Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 21.01.2021, Blaðsíða 40
40 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Sveitarfélög sinna ýmsum verkefnum og leggja sitt af mörkum við að tryggja sem bestu þjónustuna. Um þetta ríkir ákveðin samfélagssáttmáli: Borgarbúar greiða út- svar og þiggja í stað- inn ýmsa þjónustu frá sveitarfélaginu. Fyrir borgarbúa skiptir fyrst og fremst máli að þjónustan sé öflug og biðin eftir henni sé stutt, burtséð frá því hver innir hana af hendi. Pólitískar stefnur setja mark sitt á þau verkefni sem meiri- hlutavaldhafar standa frammi fyr- ir. Einn grundvallarmunur á póli- tískum stefnum er ólík sýn á rekstrarform þjónustunnar. Rekstrarformi þjónustu er gjarnan stillt upp á móti hvoru öðru í um- ræðunni: Einkaframtakið gegn hinu opinbera. Oft festist umræðan í skotgröfunum, þ.e. þessum gagn- stæðu pólum, og minni tími fer í að ræða lausnir á vandamálunum, sem oftar en ekki eru fólgin í bið- listum. Biðlistar frekar en lausnir Þegar litið er til margvíslegrar þjónustu borgarinnar með gagn- rýnum augum má fljótt sjá hvar tækifærin liggja og úrbóta er þörf. Sjálf- stæðisflokkurinn hef- ur ítrekað lagt fram tillögur um að fé fylgi barni í grunn- og leik- skóla, óháð rekstr- arformi þjónustunnar. Tillögurnar hafa allar verið felldar. Auk þess hafa tillögur um hækkun niður- greiðslna til dagfor- eldra vegna barna 18 mánaða og eldri ítrek- að verið lagðar fram, en felldar. Sú tillaga miðast að því að kostnaður foreldra sem hafa börn í dagvistun hjá dagforeldi og þeirra sem hafa hlotnast pláss í leikskólum borg- arinnar sé á pari. Tilvalið væri að nýta einka- framtakið betur við skólaþjónustu borgarinnar. Í núverandi leik- skólakerfi eru biðlistar þekkt vandamál. Í stað þess að hlusta á réttmæta gagnrýni og tillögur að langtímalausnum og horfast í augu við vandamálið er það pólitísk ákvörðun sitjandi meirihluta að hlusta ekki. Með því er auknum sveigjanleika í þjónustu Reykjavík- urborgar hafnað og þar af leiðandi skerðist valfrelsi borgarbúa um þjónustu borgarinnar. Fjölmargir foreldrar, sem sjá ekki fram á að fá leikskólapláss fyrir börnin sín fyrir tveggja ára aldur, eiga erfitt með að samþykkja þessa pólitík. Vannýtt tækifæri í velferðarþjónustu Biðlistar eftir velferðarþjónustu og stoðþjónustu borgarinnar eru víðast hvar mjög langir. Ótal tæki- færi eru fólgin í því að útvista ein- hverjum af þeim verkefnum sem borgin sinnir. Það gæti dregið úr álagi á þjónustustofnunum borg- arinnar og á sama tíma aukið þjón- ustu við borgarbúa. Hugmyndin um að fé fylgi þjónustuþega ætti að opna á möguleika einkaframtaks- ins í þjónustu við borgarbúa með góðum árangri og bættri þjónustu. Undirritaður lagði fram tillögu í velferðarráði í vikunni sem lýtur að því að skoða þá möguleika sem í boði eru til útvistunar á þjónust- unni. Tillagan er lögð fram með það að markmiði að stytta biðlista, bæta og auka skilvirkni í þjónustu og hugsanlega auka hagkvæmni í rekstri velferðarsviðs. Sé mark- miðið að setja borgarbúa í fyrsta sæti umfram annað er erfitt að sjá slíka tillögu fellda af meirihlut- anum í borgarstjórn. Fyrir borgarbúa sem greiða út- svar sitt til sveitarfélagsins skiptir fyrst og fremst máli að veitt þjón- usta sé öflug og biðin eftir henni stutt. Þess vegna er nauðsynlegt að borgin opni augu sín fyrir að- ilum á einkamarkaði svo unnt sé að grynnka á biðlistunum. Vannýtt tækifæri Eftir Egil Þór Jónsson » Fyrir borgarbúa sem greiða útsvar sitt til sveitarfélagsins skiptir fyrst og fremst máli að veitt þjónusta sé öflug og biðin eftir henni stutt. Egill Þór Jónsson Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. egill.thor.jonsson@reykjavik.is ÚTSALA 50% AFSLÁTTUR AF UMGJÖRÐUM LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 Þessar takmarkanir á flugi und- anfarið hafa hafa beint athyglinni að því hvað við erum í raun sam- bandslaus við umheiminn án þess, og tími kominn til að við endurhugsum gamlar hugmyndir um farþegaferjur. Því þótt Norræna sé í sjálfu sér traust skip og henti vel til þungaflutn- inga gerir staðsetning hennar hinum megin á landinu hana að ófýsilegum kosti fyrir meirihluta Íslendinga, og þegar litið er á landakort sést strax að bein lína frá Íslandi til meginlands Evrópu er ekkert styttri frá Seyð- isfirði en hvaða stað sem er á Suður- landi. En þá verðum við að hætta þessum úrelta sið að taka bílinn með í ferðalagið, enda er það bara hlægi- legt þegar maður hugsar um það, en það þýddi að létt farþegaferja gæti notað nánast hvaða höfn sem er bæði hér og á meginlandinu – sem væri þó nauðsynlegt að væri í góðri tengingu við járnbrautarstöð og þar með allt lestarkerfið. Ég segi fyrir mig að ég vildi mörgum sinnum frekar taka rút- una frá Umferðarmiðstöðinni að þægilegri ferju með rúmgóðum söl- um en að taka hana til Keflavíkur þar sem maður þarf að troðast í röðum til að komast inn í þröngan álhólk. Að vísu er ég svo heppinn að hafa aldrei verið sjóveikur, en það eru líka marg- ir sem eru flugveikir. En gamli góði Velvakandi skammtar orðin naumt svo ég get ekki viðrað alla mögu- leikana (og kannski líka ókostina) sem lestarferðir bjóða upp á – bæði fyrir einstaklinga og hópa. Leó S. Ágústsson Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Sambandslaus við umheiminn? Morgunblaðið/Árni Sæberg Farþegaflutningar Mörgum hentar ágætlega að sigla á milli landa. Atvinna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.