Morgunblaðið - 21.01.2021, Side 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021
Vegna háskóla-
umsóknar Kvikmynda-
skóla Íslands (KVÍ)
hefur Listaháskóli Ís-
lands (LHÍ) efnt til
fremur ósmekklegrar
orðræðu gegn Kvik-
myndaskólanum og
m.a. haft forgöngu um
flokkadrætti meðal
kvikmyndagerð-
armanna, sem KVÍ
hefur neitað að taka
þátt í, jafnvel þótt ástæða hefði verið
til að leiðrétta margt.
Kvikmyndaskóli Íslands hefur
einfaldlega lagt inn vandaða og
formlega umsókn til mennta- og
menningarmálaráðherra um færslu
milli skólastiga, sem hefur verið í
vinnslu í ráðuneytinu í 12 mánuði.
Ekki er verið að biðja um hækkun
fjárveitinga. Skólinn starfar fyrst og
fremst fyrir nemendur sína sem eiga
kröfu á að nám þeirra
sé rétt metið, hjá
stjórnvaldi sem hefur
einkarétt á að veita
slíkt mat. Umsóknin
hefur ekkert að gera
með löngun LHÍ til að
opna kvikmyndadeild.
En af því hversu
Listaháskólinn hefur
farið mikinn, meðal
annars gagnvart nem-
endum Kvikmynda-
skólans, finnst stjórn-
endum KVÍ rétt að
stíga fram og benda á
nokkrar staðreyndir um LHÍ frá
Hagstofu Íslands.
Dýrustu nemendur
skólakerfisins
Í upphafi er rétt að minna á að
þjóðin er í djúpri efnahagskreppu.
Leitað er logandi ljósi að nýjum at-
vinnutækifærum og tekjum. Horft
hefur verið til kvikmyndaiðnaðarins
og hinna skapandi greina sem mögu-
legrar nýrrar stoðar undir efnahags-
lífið. Fjórða iðnbyltingin er líka að
innleiða hljóðlega en miklar umbylt-
ingar á flestum sviðum atvinnulífs-
ins. Menntun í listum, skapandi
greinum og hugvísindum, sem eru
allt tengdar greinar, er mikilvægt
viðbragð við þessum breytingum.
Umræða um listmenntun er því ekki
jaðarmál, heldur eitt af grundvall-
aratriðunum í framtíðaruppbygg-
ingu samfélagsins. Þegar burðir
Listaháskólans eru metnir þá er
þetta bakgrunnurinn.
Nýjustu tölur Hagstofunnar um
skólakerfið eru fyrir skólaárið 2018/
2019. Þann vetur brautskráðust
4.408 nemendur með gráður frá há-
skólum landsins. Frá LHÍ útskrif-
uðust 137 nemendur eða 3,2%. Það
hlutfall verður að teljast mjög lágt.
Frekari greiningu á braut-
skráðum nemendum má sjá í með-
fylgjandi töflu.
Taflan sýnir brautskráningar
LHÍ veturinn 2018/19 og til saman-
burðar er veturinn 2005/06 en þá var
skólinn kominn vel af stað, en hann
var stofnaður árið 1999.
Það vakna margar spurningar við
skoðun á þessari töflu. Tekið skal
fram að eingöngu eru teknar náms-
greinar sem sýndu brautskráningar.
Að minnsta kosti átta listnáms-
greinar sem falla undir LHÍ eru til
viðbótar í Hagstofutöflunni, en þær
sýna allar núll.
Hvers vegna er vöxtur grunn-
námsins svona lítill og í litlu sam-
ræmi við fjölgun stúdenta, sem er
55% á tímabilinu? Hjá LHÍ er vöxt-
urinn 15%. Í raun er hann minni því
meðaltal leiklistar er mun lægra en
þarna sést. Í fjórum námsgreinum
er bein fækkun. Hvað er að gerast í
hljóðfærakennslunni, er hún að
leggjast af? Er meistaranámið ekki
bæði götótt og veigalítið?
Ef miðað er við að fjárveitingar
frá ríkinu til skóla séu til kaupa á
námsgráðum fyrir nemendur, þá
greiddi ríkissjóður 7,4 milljónir fyrir
hverja gráðu veturinn 18/19, sem er
með því allra hæsta sem þekkist.
Heildarfjárveiting fyrir þennan vet-
ur var rétt rúmur einn milljarður
króna. Fjárveitingin í dag 2021 er
komin 1,35 milljarða þannig að lík-
lega er gráðukostnaðurinn orðinn
enn hærri.
En það er alveg ljóst við skoðun
þessarar töflu að það er ekki brýn-
asta verkefni Listaháskóla Íslands
að stofna nýja flókna kvikmynda-
deild með mörgum námsgreinum.
Það eru greinilega næg verkefni til
staðar að þétta það sem fyrir er í
náminu.
Áfram veginn
Við eigum að reyna að forðast að
eyða tíma í vitleysu. Sérstaklega á
erfiðum tímum. Nú þurfa stjórnvöld
og stofnanir að vanda sig í sam-
skiptum og afgreiðslum ef þjóðinni á
að takast að vinna sig skjótt út úr
vandanum. Bægslagangur eins og
LHÍ sýnir stjórnvöldum og Kvik-
myndaskólanum er engum til fram-
dráttar.
Eftir Böðvar Bjarka
Pétursson
» Það er ekki
brýnasta verkefni
Listaháskóla Íslands
að opna nýja og flókna
kvikmyndadeild.
Böðvar Bjarki
Pétursson
Höfundur er formaður stjórnar
Kvikmyndaskóla Íslands.
Sannleikurinn um Listaháskóla Íslands
Brautskráningar 2005/06 2018/19 2018/19 2018/19
Námsgreinar Gr.nám Gr.nám Viðb.nám Framh.
Arkitektúr 12 11 0 0
Fatahönnun 11 7 0 0
Vöruhönnun 11 6 0 0
Grafísk hönnun 12 15 0 0
Tónlist, óskilgr. 0 7 0 0
Tónlistarmiðlun 0 3 0 0
Listdans 0 3 0 0
Leiklist 8 19 0 6
Tónsmíðar 0 7 0 1
Tónlistarfræði 4 0 0 0
Söngur 2 0 0 0
Hljóðf.leikur 9 3 0 0
Listkennsla 0 0 0 9
Myndlist 24 25 0 8
Tónl.kennaranám 0 1 0 2
Myndl.kennaranám 0 0 4 0
Samtals 93 107 4 26
Heimild: Hagstofa Íslands
Allt um
sjávarútveg