá um
safnkostinn en að fræða og miðla,“
bætir hún við.
Líkar vel í Borgarnesi
Guðlaug ólst upp á Kjalarnesi, á
bænum Tindstöðum sem er nyrsti
bær Reykjarvíkur, í jaðri Kjósar.
Hún er myndlistarmaður að mennt
auk þess sem hún stundar nú mast-
ersnám í safnafræðum við Háskóla
Íslands samhliða störfum sínum
við Safnahús Borgarfjarðar. Guð-
laug flutti í Borgarnes árið 2019
ásamt tveimur börnum sínum. „Ég
sá auglýst starf hjá Safnahúsi Borg-
arfjarðar sem krafðist sérþekking-
ar sem ég bjó yfir. Ég ákvað því að
prófa að sækja um og ég hef ver-
ið hér síðan,“ segir Guðlaug. „Ég
keypti lítið krúttlegt hús í gamla
bænum og okkur líkar mjög vel
hér og höfum kynnst mörgu góðu
fólki,“ segir hún. Guðlaug bjó um
tíma í danmörku, þar sem hún
lauk stúdentsprófi og fornámi í
myndlist. Þá flutti hún til Frakk-
lands þar sem hún lauk masters-
gráðu í myndlist frá listaháskólan-
um í Nice árið 2007. Síðan þá hefur
hún starfað við listina. „Ég hef ver-
ið að mála sjálf og halda námskeið
fyrir fullorðna. En samhliða þessu
hef ég starfað í ferðabransanum,
auk þess sem ég starfaði í mörg ár
hjá tryggingamiðlara í hlutastarfi,“
segir Guðlaug. Hún stofnaði einn-
ig kaffihús árið 2017 við Hverfis-
götu í Reykjavík ásamt vinafólki
sínu frá Frakklandi. „Við opnuð-
um kaffihúsið Emilies Reykjavík
og ég rak það með þeim áður en
ég ákvað að flytja út á land tveimur
árum seinna,“ segir Guðlaug.
Vill fjölradda samtöl
um listina
„Menningarsöfn eiga að endur-
spegla samfélagssýn. Elítismi sem
hefur tíðkast í safnamenningunni
þarf að víkja og umbreytast í samtal
sem er fjölradda, þar sem allir hópar
koma að samtalinu,“ segir Guðlaug
og bætir við að vel fram á 20. öld-
ina hafi stór hópur fólks ekki talið
sig eiga erindi á söfn. „Þá var þessi
elítismi ríkjandi í safnamenning-
unni.“ Áherslur safna hafi breyst og
segist Guðlaug vilja gera aðgengi
enn betra fyrir hinn almenna borg-
ara. „Kúla er safn á starfrænu formi
þar sem safnkosturinn og varð-
veisla gagna verður alfarið á net-
inu,“ segir hún. En hvernig kemur
fólk til með að skoða safnið? „Kúla
verður færanlegur sýningarstaður
sem hægt verður að setja upp næst-
um hvar sem er, úti í móa, inni í
íþróttamiðstöð, á umferðareyju eða
á öðrum góðum stað,“ svarar Guð-
laug og bætir við að nú sé hún að
vinna að frumgerð kúlunnar í sam-
starfi við Mannvit verkfræðistofu.
„Ég fékk menningarstyrk frá upp-
byggingarsjóði Samtaka sveitarfé-
laga á Vesturlandi og úr menning-
arsjóði Borgarbyggðar og það hefur
hjálpað mér að koma þessu verkefni
af stað. Núna fer fyrsta kúlan von-
andi að líta dagsins ljós,“ segir Guð-
laug. „Efnisheimur Kúlu er hlutur,
stöpull sem verður um fermeter að
stærð og ofan á honum verður upp-
lýst glært hvolf, þar sem hægt verð-
ur að skapa og bjóða upp á lítið rými
til sýningar,“ útskýrir hún.
Sýningar fyrir alla
Guðlaug segir að Kúla verði safn
sem allir hafi aðgang að, fólk geti
komið og horft inn í hvolfið og
þannig skoðað sýningarnar sem
þar verða settar upp. Hæð kúlunn-
ar verður þannig að börn og fólk í
hjólastól geti án erfiðleika horft inn
í hvolfið. „Þetta er samfélagslegur
hlutur þar sem fólk úr öllum áttum
á að geta komið saman og átt sam-
tal um hvað það sér,“ segir hún og
bætir við að allir geti líka sótt um
að vera með sýningu og frásögn í
hvolfinu. „Ég vil með þessu brjóta
upp þá hugmynd sem við mörg höf-
um um söfn, færa þau út úr húsum
sem við köllum söfn og út í samfé-
lagið. Þó safnið verði efnislega ekki
stórt trúi ég því að það geti gert
mikið gagn til að ná til fólks, ná í
skottið á þeim sem telja sig kannski
ekki eiga erindi í svona samtöl. Það
eiga nefnilega allir erindi í þessi
samtöl,“ segir Guðlaug.
Kúlulán
Guðlaug stefnir á að nokkrar kúlur
verði gerðar og getur fólk þá feng-
ið kúlurnar lánaðar til að setja upp
sýningar hvar sem er á landinu. „Ég
er að bíða núna eftir fyrstu drögum
að tækniteikningum frá verkfræði-
stofunni og þá þarf ég að bera þær
undir smið, forvörð og aðra sem
geta hjálpað mér að gera Kúlu að
veruleika. Ég vona að ég geti sett
upp fyrstu kúluna síðsumars,“ seg-
ir hún.
Hægt er að fylgjast með fram-
gangi á heimasíðu Kúlu, www.ku-
lulan.is. „Ég ákvað að taka þetta
orð „kúlulán“ og gefa því jákvæð-
ari merkingu en hugmyndin er að
geta lánað kúlurnar um allt land og
að kúlunum fylgi mikið lán,“ segir
Guðlaug. arg/ Ljósm. aðsendar
Á þriðjudag í síðustu viku var þriðja
útiæfingin á þessu ári hjá Pútthópi
Borgarbyggðar og var hún á Hamri.
Hópurinn hefur aldrei hafið æfingar
svo snemma árs utan dyra en æfinga-
aðstaðan í Brákarey er lokuð eins og
mörgum er kunnugt.
„Það hefur á ýmsu gengið hjá þess-
um áhugasama hópi í vetur. Lokanir
vegna Covid-19 hafa komið niður á
okkur, en í byrjun febrúar var hópn-
um, ásamt öðrum í húsunum, gert
að yfirgefa æfingasvæðið í gamla
sláturhúsinu í Brákarey. Síðasta æf-
ing þar fór fram 11. febrúar. Við hins
vegar dóum ekki ráðalaus og leituð-
um í vetur til golfklúbba í nágranna-
sveitarfélögum um æfingaaðstöðu.
Brugðust þeir vel við. Farnar voru
sex æfingaferðir á Akranes og æft
hjá Golfklúbbnum Leyni og fimm
hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Alls
tóku 25 félagar þátt í þessum ferð-
um. Eknir voru samtals um 6.400
kílómetrar og rúmlega 100 þúsund
krónur greiddar í æfingagjöld. Við
væntum þess að jákvæðar niðurstöð-
ur fáist fyrir næsta vetur um æfinga-
aðstöðu í Borgarnesi svo ekki þurfi
að leita aftur til annarra sveitarfé-
laga,“ segir ingimundur ingimund-
arson þjálfari hópsins.
ingimundur segir að bjartsýni ríki
fyrir sumarvertíðina og líkur séu á
að um 30 félagar muni stunda pút-
tæfingar í sumar. „Mikill hugur er í
fólki að standa sig vel í hinum ýmsu
mótum í sumar,“ sagði ingimundur.
Á myndunum eru félagar í Pútt-
hópi Borgarbyggðar á þriðju útiæf-
ingu sinni sem fram fór 11. maí síð-
astliðinn.
mm/ Ljósm. Þóra Stefánsdóttir.
Pútthópur Borgarbyggðar byrjar snemma útiæfingar sínar
Kúla á að gera söfn aðgengilegri fyrir alla
Guðlaug fluttist ásamt tveimur börnum sínum í Borgarnes árið 2019.
Guðlaug Dröfn Gunnarsdóttir listakona. Ljósm. Ómar Sverrisson.
Í Kúlu verður hægt að skoða sýningar og frásagnir.