Morgunblaðið - 21.01.2021, Page 1
F I M M T U D A G U R 2 1. J A N Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 17. tölublað 109. árgangur
G-VÍTAMÍN
FYRIR GEÐ-
HEILSUNA
GRÁTLEGT
TAP GEGN
SVISS
FRAMLEIÐSL-
AN KOMIN Á
GÓÐAN SPÖL
HM Í HANDBOLTA 60-61 NÝ GRÓÐRARSTÖÐ 18DAGLEGT LÍF 16
EITTHVAÐ FYRIR ALLA Í NETTÓ!
Grísasteik
Fyllt með beikoni og döðlum
1.379KR/KG
ÁÐUR: 2.299 KR/KG
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 21. 24. janúar
Lítill þorrabakki
4 tegundir
1.999KR/PK
Græn epli
199KR/KG
ÁÐUR: 398 KR/KG
-40%
-50%
Helgi Bjarnason
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Kaupfélag Skagfirðinga hefur
ákveðið að framlengja fram yfir
páska matvælaaðstoð við þá sem
eiga í erfiðleikum vegna atvinnu-
missis af völdum kórónuveirufarald-
ursins.
„Samstarfið við hjálparstofnanir
gekk vel á síðasta ári og þörfin er
enn mikil, atvinnuleysi er mikið og
ekkert farið að breytast í þeim efn-
um enn þá. Niðurstaða okkar var,
eftir að hafa rætt við hjálparstofn-
anir og fleiri sem til þekkja, að það
væri skynsamlegt að halda þessu
samstarfi áfram,“ segir Þórólfur
Gíslason, kaupfélagsstjóri KS.
KS og dótturfyrirtæki þess eru
með fjölbreytta matvælaframleiðslu.
Ákváðu stjórnendur fyrirtækisins að
útvega hjálparstofnunum sem veita
matvælaaðstoð matvæli síðustu
mánuði ársins. Hjálpaði það þeim við
jólaúthlutanir í desember. Upphaf-
lega var reiknað með 40 þúsund mál-
tíðum en niðurstaðan varð sú að
Kaupfélagið gaf um 90 þúsund mál-
tíðir.
Samkomulag hefur verið gert við
fjórar helstu hjálparstofnanir lands-
ins um úthlutun matvælanna og
verður fyrirkomulagið það sama og
fyrir jólin.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálpar Íslands,
segir að þörfin fyrir mataraðstoð sé
enn mjög mikil. Margir hafi sam-
band. Fólkið hafi ekki fjármuni til
matar- og lyfjakaupa. „Við munum
geta brúað bilið eins og mögulegt er
með aðstoð KS,“ segir Ásgerður.
Mikil þörf fyrir aðstoð
KS og dótturfyrirtæki framlengja fram yfir páska matar-
aðstoð til þeirra sem eiga í vanda vegna atvinnumissis
MMataraðstoð »4
Sumir fisk-
stofnar hafa
stækkað og auk-
ið útbreiðslu-
svæði sín á síð-
ustu árum, en
aðrir komist að
þolmörkum, seg-
ir Sigurður Guð-
jónsson, forstjóri
Hafrannsókna-
stofnunar, í við-
tali við Morgunblaðið.
„Þó svo að sjórinn sé kaldari
núna en hann var fyrir tveimur ár-
um og áratuginn þar á undan erum
við á ýmsan hátt í umhverfi sem við
höfum aldrei séð áður,“ segir Sig-
urður.
Vonast er til að nýtt rannsókna-
skip verði tekið í notkun 2023 og er
áætlað að kostnaður við smíði þess
verði allt að 5,6 milljarðar.
Staða forstjóra Hafró var nýlega
auglýst laus til umsóknar. Sigurður
hefur gegnt starfinu sl. 5 ár og seg-
ist tilbúinn að leiða stofnunina
áfram. Segist hann vera meðal um-
sækjenda um stöðuna, sem sjáv-
arútvegsráðherra skipar í. »28-30
Umhverfi sem við
höfum aldrei séð
Sigurður
Guðjónsson
Vill leiða starfsemi Hafró áfram
Össur Skarphéðinsson telur gríð-
arleg tækifæri felast í auknum sam-
skiptum nágrannalandanna Íslands
og Grænlands. Hagsmunir landanna
fari saman á ótal sviðum, en þau hafi
mikinn, gagnkvæman ávinning af
auknum og dýpri tengslum en verið
hefur.
Þetta er meðal þess, sem fram
kemur í viðtali við Össur í Morg-
unblaðinu í dag, en hann var formað-
ur Grænlandsnefndar, sem Guð-
laugur Þór Þórðarson
utanríkisráðherra skipaði til þess að
greina samskipti landanna og gera
tillögur um framtíðarsamskiptin á
breyttum norðurslóðum. Skýrslan
kemur út í dag.
Þar koma fram nær 100 tillögur
um aukna samvinnu á fjölmörgum
sviðum, sem kynntar verða nánar
á fundi síðdegis. »22 og 24
Morgunblaðið/Eggert
Vígreifur Össur Skarphéðinsson í
viðtali um samskiptin við Grænland.
Gríðarleg
tækifæri á
Grænlandi
Joe Biden sór í gær embættiseið sinn sem 46. for-
seti Bandaríkjanna við hátíðlega athöfn við
bandaríska þinghúsið í Washington-borg.
Hét Biden því í innsetningarræðu sinni að
vinna að einingu í stað þeirrar sundrungar sem
hafi einkennt bandarísk stjórnmál um skeið.
Sagði Biden meðal annars að Bandaríkin myndu
„gera við“ bandalög sín og að þau yrðu leiðandi
afl í alþjóðamálum með góðu fordæmi. »34
AFP
Kallar eftir einingu allra Bandaríkjamanna