Morgunblaðið - 21.01.2021, Síða 41

Morgunblaðið - 21.01.2021, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JANÚAR 2021 Ilmur er ný litalína Slippfélagsins hönnuð í samstarfi við Sæju innanhúshönnuð. Línan er innblásin af jarðlitum, dempaðir tónar með gulum og rauðum undirtónum. Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga slippfelagid.is slippfelagid.is/ilmur Hör Leir Truffla Börkur Myrra Krydd Lyng Kandís Lakkrís Innblástur og nýir litir á slippfelagid.is Elínrós Líndal elinros@mbl.is Íris er annar eigenda og fram- kvæmdastjóri Mulier Fortis. Fyrirtækið hóf rekstur í febrúar á síðasta ári og er heildsölufyrirtæki í þróun, framleiðslu og innflutningi á vítamínum og bætiefnum. „Við erum einnig í framleiðslu á handspritti og sótthreinsispritti undir vörumerkinu Númer eitt, sem er í eigu fyrirtækisins. Frek- ari vöruþróun er í gangi í flokki heilsutengdra vara en þar liggur okkar ástríða. Ég er spennt fyrir komandi ári og leita tækifæra til að koma vörum á markað sem uppfylla þarfir viðskiptavina okk- ar. Viðskiptavinir okkar eru í fyrsta sæti og því höfum við að leiðarljósi að þeirra heilsa er okk- ar ástríða í þeim skilningi að bjóða vörur sem þörf er á. Það eru ótrú- lega spennandi tímar framundan hjá okkur. Við höfum fengið góðar viðtökur á fyrsta rekstrarárinu okkar og getum því stigið þakklát inn í nýja árið.“ Samnemendurnir skipta máli Hver er menntun þín? „Ég útskrifaðist með MBA- gráðu frá Háskóla Íslands á árinu 2019. Áður hafði ég klárað nám í markaðs- og útflutningsfræðum frá endurmenntun Háskóla Íslands og verkefnastjórnun APME frá Opna Háskólanum í Reykjavík.“ Hvað fékkstu með því að bæta við þig menntun? „MBA-námið er krefjandi og metnaðarfullt nám svo það reyndi verulega á að hafa skipulag í lagi til að geta sinnt bæði námi og vinnu af fullum krafti. MBA-námið er mjög hagnýtt og á sama tíma fjölbreytt og skemmtilegt nám. Hópurinn kemur úr öllum áttum atvinnulífsins og er með mikla reynslu úr atvinnulífinu og því miklu að deila og það er ekki síður það sem gerir námið fjölbreytt og áhugavert. Mikill samhugur og traust myndast meðal nemenda og þeir tímar komu að álagið var það mikið að maður var við það að gef- ast upp en þá gat maður ávallt treyst á samnemendur sem drógu mann á land ef svo mætti segja og hvöttu mann áfram. Ég öðlaðist ótrúlega margt á leiðinni í víðum skilningi. Sem dæmi að átta mig á eigin styrkleikum og ekki síður veikleikum. Að meta kosti og taka ákvarðanir með meiri vissu. Mér finnst ég betur í stakk búin til að takast á við krefjandi verkefni eft- ir námið. Ég er sterkari í víðum skilningi og í flestum þáttum rekstrar fyrirtækisins. Eins er gott í framhaldinu að eiga verkfæ- rakistu þar sem auðvelt er að leita að margvíslegum fróðleik og leið- beiningum. Námið víkkaði sjón- deildarhringinn og ég lærði að setja mér skýrari markmið, að hugsa út fyrir boxið og komast að því að engin verkefni eru það stór að ekki sé hægt að leysa þau með góðu tengslaneti og samvinnu teymis. Síðast en ekki síst var áhugavert að kynnast ótrúlega skemmtilegum samnemendum mínum en í þeim tengslum eru mikil verðmæti og væntumþykja sem ég hef trú á að verði til fram- tíðar.“ Kom á óvart hvað fjármálin heilluðu Voru einhver fög sem stóðu upp úr í þínum huga? „Ég hef alltaf haft áhuga á sölu- og markaðsmálum og mikið starf- að við slíkt, þannig að ég hafði væntingar um að fög tengd þess- um málefnum myndu standa sér- staklega upp úr, en það verður að segjast eins og er að fjármálafögin heilluðu. Einnig fannst mér ný- sköpun og frumkvöðlafræði sem og samningatækni sérlega áhugaverð- ir og skemmtilegir áfangar. Það var líka mjög gaman að sitja fyr- irlestrana um alþjóðamál og við- skipti og jók enn frekar áhuga minn á fréttum á heimsvísu. Allir áfangar höfðu sinn sjarma og ég lærði heilmikið á þeim öllum.“ Hvað er menntun að þínu mati? „Menntun víkkar sjóndeildar- hringinn, eykur persónulegt öryggi og áhuga. Menntun er máttur og með aukinni menntun öðlast mað- ur alltaf eitthvað jákvætt hvort sem það er persónulega eða í vinnu. Ég tók mér góðan tíma að hugsa hvaða framhaldsmenntun mig langaði að fá mér og hafði hugsað mér að mennta mig meira í langan tíma en fann alltaf einhverjar af- sakanir. Mig langaði alltaf að fara í MBA-námið en lét ekki verða af því í mörg ár. MBA er krefjandi stjórnendanám og það er mik- ilvægt að vera 100% tilbúinn að leggja þessa miklu vinnu á sig auk þess að vera í fullu starfi samhliða og geta sinnt því einnig á sama tíma. MBA-námið er einfaldlega besta fjárfesting sem ég hef gefið sjálfri mér. Í mínum huga er hik það sama og tap. Það er allt í lagi að fresta en lífið er of stutt til þess að leyfa markmiðum sínum ekki að rætast ef mögulegt er að ná þeim.“ Íris er spennt fyrir árinu 2021. „Við höfum nú stillt upp áætl- unum fyrir árið. Við erum með skýr og háleit markmið fyrir þetta ár og það er ekkert annað en til- hlökkun að takast á við krefjandi og skemmtileg verkefni. Við erum nú í vöruþróun sem er skemmti- legur kafli í rekstri okkar fyrir- tækis. Ég er full bjartsýni enda ekkert annað í boði. Það eru alltaf tækifæri og líka í þeim aðstæðum sem við lifum nú.“ Setur þú þér markmið í upphafi árs? „Já ég hef alltaf sett mér mark- mið í upphafi árs, þau hafa verið misstór og krefjandi, en mér finnst mikilvægt að leggja línurnar að árinu svona í grófum dráttum. Það hefur virkað vel fyrir mig. Ég man þegar ég setti mér markmið þess efnis að klára MBA-gráðuna að þá sá ég myndrænt fyrir mér út- skriftina að tveimur árum liðnum. Ég hef þá trú að alltaf sé gott að sjá fyrir sér myndræna útkomu eftir að markmiði hefur verið náð.“ „MBA-námið er einfaldlega besta fjárfesting sem ég hef gefið sjálfri mér“ Íris Gunnarsdóttir er á því að hik sé sama og tap og að allir ættu að sjá fyrir sér markmiðin sín og reyna svo að lifa þau. Hún er spennt fyrir árinu 2021. Morgunblaðið/Eggert Fjármál Írisi þóttu fjármál áhugaverð í MBA-náminu sínu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.