Skessuhorn - 19.05.2021, Blaðsíða 21
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 2021 21
Sigríður Elín Sigurðardóttir starf-
ar sem sjúkraflutningakona í af-
leysingum hjá Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands en þetta er annað
sumarið sem hún vinnur við það.
Sigríður Elín býður sig jafnframt
fram í fjórða sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðismanna í Norðvesturkjör-
dæmi sem fram fer í næsta mánuði,
yngst frambjóðenda. Sigríður Elín
er á tuttugasta og fyrsta aldurs-
ári og hefur lokið EMT-B grunn-
námi sjúkraflutningamanna en það
er fyrsta gráðan af þremur sem
námið stendur saman af. Hún er
dóttir Sigurðar Þórs Runólfsson-
ar og Helgu Jónu Björgvinsdóttur
á Eystra-Miðfelli í Hvalfjarðarsveit
og er elst þriggja systkina.
„Ég er alin upp í sveit,“ segir
Sigríður Elín. „Við fluttum í Út-
hlíð á Suðurlandi þegar ég var tíu
mánaða. Þar ráku mamma og pabbi
jarðvinnufyrirtæki. Við vorum líka
með kindur auk þess sem ég var
mikið í hestum. Þar bjuggum við
fjölskyldan í um tíu ár. Þá flutti
fjölskyldan að Þverholtum á Mýr-
um og rak kúabúið þar í tvö ár. Fyr-
ir sjö árum flutti fjölskyldan síðan
á ættaróðalið að Eystra-Miðfelli.
Þar bjuggu langamma og langafi og
amma, Elín Valgarðsdóttir, er fædd
og uppalin á Eystra-Miðfelli.“
Sigríður Elín flutti nýlega á Akra-
nes þar sem hún býr, ásamt kærasta
sínum Sigurjóni Bergsteinssyni.
Þau hafa fest kaup á eigin húsnæði
en Sigurjón er frá Akranesi, son-
ur Rannveigar Sigurjónsdóttur og
Bergsteins Metúsalemssonar. „Við
erum nýbúin að kaupa raðhús við
Vogabraut á Akranesi, keyptum
húsið af afa og ömmu Sigurjóns.“
Áhugi Sigríðar Elínar á stjórn-
málum vaknaði snemma. „Ég var
skráð í Sjálfstæðisflokkinn 15 ára.“
Hún var formaður nemendaráðs í
Heiðarskóla. Þar barðist hún meðal
annars fyrir kaupum á púðum í nýja
stóla sem nemendum þóttu afar
harðir og óþægilegir ásetu. Púða-
kaupin voru samþykkt og höfðu
nemendur síðan val um lit á púðana
og voru tveir í boði. Þá var Sigríð-
ur Elín formaður ungmennaráðs
Hvalfjarðarsveitar um skeið.
Áslaug Arna er helsta
fyrirmyndin
Í tíunda bekk grunnskóla bauðst
nemendum að fara í starfskynningu
í fyrirtækjum að eigin vali. Aldrei
kom annað til greina hjá Sigríði
Elínu en að fá að fara á Alþingi.
„Minn stærsti draumur var að fara
á Alþingi.“ Hún hafði því samband
við frænku sína, Elsu Láru Arnar-
dóttur, þáverandi alþingismann en
hún er móðursystir Sigríðar Elínar
og fékk að verja einum degi á Al-
þingi. „Þetta var frábær dagur og ég
starði stóreygð og dolfallin á Elsu
Láru flytja ræðu.“
Aðspurð um fyrirmyndir í póli-
tík segist Sigríður Elín einmitt líta
mikið upp til Elsu Láru, ekki bara
í pólitík heldur bara fyrir hversu
dugleg hún er. Þá segir Sigríður
Elín að Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir dómsmálaráðherra sé í mikl-
um metum hjá henni. „Áslaug Arna
er rosalega flott kona, ég dáist að
henni og öllu sem hún hefur gert,
hvernig hún hefur komið sér á
framfæri og hvernig hún nýtir sam-
félagsmiðla til að útskýra mál og
hún nær svo vel til fólks.“
Þegar blaðamaður spyr Sigríði
Elínu um áhugamál segist hún hafa
prófað ýmislegt. Hún var í frjálsum
íþróttum og fimleikum auk þess að
æfa fótbolta með Skallagrími sem
hún þurfti að hætta vegna meiðsla.
„Svo finnst mér gaman að ganga á
fjöll auk þess sem ég stunda líkams-
rækt í líkamsræktarstöðinni Ægi á
Akranesi. Ég hef líka mjög gaman
af bakstri og ýmsu öðru í eldhús-
inu. Þá hef ég líka áhuga á öllu sem
tengist sveitinni. Annars er ég mjög
opin og til í að prófa allt.“
Sigríður Elín lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranes af náttúrufræðibraut árið
2019 en það tók hana aðeins þrjú
ár að ljúka stúdentsprófinu. „Eft-
ir útskrift fórum við í smá heims-
reisu, meðal annars til dubai.“ Að
því loknu hóf hún nám í byggingar-
tæknifræði við Háskólann í Reykja-
vík. „Ég ætlaði að verða tæknifræð-
ingur eins og afi, Runólfur Sigurðs-
son.“ Hún segist ekki hafa fund-
ið sig í því náminu í tæknifræði,
fannst það karllægt og að hún sem
ljóshærð kona passaði illa inn í hóp-
inn. „Mér leið svolítið eins og pers-
ónunni í myndinni Legally Blond,
ljóshærð pía með bleikt veski. Ég er
svona týpa sem á erfitt með að sitja
kyrr og verð að vera á hreyfingu.“
Hún lauk því aðeins fyrstu önninni
í tæknifræðinni. „Mér finnst að
maður megi alltaf skipta um skoð-
un.“
Vill helst vera í hasar
Sigríður Elín hefur sem áður seg-
ir lokið grunnnámi sjúkraflutninga-
manna og hóf nám í hjúkrunarfræði
fyrir ári síðan. Þrátt fyrir að ná öll-
um prófum komst hún samt ekki
áfram. Einungis þeim 130 nemend-
um sem bestum árangri ná er hleypt
áfram í náminu en um 300 manns
hófu námið. „Ég fór í „klásusinn“
í fyrra en komst ekki inn þá, mað-
ur er bara mannlegur og allt getur
gerst. Ég ætla að reyna aftur í haust
og þá verð ég með meira nesti. Ég
læt þetta ekki slá mig út af laginu.“
Sigríður Elín viðurkennir að henni
finnist svolítið skrítið að í þessum
skorti á hjúkrunarfræðingum skuli
þessar takmarkanir samt vera við-
hafðar við inntöku í námið. „Það
er sérstakt að þó maður nái öllum
prófum skuli maður ekki komast
áfram. Það eru bara þeir efstu 130
sem bestum árangri ná sem komast
áfram,“ segir hún.
Sigríður Elín segist þó ekki hætt
heldur ætlar hún að reyna aftur
næsta haust. Hún hyggur síðan á
framhaldsnám í bráðahjúkrunar-
fræði enda hefur hún mikinn áhuga
á þessum málaflokki. Á Íslandi er
hægt að ljúka svokölluðu diploma
námi í bráðahjúkrun en Sigríður
hefur meiri áhuga á að ljúka meist-
aragráðu í faginu frá erlendum há-
skóla. „Ætli ég sé ekki komin með
einhverja veiru, vill helst vera í ein-
hverjum svona hasar en það er víst
ekki hægt að bólusetja fyrir þeirri
veiru,“ segir Sigríður Elín að lok-
um og hlær. frg
Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæ-
fellsbæ og unglingadeildin drek-
inn fengu nýverið góðar gjafir frá
Lionsklúbbi Nesþinga og Lions-
klúbbi Ólafsvíkur. Fékk Lífsbjörg
að gjöf frá Lionsklúbbi Nesþinga
fjóra hjálma og gleraugu sem nýt-
ast vel á sexhjól, sleða og buggybíl
sveitarinnar. Frá Lionsklúbbi Ólafs-
víkur fékk unglingadeildin drekinn
þrjá þurrgalla sem koma að góð-
um notum þegar farið er með ung-
menni til dæmis út á bátum sveitar-
innar eða til að leika sér í vötnum.
Einnig keypti sveitin þrjá galla og
eru því til sex þurrgallar fyrir ung-
lingadeildina. Meðfylgjandi mynd-
ir voru teknar við afhendingu gjaf-
anna.
þa
Lionsmenn færðu björgunarsveitinni gjafir
Fór fyrst á þing fimmtán ára og er nú komin í prófkjör
Sigríður Elín Sigurðardóttir. Ljósm. Agnes Rós Sveinbjörnsdóttir.
Sigríður Elín Sigurðardóttir. Ljósm. Agnes Rós Sveinbjörnsdóttir.
Sigríður Elín og Sigurjón Bergsteinsson framan við Atlantis The Palm Hotel í
Dubai. Ljósm. aðsend.