Skessuhorn - 19.05.2021, Side 22
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 202122
markaðsstjóra hjá Sæferðum
Dagur í lífi...
Nafn: Nadine Elisabeth Walter
Fjölskylduhagir/búseta: Í sam-
búð
Starfsheiti/fyrirtæki: Markaðs-
stjóri hjá Sæferðum í Stykkishólmi
Áhugamál: Hestamennska, hund-
urinn minn og ferðalög
Dagurinn: Þriðjudagur 11. maí
2021
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vaknaði kl. 6.20, fékk mér
kaffibolla og fór upp í hesthús að
moka og gefa eins og ég geri á
hverjum morgni.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Gríska jógúrt með músli og bön-
unum
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? um kl. 8 og gangandi
Fyrstu verk í vinnunni: Skoða
tölvupóstinn
Hvað varstu að gera klukkan
10? Fór á „Facebook ads“ nám-
skeið á ZOOM.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Borðaði brauðsneið
Hvað varstu að gera klukk-
an 14? Svara símanum og tölvu-
póstum.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Hætti
kl. 16:00 og slökkti ljósin og læsti.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Fór
heim, fékk mér smá snarl og kaffi
og fór svo upp í hesthús, fór svo á
bak á tveimur hestum.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Kjúklinga- og pastaréttur,
ég eldaði.
Hvernig var kvöldið? Bara ynd-
islegt. Fórum í göngutúr með
hundinum okkar í góða veðrinu.
Hvenær fórstu að sofa? um kl.
23.45
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Fór í sturtu.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn? Ekkert sérstakt svo sem, bara
góður venjulegur dagur í lífi mínu.
Eitthvað að lokum? Verðum að
muna að njóta hverrar stundar
áður það er of seint.
Nadine Elisabeth Walter, markaðs-
stjóri Sæferða í Stykkishólmi.
Fyrsta umferð Íslandsmótsins í ral-
lycross fór fram á Aksturssvæði
AÍH í Hafnarfirði síðastliðinn
sunnudag. Covid setti nokkurn svip
á mótið því samkvæmt sóttvarnar-
reglum má einungis að hafa 100
áhorfendur í einu sóttvarnahólfi á
íþróttaviðburðum og að hámarki
tvö sóttvarnahólf.
Alls voru 35 keppendur skráðir til
leiks. Þeirra á meðal var Gísli Björn
Rúnarsson á Akranesi sem keppti
fyrir TKS, Torfæruklúbb Suður-
lands. Gísli sem kemur frá Búðar-
dal hefur lengi verið viðloðandi
akstursíþróttir, bæði sem aðstoðar-
maður og í keppnisstjórn. Þetta er
hins vegar í fyrsta skipti sem Gísli
keppir á þessum vettvangi. Keppn-
isbíll Gísla er Toyota Yaris, árgerð
2000, en hann keppir í svokölluð-
um 1000 Standard flokki. Í því felst
að ekki má gera neinar breytingar
að ráði á bílunum. Að sögn Gísla er
ætlunin að keppa á öllum sex mót-
um sumarsins. Aðspurður um ár-
angur á þessu fyrsta móti sumars-
ins var lítið um svör hjá Gísla Birni,
vildi heldur ræða um veðrið.
frg
Gísli Björn Rúnarsson við rallycross bíl sinn. Ljósm. frg.
Gísli Björn keppti í rallycrossi
Staðarhátíðin Varmalandsdagar
verður haldin í fyrsta sinn dagana
12. og 13. júní næstkomandi. Að
hátíðinni standa Hollvinasamtök
Varmalands en þau voru stofn-
uð síðastliðið haust. „Við ákváð-
um að stofna hollvinasamtökin
sem svona hagsmunasamtök fyr-
ir Varmaland. Helsta ástæðan er
kannski sú að okkur fannst vanta
smá upp á þjónustu og slíkt hér, þá
opinbera þjónustu eins og að laga
götur og gangstéttar og slá gras-
ið og svona. Í stað þess að hver og
einn væri í sínu horni að tala og
enginn að gera neitt ákváðum við
bara að stofna samtök og reyna
að efla og styrkja Varmalands-
stað hér í Stafholtstungum,“ seg-
ir Vilhjálmur Hjörleifsson einn
af stofnendum Hollvinasamtaka
Varmalands.
Vilja koma lífi í staðinn
Eftir að hafa stofnað Hollvina-
samtök Varmalands var tekin
ákvörðun um að halda Varma-
landsdaga nú í sumar. „Við vild-
um halda þessa hátíð til að koma
smá lífi í staðinn. Við höfum ým-
islegt upp á að bjóða hér á Varma-
landi, flott félagsheimili, sund-
laug, hótel og útivistarsvæði hér í
kring, auk þess sem hér er garð-
yrkjustöðin Laugaland, sem er í
raun sambyggð Varmalandi,“ seg-
ir Vilhjálmur. Hann segir hátíðina
upphaflega hafa átt að vera litla í
sniðum en að hún hafi svo und-
ið upp á sig. „Þetta hollvinafélag
á engan pening þar sem félagarnir
eru svona sex til átta talsins,“ seg-
ir Vilhjálmur og hlær. „Það eru nú
bara fimm íbúðarhús hér á Varma-
landi svo við erum ekki mörg. En
við vildum þó geta haldið smá há-
tíð. Við skoðuðum þá bara hverj-
ir eru með starfsemi á staðnum
og gætu gert eitthvað á hátíð-
inni. Hér erum við með kvenfé-
lag, ungmennafélag og björgun-
arsveit. Kvenfélagið ætlar að vera
með kaffisölu, ungmennafélagið
ætlar að setja upp skemmtilegan
ratleik og björgunarsveitin mun
sýna búnaðinn sinn og aðstöðu,“
segir Vilhjálmur.
Lyst og list
Hollvinasamtökin höfðu einn-
ig samband við hótelið á Varma-
landi og þar verður boðið upp á
vínkynningu á laugardeginum.
„Þá verður hægt að borga smá
fyrir skemmtilega kynningu hjá
manni sem er að flytja inn vín,“
segir Vilhjálmur. Tilboð verður á
mat og eftirréttur að hætti Hús-
mæðraskólans fylgir frítt með öll-
um aðalréttum af matseðli á veit-
ingastaðnum Calor. „Kokkar hót-
elsins verða með sjóðheitt kolag-
rill á milli klukkan 13 og 15 báða
dagana. Þar má kaupa borgfirska
hamborgara gegn vægu gjaldi,“
segir Vilhjálmur. Borgarbyggð
hefur samþykkt að hafa sund-
laugina á Varmalandi opna bæði
kvöldin frá kl. 20-22 og þá verð-
ur boðið upp á samflot gegn vægu
gjaldi. „Það geta 15 verið í floti í
einu og við getum boðið tveim-
ur hópum hvort kvöld fyrir sig,“
segir Vilhjálmur. Börnum verður
boðið að fara á hestbak þar sem
heimamaður ætlar að teyma und-
ir þeim. Í félagsheimilinu verð-
ur sett upp myndlistarsýning og
markaður opnaður auk þess sem
bílsskúrssala verður opin á svæð-
inu. Á sunnudeginum um klukk-
an 14 ætlar Fornbílafjelag Borg-
arfjarðar að renna við á drossíum
sínum, ef veður leyfir. Hátíðin ber
undirtitilinn Lyst og list og seg-
ir Vilhjálmur það vísa til þess að
í gamla Húsmæðraskólanum hafi
gjarnan verið sköpuð matarlyst
og önnur list í formi handavinnu.
„Svo er hér barnaskóli þar sem
alltaf er verið að skapa allskonar
fallega list,“ segir Vilhjálmur.
arg
Horft heim að Varmalandi frá Þverbrekkum.
Varmalandsdagar verða haldnir í fyrsta sinn í júní
Varmalandsdagar verða haldnir í sumar.