Morgunblaðið - 21.01.2021, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30
Gerðu vel
við bóndann
þinn á morgun
Frábært úrval af
flottum steikum
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hún er orðin 12 ára bless-unin, en er spræk ogvel ern. Hún gránareins og eigandinn en að
öðru leyti er hún bara hress,“ seg-
ir Stefán Jón Hafstein um heim-
ilishundinn Freyju sem er þó
nokkur heimshornahundur, fædd í
Mósambik, uppalin í Malaví en býr
nú á Íslandi þar sem hún ætlar að
verja efri árunum.
„Við fengum hana sem varð-
hund í Malaví, þegar við bjuggum
þar. Ég hef alltaf verið mikill
dýravinur en fékk aldrei að eiga
hund eða kött þegar ég var lítill.
Draumur minn um að eignast
hund rættist því ekki fyrr en
Freyja kom inn í líf mitt í Afríku
og ég þá kominn á sextugsaldur,“
segir Stefán og bætir við að til-
gangurinn hafi í og með verið að
fá hund sem gæti virkað sem varð-
hundur.
„Stundum var ótryggt ástand
þar sem við bjuggum, innbrot og
leiðindavesen hjá fólki. Ég vildi
því hafa einhvern á heimilinu sem
gæti vaknað við óboðna gesti.“
Þeir eru með hvelft brjóst
eins og blettatígrar
„Þegar kom að því að velja
hvers konar hund ég ætti að fá
mér var mér bent á þetta merki-
lega kyn sem Freyja er af, Rhod-
esian Ridgeback, eða rákhundar
eins og þeir kallast á íslensku.
Þeir eru mjög vinsælir í Afríku
sunnanverðri, enda ræktaðir upp í
Ródesíu til að vera varðhundar bú-
garðanna. Hvítu nýlenduherrarnir
í Ródesíu á nítjándu öld voru bún-
ir að leggja undir sig þetta land
sem nú heitir Simbabve, og þeir
vildu fá hunda eins og þeir þekktu
að heiman en voru ekki til í Afr-
íku. Þeir fluttu því inn nokkur af-
brigði frá Evrópu og bjuggu til
sitt eigið afríska afbrigði; rák-
hunda. Eitt einkenni á þessum
hundum er dökk rák eftir allri
hryggsúlunni, þar sem hárin snúa
öfugt. Þetta er kambur og eitt af
því sem erfðist við blöndun ný-
lenduherranna á sínum hundum
við afríska villihundinn, en hann er
með kamb eins og híena, sem rís
ef þær reiðast. Þessi rák verður
dumbrauð hjá Freyju ef hún reið-
ist eða þarf að ógna. Þessir
hundar hafa afbragðs eiginleika
sem búgarðaeigendur vildu. Þetta
eru stórir hundar og sterkir, sjálf-
stæðir í hugsun með frumkvæði,
því það varð að vera hægt að
skilja þá eftir á búgarðinum til að
passa búsmalann þegar enginn
húsbóndi var heima til að skipa
þeim fyrir. Þeir hafa mjög stórar
loppur og þófa til að geta hlaupið
um í eyðimörkinni þar sem eru
þyrnigerði, snöggan feld til að þola
vel hita og hafa mikið hlaupaþol.
Þeir eru með hvelft brjóst eins og
blettatígrar. Þeir þurftu líka að
vera barngóðir, því þeir máttu
ekki ráðast á börn nýlenduherr-
anna, urðu að geta verið heim-
ilisvinir. Allir þessi eiginleikar
voru ræktaðir upp í þeim kynslóð
fram af kynslóð.“
Lætur alls ekki ná sér
Stefán segir að rákhundar séu
í alþýðuvísindum kallaðir ljóna-
hundar.
„Það kemur til af því að þeir
voru látnir reka burt ljón sem
hugðust ráðast á búsmala. Margir
hundar króuðu þá ljónin af og
héldu þeim í kví þar til húsbónd-
inn kom til að skjóta þau. Ég hef
misst Freyju í fé á Íslandi, en ég
tek fram að hún bítur alls ekki.
Aftur á móti kemur eðlið upp og
hún tekur eitt dýr úr hópnum og
króar það af. Þetta gerðist líka
þegar hún slapp einu sinni í naut-
gripahjörð í Malaví; hún fór beint í
að reka eina kvígu úr hópnum og
lét hana ekki sleppa, beið eftir að
ég kæmi að sækja hana. Þessir
hundar taka enga sénsa og láta
ekki ná sér, það er ríkt í þeim að
færast undan ef ókunnugir ætla að
klappa þeim eða fanga þá. Þeir
koma ekki flaðrandi upp um
ókunnugt fólk, enda lætur góður
ljónahundur alls ekki ná sér nema
hann þekki til.“
Menn gerðu grín að mér
Stefán segir að sér hafi litist
vel á að fá hund af kyni rákhunda
með þessa eiginleika og tilhlökk-
unin var mikil þegar fréttist af
goti í Mósambík, ekki langt frá
landamærum Malavís.
„Þetta voru fimm eða sex
hvolpar og meðal þeirra var ein
tík, Freyja, sem mér leist mjög vel
á. Ég vildi tík, því þær eru með-
færilegri, en menn gerðu grín að
mér að ætla að fá mér hund í
fyrsta skipti af rákhundakyni, því
þeir eru mjög þrjóskir og sjálf-
stæðir. Mér var sagt að það væri
ekki fyrir viðvaning að eiga svona
hund, ég yrði að kunna eitthvað í
hundauppeldi. Allt gekk þó vel, við
fengum Freyju þegar hún var átta
vikna og síðan óx hún upp og varð
prýðis varðhundur á heimili okkar
í Malaví. Hún er líka varðhundur
hér heima á Íslandi, hún vill helst
ekki að sá sem ber út blöðin komi
of nálægt heimilinu. Freyja er
gríðarlega húsbóndaholl og mikill
vinur okkar. Þegar við tökum hana
með okkur á flakk út á land passar
hún bílinn og ef við erum í bústað
passar hún að láta vita af manna-
ferðum, eins og góðir hundar eiga
að gera,“ segir Stefán og bætir við
að Freyja hafi aðlagast loftslaginu
á Íslandi mjög vel og henni finnst
æðislegt að leika sér í snjó.
„Þegar þessi tegund hunda
flytur til kaldari landa þróar hún
snögghærðan innri feld. Þannig
þéttir hún feldinn og aðlagast.“
Tryllingslegur fögnuður
Eðli málsins samkvæmt hefur
vináttan á milli Freyju og Stefáns
vaxið jafnt og þétt á þeim tólf ár-
um sem þau hafa átt samleið.
„Þetta er óskaplega mikil holl-
usta og væntumþykja. Ég er ekk-
ert fyrir að manngera dýrin, þau
eru dýr og við erum manneskjur,
en ég er oft í löngum utanlands-
úthöldum og það er tryllingslegur
fögnuður hjá Freyju þegar ég kem
heim aftur. Mér fannst þetta eigin-
lega vandræðalegt, svo mikil var
gleðin, sérstaklega þegar hún var
yngri. Freyja er mjög háð mér, ég
er númer eitt hjá henni, en þegar
ég fer er konan mín númer eitt hjá
henni á meðan. Aðalatriðið hjá
henni er að vera nálægt okkur
húsbændum sínum, hennar félags-
greind er þannig að henni líður vel
ef hún er með okkur,“ segir Stefán
og bætir við að þau Freyja skilji
ágætlega hvort annað.
„Hún skilur rúmlega þrjátíu
orð, hugtök og bendingar. Hún
hefur mikla þægindagreind og það
kom strax fram í frumbernsku hjá
henni að hún er fín með sig. Kon-
an sem við fengum hana hjá kall-
aði hana prinsessu vegna þessa.“
Kynntist hundum á Máná
Stefán segir að Freyja haldi
honum í líkamlegu formi, því hún
þurfi mikla hreyfingu.
„Hún þarf klukkutíma göngu-
túr á dag, röskan gang. Við göng-
um saman fimm til sex kílómetra á
hverjum einasta degi. Freyja er
stór og sterk, hún er yfir fimmtíu
kíló og dregur auðveldlega börn og
konur í jörðina ef hún tekur roku í
ólinni. Húsbóndinn þarf því að
taka vel á móti. Hún er mikið yndi
hún Freyja, en þrjósk, frek og
sjálfstæð,“ segir Stefán og bætir
við að sér finnist hundar vera ynd-
islegar skepnur, sem hann kynnt-
ist fyrst þegar hann fór í sveit á
Máná á Tjörnesi sem krakki.
„Tveir hundar voru á bænum
og ég var mikill vinur þeirra. Þeir
eltu mig hvert sem ég fór, en auð-
vitað með tignarröðina í lagi, fyrst
húsbændur og svo niðurúr. Þegar
ég kom með rútunni að vori eftir
fjarveru heilan vetur komu þeir
geltandi í áttina til mín þegar ég
birtist með ferðatöskuna gangandi
upp heimreiðina, en eftir sekúndu-
brot þekktu þeir mig og fögnuðu.“
Stefán segir að flottustu skrif
sem hann hafi séð um samband
hunds og manns sé í ritgerðarsafni
Halldórs Laxness.
„Hann skrifaði fallega ritgerð
um þetta einstaka samband, en í
þessari ritgerð hæðist hann að
þeim sem voru á móti hundahaldi í
Reykjavík. Hundurinn hefur fylgt
manninum í tíu þúsund ár, hann er
fyrsta húsdýrið okkar. Hundar eru
bandamenn og tryggir félagar,
þeir eiga heima þar sem maðurinn
er. Það þarf að gera hundahaldi í
þéttbýli hærra undir höfði.“
Freyja ljónahundur er fín með sig
Í Freyju heimshornahundi rennur afrískt blóð. Hún hefur búið í tveimur heimsálfum hjá þeim Stefáni Jóni Hafstein og Guðrúnu Sigurð-
ardóttur. Stefán Jón segir hana kunna vel við sig í snjónum á Íslandi og að hún sé þrjósk, frek og sjálfstæð. Rákin eftir endilöngu baki
hennar verður dumbrauð hjá Freyju ef hún reiðist eða þarf að ógna, en rákin sú eða kamburinn er arfleifð frá afríska villihundinum.
Ljósmynd/Stefán Jón Hafstein
Freyja „Þegar þessi tegund hunda flytur til kaldari landa þróar hún snögghærðan innri feld, hún þéttir feldinn.“
Stefán Jón og Freyja Hér er Freyja
spengilegur unglingur í Malaví,
nýbúin að reka geitur upp í fjall.