Skessuhorn - 19.05.2021, Qupperneq 31
MiðViKudAGuR 19. MAÍ 2021 31
Skagamenn léku tvo leiki í Pepsí
Max deildinni í fótbolta frá því síð-
asta blað var gefið út. Fyrri leikur-
inn var útileikur gegn FH síðasta
fimmtudagskvöld og byrjuðu Skaga-
menn leikinn vel því Gísli Laxdal
unnarsson skoraði með góðu skoti
eftir sendingu Elias Tamburini strax
á 6. mínútu. Skagamenn misstu svo
mann út af á 28. mínútu eftir að Há-
kon ingi Jónsson fékk tvö gul spjöld
á fimm mínútna millibili með ansi
klaufalegum hætti. Skagamenn því
einum færri og FH-ingar voru fljót-
ir til og nýttu sér liðsmuninn tveim-
ur mínútum síðar þegar Óttar Bjarni
Guðmundsson, leikmaður ÍA, skor-
aði sjálfsmark eftir skot Péturs Við-
arssonar. Staðan var því 1-1 í hálfleik
og það var ekki fyrr en á 82. mínútu
sem FH komst yfir með marki fyr-
irliðans Matthíasar Vilhjálmssonar.
Í kjölfarið brustu allar flóðgáttir og
FH bætti við þremur mörkum á síð-
ustu mínútunum og öruggur sigur
FH-inga staðreynd, 5-1.
Afdrifarík meiðsli
Tveir leikmenn ÍA urðu fyrir slæm-
um meiðslum í leiknum. Fyrst var
það Sindri Snær Magnússon sem
lenti í slæmu samstuði og er með tvö
brotin rifbein og verður líklegast frá
í 4-6 vikur. Síðar í leiknum meiddist
markvörður ÍA, Árni Snær Ólafsson
og er með slitna hásin og verður frá
keppni út tímabilið.
Markalaust
Í seinni leiknum á mánudagskvöld-
ið náðu Skagamenn ekki að krækja
í sinn fyrsta sigur í Pepsi Max deild-
inni þegar þeir tóku á móti Stjörn-
unni í fjórðu umferð deildarinnar,
lokastaðan í leiknum 0-0. Liðið sit-
ur nú á botni deildarinnar með að-
eins tvö stig ásamt fjórum öðrum
liðum en aðeins þrjú stig eru upp
í fimmta sætið. Tveir leikmenn
ÍA léku sinn fyrsta leik í byrjunar-
liði og annar þeirra, dino Hodzic,
markvörður Skagamanna, lék sinn
fyrsta leik í efstu deild en hann kom
til liðs við ÍA frá Kára fyrir tíma-
bilið. Þá var sóknarmaðurinn Mor-
ten Beck mættur eftir að hafa kom-
ið frá FH í síðustu viku og menn
að vona að hann geti hjálpað við að
leysa markaþurrð Skagamanna sem
hafa aðeins skorað tvö mörk í fjór-
um leikjum til þessa.
Lítið um marktækifæri
Fyrri hálfleikur var frekar tíðinda-
lítill, liðin skiptust á að sækja en
lítið um góð marktækifæri nema
helst þegar Hilmar Árni Halldórs-
son, leikmaður Stjörnunnar, fékk
dauðafæri rétt fyrir hlé en renndi
boltanum framhjá markinu. Í seinni
hálfleik áttu Skagamenn hættu-
legri færi, fyrst var það Gísli Laxdal
unnarsson sem komst einn inn fyr-
ir í byrjun hálfleiksins en markvörð-
ur Stjörnunnar, Haraldur Björns-
son, varði vel og síðan varði hann
aftur þegar Viktor Jónsson slapp í
gegn undir lok leiks eftir klaufaskap
varnarmanns Stjörnunnar.
Lokastaðan því markalaust jafnt-
efli en Jóhannes Karl Guðjónsson,
þjálfari ÍA, var nokkuð ánægður
með sína menn í viðtali eftir leik:
„Það hefur vantað hjá okkur að
ná ekki að klára leiki með góðum
frammistöðum. Ég er ánægður með
margt en hefði viljað vinna leikinn
og mér fannst við skapa tækifæri til
að landa þessum sigri.“ Næsti leik-
ur Skagamanna í Pepsi Max deild-
inni verður næsta föstudag gegn
HK í Kórnum í Kópavogi og hefst
klukkan 18.00.
vaks
Það var sannkallað markaregn
í Akraneshöllinni þegar Knatt-
spyrnufélagið Kári tók á móti KV
á föstudagskvöldið. Lauk leiknum
með 4:4 jafntefli þar sem KV jafn-
aði leikinn á fjórðu mínútu í upp-
bótartíma, örfáum sekúndum fyr-
ir leikslok. Káramenn voru mjög
óheppnir að ná ekki að sigra í leikn-
um því í stöðunni 4:3 fengu þeir tvö
upplögð færi til þess að klára leik-
inn sem ekki nýttust.
Marinó Hilmar Ásgeirsson átti
stórleik hjá Kára og skoraði þrennu
í leiknum. Hann skoraði fyrstu tvö
mörk leiksins og kom Kára í 2:0.
Komu mörkin á 14. og 35. mín-
útu leiksins. En KV náði að skora
tvö skallamörk undir lok hálfleiks-
ins á 41. og 43. mínútu og voru
þeir Kristján Páll Jónsson og Ask-
ur Jóhannsson þar að verki en vörn
Káramanna leit ekki vel út í mörk-
unum. Staðan 2:2 í hálfleik.
Leikmenn KV höfðu heldur
undirtökin framan af síðari hálfleik
en Káramenn áttu góðar skyndi-
sóknir og úr einni slíkri fullkomn-
aði Marinó Hilmar þrennu sína á
70. mínútu en níu mínútum síðar
fékk KV vítaspyrnu og skoraði ing-
ólfur Sigurðsson úr spyrnunni. Og
staðan aftur jöfn. Káramenn gáf-
ust ekki upp og bættu í sóknina og
fengu vítaspyrnu á 82. mínútu þeg-
ar markvörður KV braut á Mar-
inó Hilmari sem var kominn einn
í gegn. Ómar Castaldo Einarsson
markvörður KV fékk að líta gula
spjaldið fyrir brot sitt en margir
voru á því að annar litur hefði átt
að vera á spjaldinu. Það var Martin
Montipo sem skoraði úr vítaspyrn-
unni en hann er nýkominn til Kára
að láni frá ÍA sem fékk leikmanninn
til sín í síðustu viku.
Á dramatískum lokamínútum
þegar Káramenn fengu upplögð
marktækifæri til að klára leikinn
náðu Vesturbæingarnir í KV að
jafna eftir mikinn hamagang í víta-
teig Káramanna og var Þorsteinn
Örn Bernharðsson þar að verki.
Lokatölur 4:4 og Kári er því með
eitt stig eftir fyrstu tvær umferðirn-
ar í 2. deildinni. Næsti leikur Kára-
manna verður á útvelli gegn Reyni
Sandgerði næstkomandi föstudag
og hefst klukkan 19.15. se
Reynir Hellissandi byrjaði ekki vel
í fyrsta leik sínum í C-riðli fjórðu
deildar sem fram fór á Ásvöllum í
Hafnarfirði á sunnudag. Liðið spil-
aði gegn KÁ og tapaði með fjór-
um mörkum gegn engu. Staðan var
markalaus eftir fyrri hálfleikinn en
seint í seinni hálfleiknum skoruðu
heimamenn fjögur mörk og upp-
skáru sanngjarnan 4-0 sigur. Fyrst
var það daði Snær ingason með
mark á 79. mínútu, síðan þeir Al-
exander Snær Einarsson og Aron
Hólm Júlíusson með sitt markið
hvor og Sindri Hrafn Jónsson var
síðan með mark á lokamínútu leiks-
ins. Næsti leikur Reynis er á Ólafs-
víkurvelli þriðjudaginn 25. maí
gegn liði Mídasar og hefst klukk-
an 20.00.
vaks
Víkingur Ólafsvík tapaði stórt á
heimavelli fyrir liði Aftureldingar
á föstudagskvöldið í annarri um-
ferð Lengjudeildar karla í knatt-
spyrnu. Lokatölur 5-1 fyrir gest-
ina. Gestirnir byrjuðu með látum.
Kristófer Óskar skoraði tvö mörk
á fyrstu átta mínútunum og síðan
bætti Valgeir Árni Svansson þriðja
markinu við á 13. mínútu. Víking-
ur minnkaði muninn á 17. mínútu
með marki Hlyns Sævars Jónssonar
en Kristófer fullkomnaði þrennuna
eftir tæplega hálftíma leik og staðan
í hálfleik, 1-4.
Hasarinn hélt áfram í síðari hálf-
leik. Emmanuel Eli Keke var rek-
inn af velli á 60. mínútu en það var
víst frekar furðulegur dómur. Eli
Keke og Kristófer voru að rífast
inni í teig þegar Konráð Ragnars-
son, markvörður Víkinga, kom og
hrinti Kristófer. dómari leiksins
ákvað hins vegar að reka Eli Keke
af velli og leiðrétti það ekki. Krist-
ófer skoraði síðan fjórða mark sitt
skömmu síðar og rétt fyrir leikslok
var Hlynur Sævar rekinn af velli
fyrir að sparka boltanum í burtu
og Víkingur þá tveimur mönn-
um færri. Lokastaðan því 5-1 fyr-
ir gestina sem eru með fjögur stig
eftir tvær umferðir en Víkingur er
enn án stiga.
Í viðtali við fotbolti.net eftir leik
sagði Gunnar Einarsson, þjálf-
ari Víkinga, að þetta væri ofboðs-
lega svekkjandi og fúlt. „Það er lít-
ið annað að gera en að horfa fram
á við og mæta í næsta leik. Það er
verðugt verkefni á móti Kórdrengj-
um og mér finnst gaman að etja við
þá kappi og ég trúi ekki öðru en að
mínir menn geti peppað sig upp í
að mæta því liði.“
Næsti leikur Víkinga er einmitt
á móti áðurnefndum Kórdrengjum
og verður á Ólafsvíkurvelli föstu-
daginn næsta og hefst kl. 19.15.
vaks
Markaregn í Akraneshöllinni
Reynismenn töpuðu í fyrsta leik
Víkingur komst lítt áleiðis í leiknum á föstudag: Ljósm. af.
Ólsarar töpuðu fyrir
Aftureldingu
Nú reynir á Dino Hodzic markmann Skagamanna eftir að Árni Snær Ólafsson meiddist í síðustu viku og verður frá keppni út
þetta tímabil. Dino lék á mánudaginn sinn fyrsta leik í efstu deild. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
Stórtap og markalaust jafntefli hjá Skagamönnum