Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
10-60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAN ER Í
FULLUMGANGI
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
NÝ ÍSLENSK GLÆPASAGA
Anna Ólafsdóttir Björnsson
ir og verður haft til taks meðan
óvissa ríkir um framhaldið.
Þrátt fyrir vegalokanir und-
anfarna daga skortir Siglfirðinga
ekki helstu nauðsynjar. Bærinn er
vel birgur, en björgunarsveitarmenn
fóru á móti póstinum þannig að
lyfjasendingar komust til bæjarins.
Pattstaða í augnablikinu
„Það er hálfgerð pattstaða akk-
úrat núna,“ sagði lögregluþjónninn
Hermann Karlsson í samtali við
mbl.is frá aðgerðastjórn almanna-
varna á Akureyri. „Við sjáum núna
hvernig nóttin verður og tökum
stöðuna aftur í fyrramálið.“ Her-
mann. segir að öll samskipti við íbúa
hafi verið til fyrirmyndar og þeir
hafi allir tekið fyrirmælum um að yf-
irgefa heimili sín vegna snjóflóða-
hættunnar vel.
Veðurspár gera ráð fyrir áfram-
haldandi úrkomu á svæðinu og
óvissustigi vegna snjóflóðahættu á
Tröllaskaga.
Vonskuveður og ófærð
Vonskuveður hefur verið á Trölla-
skaga síðustu daga og ófært til
Siglufjarðar. Þá er vegurinn um
Ólafsfjarðarmúla lokaður, en þar
hafa fallið snjóflóð.
Af þeim sökum var aðstoðar
Landhelgisgæslunnar óskað og er
varðskipið Týr á leiðinni norður fyr-
Aðgerðastjórn almannavarna á Ak-
ureyri var virkjuð eftir að snjóflóð
féll á skíðasvæðinu í Skarðsdal við
Siglufjörð í gærmorgun, en engan
sakaði þótt tjón væri nokkuð.
„Eftir því sem ég best veit slokkn-
aði á eftirlitsmyndavél um hálfníu í
morgun, þannig að þetta hefur gerst
í morgun. Við vitum svo sem ekki
mikið um tjón, en við vitum að skíða-
skálinn er farinn,“ sagði Elías Pét-
ursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, í
samtali við mbl.is í gær.
Snjóflóðið fór auk skíðaskálans á
áhaldageymslu og snjótroðara þar á
svæðinu, en skíðaskálinn fór af
grunninum. Tjón af völdum snjó-
flóðsins er því talið verulegt, en til
allrar mildi var svæðið mannlaust
þegar það féll.
Vegna hættu á frekari snjóflóðum
voru níu hús á Siglufirði rýmd og
þurftu liðlega tuttugu manns að leita
annað af þeim sökum, en allir áttu
þeir í önnur hús að venda hjá vinum
eða ættingjum.
Ljósmynd úr Matrice 300 RTK-dróna/Sigurður Þór Helgason
Siglufjörður Stórtjón varð á mannvirkjum á skíðasvæðinu í Skarðsdal eftir snjóflóð í gærmorgun.
Snjóflóðahætta á Siglu-
firði og vegir tepptir
Aðgerðastjórn virkjuð á Akureyri vegna snjóflóðsins
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Aðgerðastjórn Hermann Karlsson
hjá almannavörnum á Akureyri.
Helgi Bjarnason
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
Kaupfélag Skagfirðinga hefur
ákveðið að framlengja fram yfir
páska matvælaaðstoð við þá sem
eiga í erfiðleikum vegna atvinnu-
missis af völdum kórónuveirufarald-
ursins.
„Við erum afskaplega þakklát fyr-
ir áframhaldandi stuðning frá KS og
sjáum fyrir okkur að geta aðstoðað
hluta af þeim fjölmörgu sem hafa úr
litlu að spila,“ segir Ásgerður Jóna
Flosadóttir, formaður Fjölskyldu-
hjálpar Íslands.
Kaupfélag Skagfirðinga og dótt-
urfélög þess í matvælaframleiðslu
útveguðu mat í um 90 þúsund mál-
tíðir síðustu mánuði nýliðins árs sem
hjálparstofnanir dreifðu. „Kaup-
félagið er stór matvælaframleiðandi
á íslenskan mælikvarða og með fjöl-
breytta framleiðslu. Samstarfið við
hjálparstofnanir gekk vel á síðasta
ári og þörfin er enn mikil, atvinnu-
leysi er mikið og ekkert farið að
breytast í þeim efnum enn þá. Nið-
urstaða okkar var, eftir að hafa rætt
við hjálparstofnanir og fleiri sem til
þekkja, að það væri skynsamlegt að
halda þessu samstarfi áfram fram-
yfir páska,“ segir Þórólfur Gíslason,
kaupfélagsstjóri KS.
Samkomulag hefur verið gert við
hjálparstofnanir um áframhaldandi
dreifingu matvæla frá kaupfélaginu.
Þórólfur segir að sama fyrirkomulag
verði viðhaft og var fyrir jólin.
Þórólfur segir að ekki hafi verið
áætlað hversu margar máltíðir KS
muni útvega í þessari umferð. Það
verði að ráðast af þörfinni. Nefnir
hann í því sambandi að þörfin á síð-
ustu mánuðum liðins árs hafi orðið
mun meiri en reiknað var með fyrir
fram.
Matargjöfin hjálpar mikið til
Hjálparstofnanirnar eru Fjöl-
skylduhjálp Íslands, Hjálparstofnun
kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs og Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Þær hafa látið þessi
mál mest til sín taka. Þórólfur segir
að reynt verði að aðstoða aðila sem
veita mataraðstoð á öðrum stöðum
eftir því sem þarf.
„Þetta hjálpar gríðarlega mikið til.
Ég hugsa til desembermánaðar og
get ekki ímyndað mér hvernig hefði
átt að hjálpa öllu þessu fólki ef ekki
hefði komið til matargjöf KS,“ segir
Ásgerður Jóna.
Hún segir Fjölskylduhjálpina hafa
aðstoðað yfir 2.000 heimili á höfuð-
borgarsvæðinu og Reykjanesi fyrir
jólin. Síðan hafi ein matarúthlutun
verið þar sem 300 heimili hafi fengið
aðstoð og önnur sé fyrirhuguð síðar í
janúar. Þörfin sé enn mjög mikil.
Segir Ásgerður að mikið sé hringt og
fólk komi. Það hafi ekki fjármuni til
matar- og lyfjakaupa. „Við munum
geta brúað bilið eins og mögulegt er
með aðstoð KS,“ segir Ásgerður
Jóna ennfremur.
Fjölgað um 150 frá því í fyrra
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
þiggur aðstoð frá Kaupfélagi Skag-
firðinga og aðstoðaði um 450 heimili
með matargjöfum á þriðjudag og í
gær, miðvikudag, að sögn Önnu H.
Pétursdóttur, formanns samtak-
anna. Að hennar mati hefur heim-
ilum sem þiggja aðstoð fjölgað um
150 síðan á sama tíma í fyrra.. „Það
hefur orðið mikil aukning hjá okkur,
það var brjálað að gera í gær og í dag
[í fyrradag og í gær],“ segir Anna.
Segir hún að mikið sé um nýtt fólk,
sem kom nokkuð á óvart. Fólk af ís-
lenskum og erlendum uppruna
sækja í aðstoðina, ungir sem aldnir,
en einnig eru dæmi um að fólk komi
sem á ekki rétt á aðstoð samkvæmt
skilyrðum samtakanna. „Það er líka
fólk sem kemur til okkar og heldur
að það sé hægt að fá frían mat, en er
samt með tekjur yfir viðmiðunar-
mörkum. Það er bara sent í burtu,“
segir Anna en skila þarf skattafram-
tali sem sýnir fram á að tekjurnar
séu undir viðmiðunarmörkunum, sjö
milljónum á ári.
„Fjöldinn sem uppfyllir þessi skil-
yrði og er að þiggja aðstoð hjá okkur
gefur því ágætis mynd af aðstæðum í
samfélaginu,“ segir Anna en auðséð
en atvinnuleysi hefur aukist vegna
faraldursins. Sjálfboðaliðar samtak-
anna hafa verið önnum kafnir, enda
heldur starfsemin velli allt árið. „Það
eru svo margir einstaklingar sem
eru að styrkja okkur og síðan er
margt um stóra styrki. Við erum
mjög þakklát fyrir alla styrkina sem
við erum að fá, þetta bjargar okkur
alveg,“ segir Anna.
Mataraðstoð fram yfir páska
Kaupfélag Skagfirðinga heldur áfram aðstoð sinni við hjálparstofnanir Útveguðu mat í um 90.000
máltíðir á síðustu mánuðum síðasta árs Ásgerður Jóna segir þörfina á mataraðstoð enn vera mikla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðstoð Kaupfélag Skagfirðinga og dótturfyrirtæki hafa veitt hjálparstofn-
unum aðstoð í formi matargjafa að undanförnu og munu halda því áfram.
Hjá embætti
landlæknis er
verið að leggja
lokahönd á raf-
ræna lausn sem
gerir fólki kleift
að sækja sér
bólusetningar-
vottorð á síðunni
heilsuvera.is.
Stefnt er að því
að þetta verði
mögulegt frá og með deginum í dag,
segir í tilkynningu heilbrigðisráðu-
neytisins frá í gær.
Vottorðið verður að efni og útliti í
samræmi við fyrirliggjandi evr-
ópska staðla og alþjóðlega bólusetn-
ingarskírteinið. Markmiðið er að
greiða för fólks milli landa, þannig
að einstaklingar geti framvísað
bóluefnavottorði á landamærum og
séu þá undanþegnir sóttvarnaráð-
stöfunum vegna Covid-19 í samræmi
við reglur hlutaðeigandi lands.
Heilbrigðisráðherra ákvað nýver-
ið að bólusetningarvottorð, sem upp-
fylla leiðbeiningar sóttvarnalæknis
og eru gefin út í EES/EFTA-ríki,
verði tekin gild á landamærum Ís-
lands. Þeir sem framvísa slíku vott-
orði eru undanþegnir opinberum
sóttvarnaráðstöfunum á landamær-
um og er þannig ekki skylt að fara í
sýnatöku við landamæri.
Þeir sem ekki geta nýtt sér
Heilsuveru til að sækja sér rafrænt
bólusetningarvottorð geta fengið
vottorð hjá heilsugæslunni um að
þeir séu fullbólusettir.
Bólusetningarvottorð fyrir flugferðir
Bólusettir geta
fengið vottorð.