Morgunblaðið - 21.01.2021, Page 32

Morgunblaðið - 21.01.2021, Page 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 ATVINNUHÚSNÆÐI SKRIFSTOFUR – IÐNAÐARBIL Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali, leigumiðlari og viðskiptafræðingur BERG Fasteignasala | Háholt 14 | Mosfellsbæ Sími 588 5530 | berg@berg.is | berg.is Hafðu samband við okkur og við aðstoðum og finnum rétta aðilann fyrir þig eða réttu eignina. Þarftu að selja, kaupa, leigja út eða taka á leigu? Til leigu Sunnukriki 3 – 100 fm Sími 766 6630 Til leigu Laugavegur 65–150 fm 21. janúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.41 Sterlingspund 176.18 Kanadadalur 101.65 Dönsk króna 21.104 Norsk króna 15.181 Sænsk króna 15.551 Svissn. franki 145.79 Japanskt jen 1.2444 SDR 186.37 Evra 157.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.6908 Hrávöruverð Gull 1843.1 ($/únsa) Ál 1979.5 ($/tonn) LME Hráolía 55.01 ($/fatið) Brent ● Í nýrri könnun, sem byggir á gögn- um ferðamark- aðstorgsins KOALA, sést að Ís- land er í hópi vin- sælustu áfanga- staða sem Bandaríkjamenn fletta upp um þessar mundir. Í könnuninni, sem bygg- ir á gögnum sex mánuði aftur í tímann, lendir Ísland í 10. sæti yfir þau lönd sem mestur áhugi virðist á. Þannig hafa 189.100 „leitir“ verið gerðar að Íslandi á vef fyrirtækisins. Vinsælasta landið, út frá þessum mælikvarða, er hins vegar Púrtó Ríkó með 580.100 uppflettingar. Þar á eftir kemur Mexíkó með 476.690 leitir. Í þriðja til níunda sæti eru svo Maldíveyjar, Japan, Jamaíka, Grikkland, Aruba-ey í Karabíska hafinu, Kosta Ríka og Bahamaeyjar. Sérstaka athygli vekur að fleiri leitir eru gerðar að Íslandi en löndum á borð við Ítalíu (12. sæti), Taíland (15. sæti), Írland (21. sæti) og Spán (24. sæti). Mike Kennedy, forstjóri KOALA segir að gögn fyrirtækisins bendi ekki aðeins til þess að Bandaríkjamenn séu að kynna sér áfangastaði heldur að leggja drög að ferðalögum, bæði til nærliggj- andi og fjarlægari áfangastaða. Ísland skorar hátt hjá Bandaríkjamönnum STUTT BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Tæplega 13 þúsund umsóknir hafa borist Ríkisskattstjóra vegna endur- greiðslu á virðisaukaskatti vegna bílaviðgerða. Þetta kemur fram á vef stjórnar- ráðsins um efnahagsaðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins. Nánar tiltekið var búið að sam- þykkja 11.800 umsóknir af 12.700 að fjárhæð alls 234 milljónir króna. Óðinn Valdimarsson, verkefna- stjóri hjá Bílgreinasambandinu, seg- ir endurgreiðslurnar hafa aukið eft- irspurnina jafnvel meira en hann gerði sér vonir um. „Það er ánægjulegt að úrræðið hafi ýtt undir að fólk fari á bílaverk- stæðin í þessu ástandi. Við höfum heyrt það frá verkstæðunum að þetta er að skila sér – að eftirspurnin hafi aukist strax eftir að úrræðið tók gildi 1. mars sl. Síðan hefur aðeins hægst á markaðnum.“ Hefur róast frá áramótum „Við heyrum það alla vega frá verkstæðunum að nú er heldur minna að gera en í venjulegu árferði. Það helgast líka af því að flotinn hef- ur verið minna notaður en í venju- legu árferði. Þar af leiðandi verður minna um tjón og slit á bílum og því er eðlilegt að síður sé þörf á viðgerð- um eða lagfæringum. Þá hefur það auðvitað áhrif að miklu færri bíla- leigubílar eru nú í umferð en á sama tíma í fyrra,“ segir Óðinn. Spurður hvernig árið 2020 hafi komið út í bílaviðgerðum segir Óðinn að árið 2020 hafi verið nokkuð gott. „Þetta úrræði hvatti fólk til að fara á verkstæðin og það var ekki fyrr en undir lok árs sem menn fóru að taka eftir því að minna væri að gera en í venjulegu árferði. Fram að því hafði verið meira að gera en 2019. Korta- veltutölur sýndu það. Heilt yfir var árið 2020 nokkuð gott ár en síðustu þrír mánuðirnir voru sennilega undir pari,“ segir Óðinn. Nú sé umferðin að aukast á ný sem aftur kunni að leiða til meiri eftirspurnar hjá bíla- verkstæðum á síðari hluta ársins. Þá stefni í annað innlent ferðasumar sem aftur muni þýða meiri akstur Ís- lendinga innanlands og það skila sér í viðskiptum á bílaverkstæðum í sumar og haust. Úrræðið gildir út árið 2021. Nær til bílamálunar Á vef Ríkisskattstjóra segir að endurgreiðslurnar eigi við vinnu manna vegna bílaviðgerða, bílamáln- ingar og bílaréttinga fólksbifreiða. „Rétt til endurgreiðslu vegna þessa eiga einstaklingar utan rekstr- ar og skilyrði fyrir endurgreiðslu eru þau að fólksbifreið sé í eigu umsækj- enda og að fjárhæð vinnuliðar sé að lágmarki 25.000 kr. án virðisauka- skatts. Endurgreiðsla virðisauka- skatts samkvæmt þessu tekur ekki til virðisaukaskatts sem heimilt er að færa til innskatts í skattskyldum rekstri. Þá er það einnig skilyrði fyr- ir endurgreiðslu að seljandi þjónustu sé skráður á virðisaukaskattsskrá á því tímamarki þegar viðskiptin eiga sér stað,“ segir á vef RSK. Meiri notkun, meira viðhald Sigurjón Árni Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Max1 / Vélalands, segir endurgreiðsluna hafa reynst vel. Hún hafi aukið eftirspurn og sparað almenningi fjármuni. „Ég er mjög sáttur við reksturinn í fyrra. Það var þéttleiki í þessu og verkefnastaðan alltaf mjög góð,“ segir Sigurjón Árni. MAX1/Vélaland er með þrjú verkstæði: í Jafnaseli 6 og Bíldshöfða 5a í Reykjavík og í Dalshrauni 5 í Hafnarfirði. Spurður hvort niðurstaðan sé þá sú að engin kreppa hafi verið í fyrra segir Sigurjón Árni að árið 2020 hafi auðvitað verið frábrugðið öðrum ár- um vegna faraldursins. „En árið kom mjög vel út og það er greinilegt að landinn notaði bílinn meira og keyrði meira. Það endur- speglast í meira viðhaldi.“ Endurgreiðsla jók eftir- spurn á bílaverkstæðum Morgunblaðið/Árni Sæberg Aukin umsvif Endurgreiðslur á VSK vegna viðgerða juku eftirspurn.  Eftirspurnin var á tímabili meiri en árið 2019  Horft til innlends ferðasumars Endurgreiðslur á VSK vegna bílaviðgerða Sem hluti af efnahagsaðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins hafa 234 milljónir kr. verið endurgreiddar 12.700 umsóknir höfðu borist í byrjun janúar og 11.800 verið afgreiddar Heimild: Stjórnarráðið Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.