Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Bílaleigubílum á skrá hjá Sam- göngustofu hefur á einu ári fækkað um 5.500, eða 24%. Í svari Sam- göngustofu við fyrirspurn Morgun- blaðsins segir að í lok árs 2019 hafi 23.265 ökutæki verið skráð, en í lok ársins 2020 hafði þeim fækkað nið- ur í 17.794. Ástæðan er samdráttur í komu ferðamanna vegna kórón- uveirufaraldursins. Bílaleigum fækkaði einnig á tímabilinu. Í byrjun árs 2019 voru 135 ökutækjaleigur með leyfi í gildi, en í desember sl. voru gild leyfi 86. Það er fækkun um 49. „Ég held að þetta verði ekki auð- velt ár og það verði enginn ferða- mannastraumur að neinu ráði fyrr en í fyrsta lagi síðsumars,“ segir Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar. Eins og fram kom í Viðskipta- Mogganum í gær búa hótelin sig nú undir „Íslendingasumar“ á ný. Það sama virðist vera uppi á teningnum með bílaleigufyrirtækin. Óvissa er með komu erlendra ferðamanna. Á haustmánuðum vonuðust margir eftir að ferðamenn yrðu nálægt 800 þúsund. Í dag hafa þær vonir held- ur dvínað. „Við verðum góð að ná 5- 600 þúsund,“ segir Steingrímur. Hann segir að hlutirnir geti verið fljótir að breytast ef vel gengur að bólusetja. Spurður hvernig fyrirtækið sé í stakk búið til að mæta áframhald- andi þrengingum segir Steingrím- ur að búið sé að skala félagið tölu- vert niður, sérstaklega hvað bílaflota og starfsmannahald varð- ar. „Við mokum okkur í gegn en auðvitað er þetta þungur rekstur.“ Aðspurður segir Steingrímur að fyrirtækið hafi ekki tekið ný lán til að bregðast við ástandinu. Það hafi hins vegar nýtt úrræði varðandi frestanir á afborgunum lána. Steingrímur segir að fyrirtækið flýti sér hægt í endurnýjun bílaflot- ans við þessar aðstæður. Hittast mánaðarlega Ísland er góður áfangastaður fyrir ferðamenn að mati Stein- gríms. Landið hafi margt til að bera í núverandi ástandi. Hér sé víðerni, fámenni, gott pláss og gott heilbrigðiskerfi. „Þegar allt fer í gang tel ég að við verðum einn af fyrstu valkostunum sem áfanga- staður.“ Þorsteinn Þorgeirsson, fram- kvæmdastjóri bifreiðasviðs bíla- leigunnar Avis og nefndarmaður í bílaleigunefnd Samtaka ferðaþjón- ustunnar, lýsir stöðunni á svipaðan hátt og Steingrímur. „Við sjáum ekki að það rætist úr neinu fyrr en mögulega seint í sumar.“ Þorsteinn segir nefndina hittast mánaðarlega til að fara yfir stöð- una, og hún sé svipuð alls staðar. Spurður um stöðuna hjá Avis segir hann að búið sé að skera mikið nið- ur, en reynt sé að halda í einhverja þekkingu eins og hann orðar það. Hann segir að félagið sé varla svipur hjá sjón, hvað starfsmanna- fjölda varðar. Aðspurður segir hann að bílafloti Avis telji þrjú þúsund bíla, en þeir voru fjögur þúsund þegar mest lét. Leigum og bílum fækkað mikið  Bílaleigurnar búast ekki við ferðamönnum að neinu ráði fyrr en síðsumars  Flýta sér hægt í endur- nýjun bílaflotans  Ísland er talinn góður staður fyrir ferðamenn þegar rofar til í veirufaraldrinum Steingrímur Birgisson Þorsteinn Þorgeirsson Auðkenni hefur þróað smáforrit (app) sem er rafræn skilríki. Það er komið í Google Play Store og Apple App Store, sjá app.audkenni.is. Þjónustuaðilar eru að undirbúa stuðning við appið og þeir fyrstu opna fljótlega fyrir notkun þess. Morgunblaðið heyrði af manni sem keypti sér síma sem notar raf- rænt símakort (eSIM) í stað þess að vera með hefðbundið SIM-kort. Hann gat ekki fengið rafræn skilríki í símann. Haraldur A. Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Auðkennis, sagði miklar kröfur gerðar til útgefenda rafrænna skilríkja varðandi geymslustað þeirra. Búnaðurinn þarf að vera vott- aður og uppfylla ýmsar kröfur sem hefðbundin SIM-kort gera. „eSIM er á búnaði í símanum sjálfum sem upp- fyllir ekki þær kröfur sem Evr- ópusambandið gerir til búnaðar fyrir skilríkin. Það er vandamálið og því er ekki hægt að gefa út rafræn skilríki fyrir eSIM, að minnsta kosti ekki enn sem komið er,“ sagði Har- aldur. Hann sagði að nýja auðkennis- appið Auðkenni gæti verið lausn fyr- ir þá sem eru með eSIM-síma eða geta ekki notað hefðbundin rafræn skilríki með auðveldum hætti. Það á t.d. við um Íslendinga sem búa er- lendis og eru með erlend símanúmer og eins sjómenn sem starfa utan símasambands á Íslandi en eru í net- sambandi. Hægt er að hlaða smáforritinu niður í snjalltæki og skrá sig. Þjón- ustuveitendur þurfa að innleiða stuðning við appið svo hægt sé að nota þetta nýja rafræna skilríki líkt og rafræn skilríki sem þegar eru til. Þau eru t.d. geymd á hefðbundnum SIM-kortum og sérstökum auðkenn- iskortum. gudni@mbl.is Auðkenni hefur gefið út smá- forrit fyrir rafræn skilríki  Þjónustuaðilar eru að undirbúa stuðning við nýja appið Haraldur A. Bjarnason Meirihluti framkvæmda- og hafn- arráðs Vestmannaeyja hefur sam- þykkt að óska eftir afstöðu Minja- stofnunar til þess að vélbátnum Blátindi verði fargað en báturinn er friðaður samkvæmt lögum um menningarminjar. Blátindur var smíðaður í Eyjum 1947 og var samfellt í útgerð til árs- ins 1992. Hann var endurgerður að frumkvæði áhugamannafélags og komið fyrir við Skansinn 2018. Landfestar bátsins slitnuðu í óveðri í febrúar á síðasta ári og hann sökk síðan inni í höfninni en náðist aftur á þurrt mikið skemmdur. Í skýrslu, sem lá fyrir fundi ráðs- ins í vikunni, er áætlað að kostn- aður við að koma Blátindi í sýning- arhæft ástand sé ekki undir hundrað milljónum króna og mun dýrara yrði að gera hann sigl- ingahæfan. Fram kemur að verkið sé sérhæft og efniviður dýr og illfá- anlegur. Kostnaður við að farga bátnum er áætlaður um fimm millj- ónir króna. Of dýrt að endur- byggja Blátind Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Sökk Blátindur sökk í Vestmannaeyjahöfn í óveðri sem gekk yfir Eyjar í febrúar sl. freðsdóttir menntamálaráðherra, Dagur B. Egg- ertsson borgarstjóri og fleiri gestir skoðuðu sýn- inguna Kolgrafarvík kemur í bæinn. Hér skoðar Hrafn Jökulsson fékk góða heimsókn í Pakk- húsið við Miðbakkann í Reykjavík í gær þegar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Lilja Al- Katrín myndir en í húsinu söfnuðu Hrafn og Ver- aldarvinir saman rusli sem tínt var á strand- lengjunni í Kolgrafarvík á Ströndum í fyrra. Morgunblaðið/Eggert Skoðuðu rusl og myndir úr Kolgrafarvík 40-50% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM ÚTSALA ENN MEIRI AFSLÁTTUR! SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.