Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 21.01.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Mörkin 6 - 108 Rvk. s:781-5100 Opið: 11-18 virka daga og 11-15 laugardaga. www.spennandi-fashion.is ÚTSALA 40-50% AFSLÁTTUR FALLEG HÖNNUN OG GÆÐi Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 40-60% ENN MEIRI AFSLÁTTUR TRAUST Í 80 ÁR Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna Netverslun á www.belladonna.is Fæst í netverslun belladonna.is Útsalan í fullum gangi 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Enn er hægt að gera góða kaup Str. 36-56 Útsalan í fullum gangi Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það er ekki boðlegt að þurfa að keyra yfir heiðar í einn og hálfan tíma til að ná sér í mjólk á veturna. Ég er viss um að fólkið á Reykhól- um verður ánægt að fá búðina sína aftur,“ segir Helga Guðmundsdóttir sem áformar að endurreisa versl- unarrekstur á Reykhólum í vor. Búðinni á Reykhólum var lokað í október og auglýsti sveitarfélagið húsnæðið til leigu. Helga og maður hennar, Arnþór Sigurðsson, voru þau einu sem sóttu um og hafa síðan lagt drög að því að opna búðina á ný. Í vikunni var tilkynnt að þau hefðu fengið 5,8 milljóna styrk frá yfirvöldum til þessa. Þrír styrkir voru veittir á grund- velli stefnumótandi byggðaáætlunar fyrir árin 2018-2024 og hlaut búðin á Reykhólum hæsta styrkinn. Mark- mið með styrkjunum var sagt vera að styðja verslun í skilgreindu strjálbýli fjarri stórum þjónustu- kjörnum, þar sem verslun hefur átt erfitt uppdráttar. „Maðurinn minn á rætur að rekja til Reykhóla. Okkur finnst þetta frá- bær staður og höfum verið þarna með annan fótinn. Þegar við vorum á ferðinni í október og búið var að loka búðinni sló ég því fram í hálf- kæringi hvort ég ætti ekki bara að opna búðina aftur,“ segir Helga. Hún segir að þetta hafi þó síður en svo verið sjálfsagt enda þau Arn- þór búsett á höfuðborgarsvæðinu og verslunarrekstur hefur reynst erf- iður á staðnum. „Við vorum hálfefins en langaði að gera þetta og sóttum um þennan styrk. Svo bárust þessar gleðifréttir á þriðjudaginn. Það hefði verið erf- iðara að ætla að reka búðina bara á lánum.“ Helga var að vinna á Landakoti en sagði starfi sínu lausu fyrir ára- mót. Hún mun einbeita sér að rekstri búðarinnar en Arnþór mun áfram sinna fyrri vinnu í fjarvinnu. „Við erum alveg blaut á bak við eyrun í verslunarrekstri ef ég á að vera alveg hreinskilin,“ segir Helga og hlær við. „En við erum útsjón- arsöm og ætlum að vanda okkur við þetta. Hugmyndin er að búa til skemmtilegan stað fyrir fólkið á Reykhólum. Það er veitingastaður þarna við hliðina á búðinni og þar er kannski hægt að gera eitthvað. Hver veit nema maður verði með kaffi og með því? Þetta verður alla vega bæði gaman og spennandi.“ Þessa dagana er verið að dytta að búðinni og stefnt er að opnun í síð- asta lagi 1. apríl. „Við reynum að nýta það sem er þarna og svo þarf maður að fara að ræða við birgja og fleira slíkt,“ segir Helga og bætir við að þau flytji tvö ein vestur fyrst um sinn. „Auðvitað reynum við svo að draga börnin eitthvað með okk- ur.“ Búðin hét áður Hólabúð en Helga segir að þau hafi ekki ákveðið hvaða nafn nýja búðin muni bera. „Mér fannst alltaf Hólabúð skrítið nafn, ég hugsaði bara um Hóla í Hjalta- dal. Á hún ekki bara að heita Reyk- hólabúð? Eða kannski Helgubúð, hver veit?“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykhólar Íbúar geta glaðst yfir því að búð verður opnuð þar á ný. Flytja vestur og opna búðina á ný  Helga í rekstur á Reykhólum í vor Nýgræðingar Arnþór og Helga flytjast að Reykhólum bráðlega. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) skráði 774 hegningarlaga- brot í umdæmi sínu í desember og voru þau fleiri en í nóvember. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lög- reglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir desember 2020. Tilkynningum um þjófnaði fækk- aði hins vegar á milli mánaða og einnig tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum. Minni hátt- ar eignaspjöllum fjölgaði mjög. Skráðar tilkynningar um eignaspjöll hafa ekki verið fleiri síðan 2010. Lög- reglan tekur fram að árið 2020 hafi borist álíka margar tilkynningar um eignaspjöll og bárust að meðaltali á árunum 2017-2019. Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði á milli mánaða og eins tilkynningum um heimilisofbeldi. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur of- beldi fækkaði einnig á milli mánaða. Í desember bárust álíka margar til- kynningar um tilvik þar sem lög- reglumanni var hótað ofbeldi og í nóvember. Skráðum kynferðisafbrotum fjölg- aði mikið í desember. Það má einna helst rekja til aðgerða lögreglunnar í vændismálum. Undanfarnar vikur hefur LRH gripið til sérstakra að- gerða í tengslum við mansal en vændi er ein af birtingarmyndum þess. Þetta er einn af þeim þáttum í skipulagðri brotastarfsemi sem LRH leggur mikla áherslu á. Beiðnum um leit að börnum og ungmennum fjölgaði í desember frá fyrri mánuði en alls bárust 16 slíkar beiðnir í síðasta mánuði ársins. gudni@mbl.is Afbrotum fjölgaði í desember
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.